Góður dagur fyrir gott fólk....ég skellti mér miður í bæ í dag til að fagna 17.júní. Það var kannski meira samt til að rifja upp hvernig íslendinga halda upp á daginn, þar sem ég hef ekki verið á landinu á þessum degi seinustu 2-3 ár ef ekki meira. Því miður kom ég frekar seint í bæinn eða kl.ca. 17 og þá voru bara fáir á ferli miðað við það sem ég hafði ímyndað mér. En stemmningin var fín, hefði samt mátt vera minna rok þar sem ég varð að berjast við að halda hárinu frá candyflossinu mínu. Þrátt fyrir gleði og glaum var ég komin með nóg af fögnuði kl.19 og hélt heim á leið. Frétti reyndar við ónefndan pizzastað að við hefðum misst af kareokifjöri með Kalla Bjarna á stóra sviðinu.....huhum...Íslendingar kunna sko greinilega að selebreita!
Í gær miðv.dag átti maður góða kvöld stund með "outlanders possíinu" aka. Dröfn,Oddný, Bergþóra og Linda. Fljótandi upplyfting var hafð um hönd og svo var haldið í miðbæ Rvk. til að taka púlsinn á skemmtanalífinu (maður er ferlega íslenskulegur í tilefni dagsins)! Sem sagt, good times og boogy í gærkveldi (æ gafst upp þjóðlegheitunum).
Svo átti uppáhalds systir mín hún Sigga O.G.afmæli á þriðjudaginn og hefur nú fyllt árin 17...sem er barasta besta mál fyrir utan að minn aldur fer hækkandi jafnhliða hennar.....hmmmm.....!
Til lukku með aldurinn og því sem honum fylgir eins og t.d. geturu núna gengið á gangstéttum án þess að hafa áhyggjur af því að stíga á strik og einnig pantað Subway með rækjum og remúlaði......munar öllu að verða 17!:)
Anyways þá er ég að vinna allt of mikið þessa dagana þannig að ef þú hefur ekki heyrt í mér for a while þá er það ekki vegna þess að ég nenni ekki að hringja....heldur ég hef ekki náð að gefa mér tíma ennþá....minni enn og aftur á Danmerkur ferð mína 3.júlí...blóm og gjafir vinsamlega afþakkaðar!
æ bullið maður...púff...seinna y´allir!!


Engin ummæli:
Skrifa ummæli