....jæja þá hef ég borið Pixies augum og ullu þeir ekki vonbrigðum á mínum bæ. Kaplakriki var troðinn en við vorum svo heppin að finna okkur góð sæti uppi á pöllunum með góðu útsýni yfir sviðið. Upphitunin var frekar lame, en það er kannski bara mín skoðun á þessu Ghost (d)igital bandi. Svo skellti smáfólkið sér á sviðið og sýndi góða takta með helstu hittunum sínum í bland við eldra og nýrra efni. Meðal aldur tónleikagesta var mun hærri en gengur og gerist þessa dagana á tónleikum og var gaman að sjá að fólk yfir 25 láti enn sjá sig á tónleikum...hehe;)
En ég var sátt við smáfólkið og þeirra show þó þau hafi bara keyrt programmið í gegn án minnstu pásu. Talandi um úthald! Undir lokin þegar þau voru klöppuð upp var orðið svoldið heitt í húsi fimleikafélagsins og loftið þungt þannig að ég var bara fegin að þetta var ekki mikið lengra.
Smáfólkið fær 4 og hálfa stjörnu fyrir þessa tónleika....


Engin ummæli:
Skrifa ummæli