fimmtudagur, desember 09, 2004

Allt að verða kinverskt!!

...Ég mundi allt í einu áðan eftir ástkærri teiknimynd úr barnæsku minni sem fjallaði um Tao Tao(Tá Tá) og vinir hans. Hún var smá væmin er samt good stuff þar á ferð...
Ég fékk út frá því þá frábæru hugmynd að surfa netið eftir Tao Tao-efni til að minna mig nú á hvernig liðið leit út. Fann einhverja glataða kínverska fan-síðu og það var allt. Þessi teiknimynd hefur greinilega verið gerð fyrir tíma heimasíðna þar sem allar teinkimyndir í heiminum eiga sína eigin heimasíðu í dag.
Anywho nóg um það. Svo datt mér allt í einu í hug að skrifa e-ð bull inn á bloggið mitt og þá kemur bara í ljós að Bloggerinn minn hefur skipt yfir í kínversku. Allt er gjörsamlega kínverskt...nema það sem ég skrifa....Nú kemur bloggkunnátta að góðu gagni þar sem ég veit hvar hnapparnir eru og tek bara sénsinn á að færslan komist á leiðarenda.
Eitt er þó nokkuð ljóst og það er að brainy kínverjarnir eru að taka yfir tölvuheiminn.......og þeir byrja á tölvunni minni!!!

Jæja nóg um þetta....ég er komin í jólafrí...ja eða amk. búin í prófum og er komin á fullt í jólastöffið! Fyrsta jólakortið fer til Afríku í fyrramálið og þá fer boltinn að rúlla....

Hafiði það nú gott....og munið: "no hard feeling þó ég sé búin,aight";)

Engin ummæli: