mánudagur, júní 28, 2004

4 days to go...

loksins gefst manni tími til að fatta að maður er að fara að fara af stað(..wow) til útlandanna. Þetta sumar er bara strax hálfnað og maður hefur ekki enn komist í að brúnka sig í sólinni....stress!!

Anywho þá fer Oddný Cara af landinu í dag...aftur til Brittt-ein til karlsins sem bíður spenntur eftir henni og við íslendingarnir höfum ekki enn fengið að sjá...ekki einu sinni mynd;) Það var nú ferlega gaman að hitta hana aftur eftir tveggja ára fjarveru!

Svo stoppuðu við hjá mér í gær Edda E-pilla og Silvia spænska. Það eru ca 3 ár síðan Silvia kom til landins síðast og þar af leiðandi gaman að hún skildi finna tíma til að koma við og tjékka hönnunina í íbúðinni;). Hún er bara að gera það gott á Spáni og að date-a einhverja rosa George Clooney týpu...go Silvia!!

Jæja mín er bara að byrja að pakka og koma sér í gírinn þrátt fyrir að ég hafi í rauninni bara einn dag alveg frían til að pakka og taka mig til....megin partur vikunar fer í vinnu.
Fyrir þá sem vilja vita verð ég til viðtals miðvikudag og fimmtudag fyrir kl.16 og svo eftir 22 á kvöldin...
jæja ætla að skjótast og kaupa mér stóra ferðatösku...þekki eina sem ætlar að versla vel úti í heimi;)

Engin ummæli: