...Þá myndi ég ALDREI þurfa að koma nálægt Lánasjóði Íslenskra Námsmanna....óþolandi forvitni í liðinu sem þar starfar...þeir þurfa að vita gjörsamlega allt til þess að maður geti fengiðeitt skitið lán. Liggur við að maður þurfi að fylla út formið með upplýsingum eins og "hvaða lit af nærbuxum genguru í" eða "hvað ertu þung/ur". Hvað varðar þessa stofnun um t.d. hvað maður þénar á árinu? Ég veit ekki betur en að þessi lán séu tekin af fólki á eigin ábyrgð og þurfa þá bara alls ekkert að vera tekjutengd. Það er eins og að námsmenn megi ekki eiga /cash/ á meðan námi stendur. Já já.....það mun einhver reyna að segja mér að það sé sniðugt að halda skuldum fólks í lágmarki og bla bla....en hversu þreytandi er að þurfa að fylla út umsókn á hverju ári ef ekki önn og "grátbiðja" um lán (því annars hafi maður ekki efni á að vera í námi)....og svo ofan á það að senda inn einhverja endanlega tekjuáætlun eftir hvert ár til að vera viss um að fá peninginn sinn nú útborgaðan!
Þreytt á þessu!!
Hildur Mange-Penge


Engin ummæli:
Skrifa ummæli