miðvikudagur, júní 30, 2004

Jeij!!!

ég er búin að kaupa mér laptop...jeij jeij....
Héðan í frá verðum ég og "iBook G4/1Ghz 14" 256mb/60GB/Combo/Radeon9200" bestu vinir!
....langaði bara að deila þessu með ykkur:)

mánudagur, júní 28, 2004

4 days to go...

loksins gefst manni tími til að fatta að maður er að fara að fara af stað(..wow) til útlandanna. Þetta sumar er bara strax hálfnað og maður hefur ekki enn komist í að brúnka sig í sólinni....stress!!

Anywho þá fer Oddný Cara af landinu í dag...aftur til Brittt-ein til karlsins sem bíður spenntur eftir henni og við íslendingarnir höfum ekki enn fengið að sjá...ekki einu sinni mynd;) Það var nú ferlega gaman að hitta hana aftur eftir tveggja ára fjarveru!

Svo stoppuðu við hjá mér í gær Edda E-pilla og Silvia spænska. Það eru ca 3 ár síðan Silvia kom til landins síðast og þar af leiðandi gaman að hún skildi finna tíma til að koma við og tjékka hönnunina í íbúðinni;). Hún er bara að gera það gott á Spáni og að date-a einhverja rosa George Clooney týpu...go Silvia!!

Jæja mín er bara að byrja að pakka og koma sér í gírinn þrátt fyrir að ég hafi í rauninni bara einn dag alveg frían til að pakka og taka mig til....megin partur vikunar fer í vinnu.
Fyrir þá sem vilja vita verð ég til viðtals miðvikudag og fimmtudag fyrir kl.16 og svo eftir 22 á kvöldin...
jæja ætla að skjótast og kaupa mér stóra ferðatösku...þekki eina sem ætlar að versla vel úti í heimi;)

þriðjudagur, júní 22, 2004

Það er naumast...

...að þetta sumar ætlar að vera busy hjá mér. Ég sem sá fram á hálf vinnulaust sumar þar sem ég myndi þurfa að berjast fyrir vöktum í blómabúðinni og hanga í símanum hjá Gallup eins oft í viku og hægt væri. En nei vitiði ég er barasta busy nánast alla daga. Verð að plana frí fram í tíman...hefði betur sleppt því að worry-a svona út af vinnuleysinu;)

Heyrðu svo var bara svona skemmtilegur leikur í kvöld. Danmark-Svergie. Ekkert smá spennó. Mínir menn danirnir stóðu sig bara vel og fá þeir props fyrir góða frammistöðu þrátt fyrir jafntefli....en hey þeir komust áfram!:)

jæja mig langar alveg að segja meira en nenni ekki meir í bili.
En hvað segir fólk um kosningarnar.Ætla ekki allir að kjósa á laugardaginn???

fimmtudagur, júní 17, 2004

Gleðilegan 17.júní samlandar

Góður dagur fyrir gott fólk....ég skellti mér miður í bæ í dag til að fagna 17.júní. Það var kannski meira samt til að rifja upp hvernig íslendinga halda upp á daginn, þar sem ég hef ekki verið á landinu á þessum degi seinustu 2-3 ár ef ekki meira. Því miður kom ég frekar seint í bæinn eða kl.ca. 17 og þá voru bara fáir á ferli miðað við það sem ég hafði ímyndað mér. En stemmningin var fín, hefði samt mátt vera minna rok þar sem ég varð að berjast við að halda hárinu frá candyflossinu mínu. Þrátt fyrir gleði og glaum var ég komin með nóg af fögnuði kl.19 og hélt heim á leið. Frétti reyndar við ónefndan pizzastað að við hefðum misst af kareokifjöri með Kalla Bjarna á stóra sviðinu.....huhum...Íslendingar kunna sko greinilega að selebreita!

Í gær miðv.dag átti maður góða kvöld stund með "outlanders possíinu" aka. Dröfn,Oddný, Bergþóra og Linda. Fljótandi upplyfting var hafð um hönd og svo var haldið í miðbæ Rvk. til að taka púlsinn á skemmtanalífinu (maður er ferlega íslenskulegur í tilefni dagsins)! Sem sagt, good times og boogy í gærkveldi (æ gafst upp þjóðlegheitunum).

