fimmtudagur, september 09, 2004

ja sei sei...

...nú er fyrsta vikan í skólanum bara að verða búin og maður er svona frekar sáttur við fög og kennara.
Ég sé fram á ljúfan og frekar kreatívan vetur, sem er ekki verra, með leir, gifs vatnsliti, blýanta og fleira skemmtó. Ásamt tölvu faginu sem ég er í (við skulum ekkert vera að leggha áherslu á fögin Siðfræði og Talað mál og framsögn í þessu sambandi!).
Á morgun er svo hin margrómaða Laugarvatnsferð Kennaraháskólans.... þar sem á víst að slá upp sveitaballi í Selfossara stíl;) Það verður án ef fjör en ykkar einlæg er ennþá í vafa um hvort hún bruni með þar sem bekkurinn hennar neytar að fara í þetta skiptið...kannski verða þetta bara fyrsta árs nemar og jú jú...það má ekki gleyma skiptinemunum;)
Ákvörðun mín kemur víst bata í ljós á morgun....

Ætla amk. á Dís í kvöld....það er alveg ljóst mál!

--Breaking news--Rétt í þessu var ég að ganga í bíóklúbbinn Felix sem er stór stund í lífi hvers kvikmyndaneytanda. Ég hlakka til frekara samstarfs við meðlimi þessa gæða klúbbs!!

Hafið það nú gott lömbin mín:)


Engin ummæli: