sunnudagur, maí 16, 2004

Euro pjúró..

...jæja Jónsi gerði sitt besta með tilheyrandi kippum og stökkum. Ágætis performance og gott val á lit á jakkafötunum. Hefði bara átt að vera annað lag...hann gat nú ekki gert að því. Ruslastelpan var líka bara ágæt greyið...mátti alveg vinna!
Ég skellti mér í eurovision/matarboð í gærkveldi hjá henni Örnu sem er bara extremely góður kokkur...eldaði þarna ofan í meira en 10 manns. Hin ágætasta kvöldstund....svo var haldið í bæinn, en stoppað stutt vegna prófs á mánudaginn. Ég náði samt að smeygja mér inn a Prikið, Hverfis og...ég skil ekki alveg afhverju....Grand Rokk (stoppaði reyndar bara mjög stutt þar). Bærinn var stappaður og raðir við allar dyr. Svo rölti ég heim um 2:30. Sé svoldið eftir því í dag að hafa ekki farið heim fyrr. En var samt byrjuð að lesa quiet early...bara ekki nógu hress kannski.
Anyway seinasta prófvesinið í fyrrmálið og þá er frí þanga til í september (nema mar skelli sér i sumarpróf!)...eintóm gleði!
Dröfn er komin, Harpa að fara og Birna farin....og bara 1 mánuður og 18 dagar þanga til ég fer

Takk fyrir boðið Arnie og veitingarnar, snilldar hugmynd hjá þér!!

Engin ummæli: