...jú jú stærðfræðiprófinu munnlega er lokið. Og nú eru bara 3. erfið próf eftir.
Í dag hefur maður séð alls kyns fólk skjálfa á beinunum, meira segja þeir sem yfirleitt geisla af sjálfstrausti sátu og svitnuðu yfir því að lenda kannski á óheppilegum spurningum. Þetta sannar bara eitt stærðfræðin er veikur punktur hjá felstum, hvort sem hann er dulin eður ei;) Mér gekk by the way allt i lagi....en samt erfitt að lesa úr steinrunnum andlitum prófdómaranna.
En það sem ég hef komist að eftir lesninguna um hvernig maður á kenna litlum krakkalingum stærðfræði er að ef ég hefði einungis fengið samskonar kennslu og bókin segir fyrir um væri ég yfirmaður stærðfræðideildar háskólans.... þ.e. samkvæmt bókinni ;) Svona er lífið skemmtilegt...
Jæja nú ætla ég að njóta ör-frís(það er nýjasti trendinn hjá mér) þanga til ég þarf að taka upp næstu bók....
goodos dayos*


Engin ummæli:
Skrifa ummæli