Svo átti uppáhalds systir mín hún Sigga O.G.afmæli á þriðjudaginn og hefur nú fyllt árin 17...sem er barasta besta mál fyrir utan að minn aldur fer hækkandi jafnhliða hennar.....hmmmm.....!
Til lukku með aldurinn og því sem honum fylgir eins og t.d. geturu núna gengið á gangstéttum án þess að hafa áhyggjur af því að stíga á strik og einnig pantað Subway með rækjum og remúlaði......munar öllu að verða 17!:)

Anyways þá er ég að vinna allt of mikið þessa dagana þannig að ef þú hefur ekki heyrt í mér for a while þá er það ekki vegna þess að ég nenni ekki að hringja....heldur ég hef ekki náð að gefa mér tíma ennþá....minni enn og aftur á Danmerkur ferð mína 3.júlí...blóm og gjafir vinsamlega afþakkaðar!

æ bullið maður...púff...seinna y´allir!!

sunnudagur, júní 13, 2004

Greetings earthlings....

Jæja þá er manni búið að takast að setja linka inn á síðuna....með framúrskarandi hjálp frá systur minni henni Siggu G....sumir hafa fengið þetta með genunum;)

Annars langar mig að segja fátt meira í þessu bloggi..nema kannski að ég fer til Danmark eftir 2 vikur og 5 daga. Það verður nú vonandi betra veður þar þá en er hérna í augnablikinu. Núna vinn ég bara eins og ég get til að eiga efni á því að versla kannski smá á meðan ég verð í nágreni við almennilega H&M og fleira skemmtilegt....
anywho....það var ekki annað.

miðvikudagur, júní 09, 2004

ekkert líf...

...í bloggheimum þessa dagana. Get lítið sagt annað en að það sé bara vel skiljanlegt þar sem allir eru annað hvort að vinna eða hafa ekkert að segja.
Ég hef bara verið að vinna í símajobbinu, blómahafinu og nú upp á síðkastið er maður að mála og olíu bera glugga, þrífa bíl og mun halda áfram með málingar vinna í bílskúr og sitthvað fleira.
Ég Birna og Dröfn hittumst á Vegamótum um daginn til að halda uppi heiðri Vatnaliljanna þar sem hinar voru fjarverandi og vinnandi. Við fengum glampandi sól og útlandafíling í portinu hjá Vegó...vantaði bara að maður hefði einn kaldan til kæla sig með, þá hefði Köben verið mætt á svæðið;)

jæja more later*

föstudagur, júní 04, 2004

Viðbót við nördheima

Nú er hún Birna okkar komin með heimasíðu...ekkert bloggvesin fyrir hana heldur fer hún bara beint í heimsíðuna.
Tjékkið á síðunni: http://birna.haukar.is

Birna, ég myndi setja þig inn á netnördalistann en ég er bara ekki búin að komast að því hvernig maður setur fólk inn ennþá...þannig að það gerist bara í framtíðinni:)

fimmtudagur, júní 03, 2004

Ég mæli með...

....bodypump!

Þetta voru s.s. meðmæli dagsins...*

þriðjudagur, júní 01, 2004

Sumar og....

...rigning í augnablikinu...ég sem var búin að plana glæsilega hjólaferð í sól og blíðu í dag. Oh well...guess it wasnt meant to be. Þannig að stefnan er tekin á minna kaloríubrennandi aðgerðir í dag.

Helgin var góð...Troels invígði brettagarðinn glæsilega í Mosó, við skelltum okkur í stúdentsveislu hjá litla frænda, sofnuðum áður en við náðum í stúdentapartyið um kvöldið, fór í Kolaportið og Kringluna m Birnu, stóð í blómahafi í 6 klukkutíma, keyrði út í sveit, jarmaði með rollunum á staðnum, gróðursetti tré með grænum fingrum, heimsótti Dröfn bóndakonu á sveitabæinn sinn, grillaði og basicly.....naut hvítunnar af sunnunni....

