fimmtudagur, september 30, 2004

model smjodel!

...ég brá mér í heimsók í gærkveldi á gamlar heimaslóðir...aka.Aflagrandann til að kveðja elskulega forledra mína sem eru í þessum töluðu orðum að sleppa sér á Ítalíu í fríinu sínu. Lucky people!
Það er nú kannski ekkert í frásögur færandi nema að ég datt ofan í þáttinn "Americas next top model"(eða e-ð í þeim dúr) sem er bara ansi áhugaverður fyrir þær sakir að þetta er jú pjúra drama og bull. Ótrúlegt að sjá svona hóp af sætum tilvonandi topmódelum vera svona hrottalega frekar, hallærislegar, vondar við hvor aðra og óþroskaðar. Pabbi minn trúði nú ekki að við systurnar sætum og horfum á þetta rugl en það toppaði allt þegar mamma var mætt við kassann líka og sussaði á hann þegar hann byrjaði að sveia yfir vali á sjónvarpsefni.
Svona eru reality shows merkilegar. Manni er alveg sama um allt þetta frægðarþyrstalið þangað til maður horfir á einn þátt og verður hooked á því að sjá meira....eitt er víst og það er að nú verð ég að sjá næsta þátt!
By the way er einhver sammála mér að Tyra Banks er ein sú væmnasta gella ever þegar hún er að segja hverjir komist áfram og hverjir ekki...það eru bara ekkasogarnir og læti!

Könnun dagsins: Hverjir horfa á þáttinn "Americas next top model?"

B.t.w. Dröfn það er bannað að segja hver vinnur ef þú ert búin að sjá enda þáttinn þarna úti!!

þriðjudagur, september 28, 2004

Nothing beats tuesdays!

Þetta eru einfaldlega bestu dagarnir. Er í aðeins einum tíma sem er ferlega skemmtilegur: "hönnun og mótun hugmynda". Get sofið út OG gert e-ð sniðugt áður en ég mæti kl.12:50! Geri aðrir betur...

Annars er ég bara að skrifa e-ð af því að ég var orðin leið á seinustu færslunni minni....þegar maður er komin með leið á sinni eigin síðu þá er komin tími til að take sum action.
Ég sé fram á skemmtilega viku þrátt fyrir vinnu um helgina. Ætla að gerast stórtæk og stefna á þjóðminjasafnið á miðvikudaginn þar sem ég heyrði nú að það er víst gratis inn alla miðvikudaga. Auðvitað á maður að nýta sér svona gæða tilboð!! Sundlaugar Rvk eru líka á dagskránni ásamt ýmislegu öðru sniðugu. Hver veit nema að maður drífi sig í heimsókn e-ð út í buskann...allir að taka til hjá sér ´n be ready!

kveðja
Helen Happyline

laugardagur, september 25, 2004

Hið bestasta kvöld:)

Jæja það rættist aldeilis úr kveldinu í gær eftir þennan líka óskemmtilega dag.
Sinfó tónleikarnir voru svona líka góðir. Manni leið á köflum fullkomnlega eins og maður væri að horfa á eina gamla góða bíómynd...bara án myndarinnar! Þetta sannaði fyrir mér hversu miklu máli góð kvikmyndatónlist skiptir fyrir stemmninguna í myndinni. Mæli með þessu tónleikum...bara synd að þetta hafi verið þeir seinustu...af tveimur;)

Anywho...eftir tónleikana flýtti maður sér heim til að taka á móti þeim vatnaliljum sem sáu sér fært um að mæta. Eins og Birna sagði "það var fámennt en góðmennt"...Umræðurnar voru nokkuð klassískar, yfirnáttúrulegir atburðir og karlmenn:)!Fundum vel fyrir því að Dröfn og Ragna voru fjarverandi þar sem grófleikinn var í hóf stilltur. Arna og Harps voru edrú og fóru ekki í bæinn. En ég og Birna skelltum okkur í mekka skemmtanalífsins í Rvk. Ég skemmti mér bara hið besta og var ánægð með kvöldið....kom samt fyrr heim en ég reiknaði með...hmmm....þegar maður verður eldri hrörnar greinilega tímaskynið;)

Jæja ætla að fara að gera ekki neitt í tilefni dagsins í dag!
Stundir....

föstudagur, september 24, 2004

Ekki minn dagur!!

Alveg glatað veður, tölvan ekki að hlýða, tímaplön ekki að passa, rak hausinn í....og sitt hvað fleira óskemmtilegt!

Langar mest undir sæng en hef ákveðið að reyna að leiða þetta allt hjá mér vegna þess að það er vatnaliljudjamm í kveld...treysti á uppliftingu í m.a. formi dans á helstu stöðum bæjarins!!

miðvikudagur, september 22, 2004

undur veraldar

tjékkið á þessu...skrítin síða...sérstaklega þetta um 5 ára móðurina!

http://www.weirdlinks.com/

mánudagur, september 20, 2004

Ny færsla

...ég læt undan MIKLUM þrýstingi frá Örnu og blogga þrátt fyrir að ég sé ekki í stuði.
Dagurinn í dag hófst á fríi og endaði á óvæntu fríi. Ekki slæmt það, sérstaklega þar sem ég átti von á hvorugu fríinu. Það var frí í Listir menning og menntun vegna aukatímans sem við förum í á föstudaginn, sá aukatími gengur út á að sitja í Háskólabíói og hlusta á ljúfa tóna kvikmyndatónlistar.....nei við förum ekki í bíó...heldur á sinfó.tónleika! Maður er barasta farin að hlakka til að vera menningarlegur:)Held að þetta verði mjög skemmtilegt þar sem þeir munu taka slagara eins og gamla góða Singing in the rain, Star Wars og fleira!

Um helgin var ég bara að vinna fös, laug og sunn í blómunum. En brá mér samt í pæjuafmæli hjá Hönnu á laugardaginn...það vara bara fínt...gaman að sjá skvísurnar aftur eftir a long time! Takk fyrir boðið Hanna mín!!

Einnig skellti ég mér í sundlaug Da Westside á laugardaginn eftir vinnu, með Siggu sis....á leiðinni upp á inngangnum helltust yfir mig raunir þess að hafa verið í skólasundi þarna í fjölda ára....oj hvað þetta var mikil pína þegar maður var lítill...að þurfa að drösla sér á staðinn í öllum veðrum til að skjálfa úr kulda á leiðinni ofan í og upp úr lauginni...tala nú ekki um ofan í lauginni sjálfri með orðin"beyja,kreppa..sssjundur sssjamannn!!" í eyrunum allan tíman, alltof harða kúta og risa froskalappir!
En laugin sjálf er nákvæmlega eins og hún var nema að heita pottarnir eru e-ð aðeins öðruvísi...mér gafst nú ekki tími til þess að tjékka þá nánar út vegna pottaóþoli systur minnar. Verð bara að gera það næst;)
Þetta er víst trend laugin í dag og það er hægt að spotta nokkra selebba ef maður hefur augun hjá sér (þ.e. uppi úr vatninu). Líklegast hanga þeir þarna vegna þess hve stutt hún er frá Melabúðinni sem er alveg töffið hjá þotuliðinu þessa dagana...

Þetta var fyrirfólks hornið fyrir þess vikuna...fleiri þotuliðsstaðir verða gefnir upp í næstu viku, fylgist vel með!

Hildur alsjáandi

fimmtudagur, september 16, 2004

Heimsmalin...

Jæja fólk....það er bara ýmislegt að gerast þessa dagana..
-Joakim og Alexandra Dana-royalty bara að skilja. Mér finnst það bara ágætismál ef þau vilja ekki búa saman lengur. Hef líka heyrt að prinsinn sé bara plain boring ásamt því að unna sér best úti í sveit á meðan Alexandra er þessi business týpa frá Japan sem vill vera í aksjoninu. Leiðinlegt fyrir litlu prinsana...ekki nóg með að þeir fæðast inn í einhverja voða royalty fjölskyldu með ekkert privacy heldur eru þeir þá líka skilnaðar börn. Greyin litlu!

Iceland express sendir mér bréf í dag (ásamt öllum öðrum) þar sem þeir þvinga mig til að fara erlendis fyrir 15.des eða þeir taki aftur af mér gjöfina sem þeir voru að gefa mér. Fyrr má nú aldeilis fyrr vera....það er bara pressa á manni að spara nóg saman til að eiga fyrir hóteli,verslunarferðum,uppihaldi og öllu hinu fyrir 5000 afslátt frá þeim. Ekki misskilja mig...þetta er VOÐA rausnalegt hjá liðinu en lets face it...þetta er jú bara enn ein auglýsingabrellan frá fyrirtækinu.
Kannski ekki ástæða til að rjúka upp til handa og fóta þrátt fyrir að þetta hafi verið hin El grandissimo Þjóðargjöf!!

Anywho þá vil ég enn og aftur óska honum pabba mínum til hamingju með daginn í gær...ég gleymdi því ekki...er bara ennþá í afmælisstuði í dag;)

Will og Grace kalla...farvel!

þriðjudagur, september 14, 2004

Klippi klipp

Enn einum *hektískum* skóladeginum lokið. Fór í einn tíma og þar innihélt verkefnið notkun hinna skemmtilegu tóla: skæri, lím(helst UHU), pappírsarkir og reglustrikur. Þriðjudagar rokka!!

mánudagur, september 13, 2004

Og allt hefst a ny enn einu sinni...

Skólinn er bara gera það gott þessa dagana og allt í sínum föstu skorðum á ný.
Skellti mér í miðbæinn á laugardaginn og ég verð að segja að þessi raða-trend er ekki að gera sig fyrir mig. Hvað er málið að þurfa að gera sig fína fyrri part kvöldsisn til að taka þátt í undercover slagsmálum og troðningi við innganna á flesta skemmtistaði borgarinnar seinna um kvöldið. Sumir staðir eru verri en aðrir og ætla ég að nefna Prikið sem dæmi...ertu að grínast, maður gæti haldið að áfengi væri ókeypis inni á staðnum. Það er allt notað, í þessari þvögu sem á víst að heita röð, til að koma sér inn fyrir dyrnar. Við erum að tala um ferlega uppstrílaðar og fínar stelpur í mínipilsum sem nota olboga og hné við að komast inn á þröngasta skemmtistaðinn í bænum. Ég neita því ekki að maður getur skemmt sér hið besta þegar inn er komið en vá...það er ekki eins og þetta sé þess virði að koma heim með ónýtan sköflung og glóðurauga! Þá verður Grand Rokk að duga....það er aldrei röð þar....wonder why?!
Annars áttum við Arna fínt kvöld í þrítugsafmæli með ókunnugu liði þar sem við sungum með kassagítari allt kvöldið og vorum viðstaddar snoðun á vel hærðum karlmanni.

Nóg í bili...Smásálin veður framvegis á hverjum Mánudegi!

laugardagur, september 11, 2004

billinn


billinn
Originally uploaded by eyjan.
Akvad ad senda mynd af fina bilnum minum...(og troelsar)...tha getur folk thekkt mig a gotum Reykjavikur:)

11.september

Jæja nú eru 3 ár síðan að twin tours féllu til jarðar...sem er frekar ótrúlegt því mér finnst eins og þetta hafi bara verið á síðasta ári. Ég er greinilega ekki að ná að halda í við Mr. Time....

Í dag var bíllinn okkar settur í smá viðgerð sem kostaði barasta heilan 25.000 kall sem er þá bara kostanaður vinnunnar, ekki varahluta! Ég vissi það....það borgar sig bara hreinlega ekki að eiga bíl.....en þrátt fyrir það er bíllinn að standa sig vel og það var heldur ekki honum að kenna að gömlu eigendurnir eyðilögðu demparana í honum;)

Í kvöld ætla ég að bregða mér í miðbæ Reykjavíkur og freista gæfunnar í því að finna e-ð fjör. Í þessari krossferð ætlar hún Arna mín að fylgja mér...við munum án efa rokka bænum!! U gotta make fun to have fun,aight!

Svo langar mig að biðja ykkur kæru lesendur...ef einhverjir;)...að segja mér hvað ykkur finnst um þær útlitslegu breytingar og tækilegu uppfærslu sem ég hef verið að dunda mér við síðustu daga.
Hér niðri til hægri er linkur inn á myndasíðu sem ég er að prófa mig áfram með í fagi sem ég er í í skólanum...ekki margar myndir en nokkrar þó...mun setja fleiri þegar ég nenni!

Góða helgi og sjáumst í miðbænum!

fimmtudagur, september 09, 2004

Snilld...þessi varð að komast a netið

A blonde woman goes into a department store and tells the
salesman she wants a pair of pink curtains.
He assures her they have a good selection of pink curtains.
He shows her many kinds an different fabrics of curtains she finally picks
out a pink floral pattern.
The salesman asks, "What size do you need?"
She says, "15 inches."
He exclaims, "15 INCHES!.......What room are they for?"
She says, "It's not for a room, it's for my computer monitor."
The surprised salesman exclaims, "Miss, computers do not need curtains."
The blonde says, "HELLooooooo.........I've got Windows.!!

ja sei sei...

