miðvikudagur, júní 09, 2004

ekkert líf...

...í bloggheimum þessa dagana. Get lítið sagt annað en að það sé bara vel skiljanlegt þar sem allir eru annað hvort að vinna eða hafa ekkert að segja.
Ég hef bara verið að vinna í símajobbinu, blómahafinu og nú upp á síðkastið er maður að mála og olíu bera glugga, þrífa bíl og mun halda áfram með málingar vinna í bílskúr og sitthvað fleira.
Ég Birna og Dröfn hittumst á Vegamótum um daginn til að halda uppi heiðri Vatnaliljanna þar sem hinar voru fjarverandi og vinnandi. Við fengum glampandi sól og útlandafíling í portinu hjá Vegó...vantaði bara að maður hefði einn kaldan til kæla sig með, þá hefði Köben verið mætt á svæðið;)

jæja more later*

Engin ummæli: