mánudagur, september 06, 2004

The student returns....

Fyrsta skóladeginum er lokið og ég verð að segja að ég er bara sátt so far.
Dagurinn byrjaði á léttum tíma í "Talað mál og framsögn" þar sem við fengum að vita um öll þau skipti sem við ættum að standa fyrir framan bekkinn og fara með annað hvort ljóð, vísu, þjóðsögur eða smásögu með tilþrifum og tilfinningu. Kúrsinn endar svo með prófi og eigin fyrirlestri í stóra salnum fyrir framan fjölda fólks um Jónas Hallgrímsson. Skemmtilegt! Ég get látið ykkur vita að af því að mín þarfnast ansi mikillar æfingar til að geta flutt magnþrunginn drama ljóð með ekta tilfinningu!!

Eftir ágætis pásu var skundað á fund kennara sem vildi ólmur kenna okkur siðfræði frá A-Ö. Eftir heimspekilega byrjun og slappelsilegar útskíringar var helmingur nemenda í salnum dottinn út úr einbeittningarfasanum og farin að tæma mailin sín,krota á blað eða leggja sig.
Við lok þessa átakanlega tíma var svo þvílíkur troðningur á fólki við að komast út úr fyrirlestrasalnum á meðan fyrstu ársnemarnir gáfu ekki eftir því þeir ætluðu sér inn í næsta tíma....kyndug stemmning myndaðist og heyrði ég því fleygt að þetta minnti á menningarnótt þarna á ganginum.

Seinasti tími dagsins var svo Listir, menning og menntun sem er fyrsti tíminn sem ég fer í sem ég hef sjálfviljug skráð mig í. Hann hófst á því að það myndaðist stór hópur á að giska 40 manns fyrir utan stofu í skólanum. Allir biðu þar spenntir eftir að kennarinn mætti til að opna stofuna....time went by og eftir slatti langan tíma æpir einhver að við eigum að vera í öðru húsnæði....allur hópurinn skundaði þá niður í listgreinahús og þar beið kellan með 43 stóla í hring. Við sátum og hlustuðum heil lengi og svo enduðum við sem hljómsveit með allskonar græjur syngjandi "There´s a hole in the world to night...."

Anyway a good day*

Engin ummæli: