...og ég er bara farin að hlakka til! Sem er víst ekki gott, þar sem ég er ekki búin í prófum ennþá..
Það er bara verst hvað það er langt á milli prófa því ég er bara hætt að geta einbeitt mér t.d.þegar 5 dagar líða á milli prófa. Mig langar mest að rölta í bænum eða skella mér í Kringluna í staðinn fyrir að sitja heima með bók í hönd.
Næst er það íslenskan...sem inniheldur hina skemmtilegu íslensku málfræði ásamt bragfræði og bókmenntum. Ég kvarta nú alls ekki undan því þar sem næsta próf á eftir er ennþá verra, nefnilega Námsskrárfræði og námsmat.
Hingað til hef ég reddað mér í gegnum tvö próf á gáfunum.....og auðvitað lesningu og mér hefur gengið bara ágætlega( veit fyrir víst að stærðfræðin gekk mjög vel, púff...!)
Í kvöld ætla ég svo að hafa það náðugt yfir pre-eurovision eftir hressandi sundferð....maður verður nú bara að verðlauna sig öðru hvoru fyrir leiðindin sem maður gengur í gegnum á meðan maður les og les og les......
Það er annars allt að gerast í um þessar mundir:
Birna er að fara til Parísar í rómantíkina
Dröfn kemur heim í ja...segjum bara líka í rómantíkina
Harpa fer til New York í búðirnar
Ég fer í sumarbústað m gellunum til að fagna próflokum m rauðvín í annari og grillið í hinni
gleði gleði!!


Engin ummæli:
Skrifa ummæli