...nú er fyrsta vikan í skólanum bara að verða búin og maður er svona frekar sáttur við fög og kennara.
Ég sé fram á ljúfan og frekar kreatívan vetur, sem er ekki verra, með leir, gifs vatnsliti, blýanta og fleira skemmtó. Ásamt tölvu faginu sem ég er í (við skulum ekkert vera að leggha áherslu á fögin Siðfræði og Talað mál og framsögn í þessu sambandi!).
Á morgun er svo hin margrómaða Laugarvatnsferð Kennaraháskólans.... þar sem á víst að slá upp sveitaballi í Selfossara stíl;) Það verður án ef fjör en ykkar einlæg er ennþá í vafa um hvort hún bruni með þar sem bekkurinn hennar neytar að fara í þetta skiptið...kannski verða þetta bara fyrsta árs nemar og jú jú...það má ekki gleyma skiptinemunum;)
Ákvörðun mín kemur víst bata í ljós á morgun....

Ætla amk. á Dís í kvöld....það er alveg ljóst mál!

--Breaking news--Rétt í þessu var ég að ganga í bíóklúbbinn Felix sem er stór stund í lífi hvers kvikmyndaneytanda. Ég hlakka til frekara samstarfs við meðlimi þessa gæða klúbbs!!

Hafið það nú gott lömbin mín:)


miðvikudagur, september 08, 2004

Myndskilaboð


Myndskilaboð
Originally uploaded by Salka.
eg og eyglo i skolanum

þriðjudagur, september 07, 2004

You know your a geek when....

-You look at a movie trailer and think, "I have that typeface."
-You are wearing ten year old spectacles, made of steel.
-You check your web access_page more than once a day.
-You seriously consider devoting a web page to your computer. (Not the brand, mind you, but the actual computer itself)
-You have more e-mail addresses than you do pairs of shoes.
-You get depressed when you get less than 10 e-mail msgs a day.
-You plan to get two Masters degrees.
-Someone asks you what languages you know, and you reply Upper Slavic, French, Esperanto and C.
-You spend more than 10 minutes contemplating how traffic lights work.
-You design detailed floorplans before moving all of your furniture around.
-If you paid $6000 for your computer and $500 for your car.
-You arrange to get e-mail access no matter where you go.(hmmmmm!)
-You get REALLY excited when people from countries with limited access to the 'net are frequent visitors to your pages.
-You plot to get your grandmother on E-mail.

Jæja hverjir eru svo nördarnir?
Please sign up below...hehe

Tjekk von,tu,fri


Dröfn groovester
Originally uploaded by eyjan.
ákvað að prófa hvort þetta virkar. Get nefilega sent myndir af photosíðunni minni á bloggið...tæknilegt mar!Dröfn á heiðurinn að þessu sinni....

Dagur #2

Ég hef nú ekki hugsað mér að halda skóladagbók en meðan dagurinn snýst að mestu leiti um skólastartið þá verður ekki komist hjá því.
Dagurinn hófst á því að við fengum að vita að tíminn þrívíðformfræði hefði verið fluttur yfir á fimmtudaga þannig að þriðjudagar eru að mestu leyti lausir...fyrir utan 2 tíma í hönnun og mótun hugmynda sem er bara alletiders tími.
So far so good!

Eitt er ég ekki alveg að sætta mig við og það er þessi rigningar fjandi sem er að rennbleyta bæinn hægri vinstri. Á þetta virkilega að þýða rennblautar buxnaskálmar í fyrirlestrum eftir að hafa skoppað létt þessa heillöngu leið frá húsinu mínu, yfir götuna að skólanum. Hildur er ekki hress með málið!

Ég keypti mér nýja þvottavél/þurkara(in one) í gær....æ já hún er víst líka TJ-ar eign...en ég er hörku ánægð með gripinn þar sem ég gerði kjarakaup hjá frænda mínum sem var að flytja, 15.000 á borðið. Þetta þýðir bara að vélin sem við áttum fer beina leið út! Nú þarf maður ekki að skella í sig eyrnatöppum og loka hurðinni vel inn á bað áður en sett er í vél. Gamla vélin á án efa metið í hoppi, hristingi og hávaða -mældum í desibelum;)
Lengi lifi nýji fjölskyldumeðlimurinn Hr. Hotpoint....girls he´s taken!

