Ég hef átt Marie Claire blaðið fyrir desember mánuð núna í 2 vikur en hef ekki haft tíma til að kíkja í gripinn fyrr en í gær.
Við ánægjulega gegnum blöðun rek ég augun í orð sem fær mann yfirleitt til að skoða greinina aðeins betur. Þetta orð er auðvitað Iceland...hvað annað;)
Jæja ég verð jú forvitin og fer til baka til að sjá um hvað þessi Íslandsvina grein er. Greinin ber yfirskriftina "Orgasms from around the world". Nú jæja hugsa ég...hvað geta íslendingar eiginlega lagt til í þeim málefnum. Þessi "hávísindalega" grein telur upp staðreyndir um þjóðir heimsins á þessu sviði.
Ísland kemst þar tvisvar á blað, í fyrsta lagi fyrir að vera sú þjóð sem notar mest af hjálpartækjum ástalífsins í heiminum (the heaviest users) og hins vegar fyrir að sú þjóð í heimunum sem er líklegust til að hafa one-night stand þar sem þeir tiltaka töluna 71% íslendinga hafa haft one-night stand. Á eftir íslendingum koma svo norðmenn með 70%.
Þessi grein fékk mig til að hugsa....á maður að vera stoltur af landi og þjóð fyrir að hafa áorkað þessu titlum með mikilli fyrirhöfn*hóst*.... eða á maður að skilja þetta sem svo að allir íslendingar séu með brókarsótt?!
Ég verð samt að viðurkenna að þetta kom mér nokkuð á óvart...ég vissi að við yrðum alltaf að vera best og stærst á sem flestum sviðum og að heimurinn yrði að vita af því...en common...dregur maður ekki mörkin einhversstaðar!?


Engin ummæli:
Skrifa ummæli