Mikið var unnið um helgina en ég gaf mér samt tíma til að fagna sjötugs afmælinu hans afa með familíunni. Afi bauð okkur öllum í mat og gistingu í Veiðihúsinu við Grímsá. Það er nú bara luxusstaður...kannski ekki Hiltonstíll en eins gott og það gerist í veiðihúsum. Við eyddum laugardagskvöldinu í heitapottum og þar á eftir í þríréttað jólahlaðborð....svo var bara djúsað fram á nótt... ásamt hóp af starfsmönnum KB banka sem mætti í jólahlaðborðið.
Húsið er rosalega flott, tekur 40 manns í herbergi og er mjög glæsilega hannað af bandarískum arkitekt......
Mæli með þessu place-i...það er víst e-ð popular meðal ríku-business-laxveiðiáhugamanna heimsins;)
Dröfn gerði sér lítið fyrir og mætti á klakann á laugardaginn....Welcome, its good 2 have you back home!!


Engin ummæli:
Skrifa ummæli