Núna er bara spurning hvort maður skelli sér út í rigninuna í hawaii outfittinu og dansi sólardansinn. Hvernig er hægt að búast við því að maður verði brúnn og sællegur í sumarfríinu ef engin er sólin?.....ég segi bara guði sé lof fyrir sólbaðsstofur og útfjólubláu geislanna þeirra!

Jæja ég er farin að gera e-ð af viti...friður sé með þér og þínum,aight!

fimmtudagur, maí 27, 2004

Smáfólkið í fimleikafélaginu....

....jæja þá hef ég borið Pixies augum og ullu þeir ekki vonbrigðum á mínum bæ. Kaplakriki var troðinn en við vorum svo heppin að finna okkur góð sæti uppi á pöllunum með góðu útsýni yfir sviðið. Upphitunin var frekar lame, en það er kannski bara mín skoðun á þessu Ghost (d)igital bandi. Svo skellti smáfólkið sér á sviðið og sýndi góða takta með helstu hittunum sínum í bland við eldra og nýrra efni. Meðal aldur tónleikagesta var mun hærri en gengur og gerist þessa dagana á tónleikum og var gaman að sjá að fólk yfir 25 láti enn sjá sig á tónleikum...hehe;)

En ég var sátt við smáfólkið og þeirra show þó þau hafi bara keyrt programmið í gegn án minnstu pásu. Talandi um úthald! Undir lokin þegar þau voru klöppuð upp var orðið svoldið heitt í húsi fimleikafélagsins og loftið þungt þannig að ég var bara fegin að þetta var ekki mikið lengra.
Smáfólkið fær 4 og hálfa stjörnu fyrir þessa tónleika....

sunnudagur, maí 23, 2004

ó-ó...ó-ó...

nú er maður komin með nýja vinnu og verður vonandi á fullu við að vinna i júní...ég er ss. orðin símastelpa....fyrir Gallup. Ég veit...en a girls got to do what a girls got to do,right!

Anyway þá brá ég mér á Broaway í gærkveldi, eftir vinnu í blómabúðinni, ásamt fríðum flokki að sjá Lumidee. Það var bara fínt...var svoldið þreytt í fótunum en reyndi samt að taka nokkur spor:) Gellan var nú ekki lengi á sviðinu en alltí læ entertainment rapparar héldu djamminu gangandi....hún tók samt að sjálfsögðu "ó-ó" lagið sitt.

jæja nóg i bili*

fimmtudagur, maí 20, 2004

Sumarfrí sumarfrí!!

Jæja nú er mar loksins komin í sumarfrí...það er nú bara ljúft í alla staði og nú þarf sólin bara að standa sig til að fullkomna pakkann!
Ég ætla að skella mér á Lumidee á Broadway á laugardaginn og svo er það bara Pixies í næstu viku....
Sumarið er bara argasta snilld:)

sunnudagur, maí 16, 2004

Euro pjúró..

...jæja Jónsi gerði sitt besta með tilheyrandi kippum og stökkum. Ágætis performance og gott val á lit á jakkafötunum. Hefði bara átt að vera annað lag...hann gat nú ekki gert að því. Ruslastelpan var líka bara ágæt greyið...mátti alveg vinna!
Ég skellti mér í eurovision/matarboð í gærkveldi hjá henni Örnu sem er bara extremely góður kokkur...eldaði þarna ofan í meira en 10 manns. Hin ágætasta kvöldstund....svo var haldið í bæinn, en stoppað stutt vegna prófs á mánudaginn. Ég náði samt að smeygja mér inn a Prikið, Hverfis og...ég skil ekki alveg afhverju....Grand Rokk (stoppaði reyndar bara mjög stutt þar). Bærinn var stappaður og raðir við allar dyr. Svo rölti ég heim um 2:30. Sé svoldið eftir því í dag að hafa ekki farið heim fyrr. En var samt byrjuð að lesa quiet early...bara ekki nógu hress kannski.
Anyway seinasta prófvesinið í fyrrmálið og þá er frí þanga til í september (nema mar skelli sér i sumarpróf!)...eintóm gleði!
Dröfn er komin, Harpa að fara og Birna farin....og bara 1 mánuður og 18 dagar þanga til ég fer

Takk fyrir boðið Arnie og veitingarnar, snilldar hugmynd hjá þér!!

fimmtudagur, maí 13, 2004

Tilhlökkunin eykst...