Another thing þá var ég að gera mér grein fyrir því að það eru BARA 109 dagar til jóla og ekki seinna vænna en að byrja að hlakka til...og íhuga hvað manni vantar í jólagjöf;)

Mer finnst þetta alltaf jafn sniðugt:)



create your own visited country map
or write about it on the open travel guide

mánudagur, september 06, 2004

The student returns....

Fyrsta skóladeginum er lokið og ég verð að segja að ég er bara sátt so far.
Dagurinn byrjaði á léttum tíma í "Talað mál og framsögn" þar sem við fengum að vita um öll þau skipti sem við ættum að standa fyrir framan bekkinn og fara með annað hvort ljóð, vísu, þjóðsögur eða smásögu með tilþrifum og tilfinningu. Kúrsinn endar svo með prófi og eigin fyrirlestri í stóra salnum fyrir framan fjölda fólks um Jónas Hallgrímsson. Skemmtilegt! Ég get látið ykkur vita að af því að mín þarfnast ansi mikillar æfingar til að geta flutt magnþrunginn drama ljóð með ekta tilfinningu!!

Eftir ágætis pásu var skundað á fund kennara sem vildi ólmur kenna okkur siðfræði frá A-Ö. Eftir heimspekilega byrjun og slappelsilegar útskíringar var helmingur nemenda í salnum dottinn út úr einbeittningarfasanum og farin að tæma mailin sín,krota á blað eða leggja sig.
Við lok þessa átakanlega tíma var svo þvílíkur troðningur á fólki við að komast út úr fyrirlestrasalnum á meðan fyrstu ársnemarnir gáfu ekki eftir því þeir ætluðu sér inn í næsta tíma....kyndug stemmning myndaðist og heyrði ég því fleygt að þetta minnti á menningarnótt þarna á ganginum.

Seinasti tími dagsins var svo Listir, menning og menntun sem er fyrsti tíminn sem ég fer í sem ég hef sjálfviljug skráð mig í. Hann hófst á því að það myndaðist stór hópur á að giska 40 manns fyrir utan stofu í skólanum. Allir biðu þar spenntir eftir að kennarinn mætti til að opna stofuna....time went by og eftir slatti langan tíma æpir einhver að við eigum að vera í öðru húsnæði....allur hópurinn skundaði þá niður í listgreinahús og þar beið kellan með 43 stóla í hring. Við sátum og hlustuðum heil lengi og svo enduðum við sem hljómsveit með allskonar græjur syngjandi "There´s a hole in the world to night...."

Anyway a good day*

fimmtudagur, september 02, 2004

þolinmæðin þrautir vinnur allar!

En hvað gerir maður þegar þolinmæðin er ekki fyrir hendi??? Ég sit hérna með alveg bráð leiðinlegt verkefni....að sauma GARDÍNUR! Þetta er alveg rosaleg þolraun fyrir mig og þar af leiðandi virðist ég ekki stefna á "myndalega húsmóður hlutverkið". Eina ástæðan fyrir því að ég legg þetta á mig er að maður getur ekki horft á sjónvarpið á kvöldin fyrir glæilegu sólarlagi sem miðar beint á augasteininn. Maður situr þarna í sófanum og lítur út eins og eskimói þegar maður reynir að píra augun á fréttir kvöldsins eða áhugavert fræðsluefni um e-ð uppbyggilegt...(*hóst*)!
Ég sem hélt að þetta yrði hið léttasta verk með gardínum frá Ikea....heyrðu þar maður þá ekki að stytta, falda OG setja einhvern renning á þetta sem heitit því óskiljanlega nafni Zbrautir.
Ég get sagt ykkur það að ég hef sjaldan blótað gardínum jafn mikið og þegar ég þarf að klippa beina línu til að gardínurnar hangi ekki allar skakkar.....en ég hef s.s. tekið að mér jobbið og verð að klára það. Ég er hálfnuð með eina gardínu af 4 stykkjum. "Hafið verk er hálf klárað" -minnir að það hljómi svona og ég held ég verði að tileinka mér það í þessu tilviki.

Ef einhver á leið um svæði 105 og er æstur gardínu áhugamaður endilega kíkið við eða skiljið eftir adressu svo ég geti sent draslið heim til þín:)

Oh well...aftur í bardagann við títiprjónanna..