...eftir eurovision. Ég fylgdist með undankeppninni í gærkveldi og sá þar "frændur okkar" dana detta illilega úr keppninni með atriði frá söngfuglinum Tómasi okkar íslenska í rauðu salsa jakkafötunum sínum. Auðvitað ásamt nokkrum öðrum löndum...sem við nennum ekki að nefna!

Nú er ég sko komin í fíling fyrir keppnina á laugardaginn og set nokkur stig á hallærislegu dúllu-kallana frá Hollandi. Þetta er samt bara eftir undankeppnina og á ég alveg eftir að sjá hina 10 efstu frá í fyrra!!
Ég man ekki eftir að hafa verið svona spennt í þessari keppni í langan tíma....ómæ!

Jæja best að getta sum more íslenska fyrir brainina mína....*

miðvikudagur, maí 12, 2004

Freestyle pizzupöntun..

Hér eru nokkrar aðferðir við að gera pizzupöntun skemmtilegri...ég grét úr hlátri:

-Notaðu "ýkt" mikið slangur þegar þú pantar pizzuna. ("Meikaðu eina þokkalega feita slæsu með plenty tjís á kantinum ..")
-Segðu þeim að senda pizzuna, og spurðu hvort að sendillinn geti komið við á Macdonalds fyrir þig ot tekið einn "Big Mac" með fyrir þig í leiðinni.
-Ljúktu símtalinu með því að segja: "Mundu .. að við áttum aldrei þetta samtal."
-Segðu þeim sem að tekur pöntunina að samkeppnisaðilinn sé á hinni línunni og þú ætlir að taka besta boðinu.
-Gefðu þeim upp heimilisfangið hjá þér .. segðu síðan "Komdu mér á óvart" og legðu á.
- Svaraðu þeirra spurningum með spurningum.
-Syngdu pöntunina við eitthvað gott Metallica lag.
-Ekki segja hvað þú viljir á pizzuna - heldur skaltu stafa það.
-Talaðu mjög smámælt þegar þú segir "sósa" og "ostur" .
-Stamaðu á öllum "p" orðum.
-Búðu til lista yfir mjög framandi álegg. Pantaðu þau sem álegg.
-Skiptu um hreim á þriggja sekúndna fresti.
-Pantaðu 52 pepperoni sneiðar og láttu raða þeim í blómamynstur á pizzuna.
-Reyndu að leigja þér pizzu
-Biddu þau um að dobbel tékka á því hvort pizzan sé ekki örugglega dauð þegar hún kemur úr ofninum.
-Hermdu eftir röddinni á þeim sem tekur við pöntuninni.
-Ropaðu beint í tólið og segðu síðan "Skamm skamm .. vondur hundur."
-Pantaðu sneið .. ekki heila pizzu.
-Hringdu og kvartaðu undan þjónustunni. Hringdu 5 mínútum síðar og afsakaðu þig með því að þú hafir verið fullur og ekki meint neitt með þessu.
-Spurðu hvort að þetta sé lífrænt ræktuð pizza.
-Þegar þau endurtaka pöntunina ... segðu þá "Flott .. einu sinni enn .. og reyndu að finna þig í þetta skipti ... vertu pizzan .. vertu pizzan."
-Pantaðu .. og segðu síðan að þetta samband ykkar komi ekki til með að ná lengra en þetta.
-Biddu um að pizzakassinn verði með blindraletri.
-Spurðu hvort að þessi pizza sem þú pantaðir þér sé hreinræktuð og hvort að það sé til ættartafla með henni.
-Biddu um gufusoðna pizzu.

Núna eru bara 5 dagar í frí..

...og ég er bara farin að hlakka til! Sem er víst ekki gott, þar sem ég er ekki búin í prófum ennþá..
Það er bara verst hvað það er langt á milli prófa því ég er bara hætt að geta einbeitt mér t.d.þegar 5 dagar líða á milli prófa. Mig langar mest að rölta í bænum eða skella mér í Kringluna í staðinn fyrir að sitja heima með bók í hönd.
Næst er það íslenskan...sem inniheldur hina skemmtilegu íslensku málfræði ásamt bragfræði og bókmenntum. Ég kvarta nú alls ekki undan því þar sem næsta próf á eftir er ennþá verra, nefnilega Námsskrárfræði og námsmat.
Hingað til hef ég reddað mér í gegnum tvö próf á gáfunum.....og auðvitað lesningu og mér hefur gengið bara ágætlega( veit fyrir víst að stærðfræðin gekk mjög vel, púff...!)

Í kvöld ætla ég svo að hafa það náðugt yfir pre-eurovision eftir hressandi sundferð....maður verður nú bara að verðlauna sig öðru hvoru fyrir leiðindin sem maður gengur í gegnum á meðan maður les og les og les......

Það er annars allt að gerast í um þessar mundir:
Birna er að fara til Parísar í rómantíkina
Dröfn kemur heim í ja...segjum bara líka í rómantíkina
Harpa fer til New York í búðirnar
Ég fer í sumarbústað m gellunum til að fagna próflokum m rauðvín í annari og grillið í hinni

gleði gleði!!

mánudagur, maí 10, 2004

Svo er bara komið nýtt blogg look!

Hvað finnst fólki almennt um það?
Allir sáttir?

Maður er sko komin með leið...

...á kennslubókunum sem þarf að lesa fyrir þessi próf. Ég er orðin hálf rangeygð og komin með illt í bakið af því að lesa svona mikið. Svo er svo erfitt að einbeita sér þegar það er komið svona eðal veður. Eftir morgundaginn eru bara 2 erfið próf eftir og svo er maður laus undan lesningarkvöðinni!
-Þetta var vorkunn dagsins!

Annars er allt í góðu. Dröfn gamla Guðna ætlar að mæta á klakann í komandi viku, eftir ískyggilega langa fjarveru, og þá verður sko glatt á hjalla. Arna Girk heldur matarboð næstu eurovision-helgi með tilheyrandi látum, djammi og matarslag;)
Sem sagt ýmsilegt spennandi á dagskránni sem auðveldar manni að komast í gegnum próf-vesinið....

kv. lestarhesturinn@háteigsvegur

miðvikudagur, maí 05, 2004

Gleði í mínu litla hjarta...

...jú jú stærðfræðiprófinu munnlega er lokið. Og nú eru bara 3. erfið próf eftir.
Í dag hefur maður séð alls kyns fólk skjálfa á beinunum, meira segja þeir sem yfirleitt geisla af sjálfstrausti sátu og svitnuðu yfir því að lenda kannski á óheppilegum spurningum. Þetta sannar bara eitt stærðfræðin er veikur punktur hjá felstum, hvort sem hann er dulin eður ei;) Mér gekk by the way allt i lagi....en samt erfitt að lesa úr steinrunnum andlitum prófdómaranna.

En það sem ég hef komist að eftir lesninguna um hvernig maður á kenna litlum krakkalingum stærðfræði er að ef ég hefði einungis fengið samskonar kennslu og bókin segir fyrir um væri ég yfirmaður stærðfræðideildar háskólans.... þ.e. samkvæmt bókinni ;) Svona er lífið skemmtilegt...

Jæja nú ætla ég að njóta ör-frís(það er nýjasti trendinn hjá mér) þanga til ég þarf að taka upp næstu bók....

goodos dayos*

mánudagur, maí 03, 2004

Just a quicky...

...í þetta skiptið. Ég er á fullu við að reyna að læra þessa dagana. Nóg að gera í bókunum. Er við það að krassa vegna stæfræ. overloads og af svona líka ólesilegu efni. En maður verður bara að takast á þetta og vingast við nammisjálfsalann í skólanum....

Óska öllum lestrarhestum nær og fjær gleði og góðs gengis á leið sinni í gegnum próf-göngin!

Adios snurfsky´s