...ég læt undan MIKLUM þrýstingi frá Örnu og blogga þrátt fyrir að ég sé ekki í stuði.
Dagurinn í dag hófst á fríi og endaði á óvæntu fríi. Ekki slæmt það, sérstaklega þar sem ég átti von á hvorugu fríinu. Það var frí í Listir menning og menntun vegna aukatímans sem við förum í á föstudaginn, sá aukatími gengur út á að sitja í Háskólabíói og hlusta á ljúfa tóna kvikmyndatónlistar.....nei við förum ekki í bíó...heldur á sinfó.tónleika! Maður er barasta farin að hlakka til að vera menningarlegur:)Held að þetta verði mjög skemmtilegt þar sem þeir munu taka slagara eins og gamla góða Singing in the rain, Star Wars og fleira!
Um helgin var ég bara að vinna fös, laug og sunn í blómunum. En brá mér samt í pæjuafmæli hjá Hönnu á laugardaginn...það vara bara fínt...gaman að sjá skvísurnar aftur eftir a long time! Takk fyrir boðið Hanna mín!!
Einnig skellti ég mér í sundlaug Da Westside á laugardaginn eftir vinnu, með Siggu sis....á leiðinni upp á inngangnum helltust yfir mig raunir þess að hafa verið í skólasundi þarna í fjölda ára....oj hvað þetta var mikil pína þegar maður var lítill...að þurfa að drösla sér á staðinn í öllum veðrum til að skjálfa úr kulda á leiðinni ofan í og upp úr lauginni...tala nú ekki um ofan í lauginni sjálfri með orðin"beyja,kreppa..sssjundur sssjamannn!!" í eyrunum allan tíman, alltof harða kúta og risa froskalappir!
En laugin sjálf er nákvæmlega eins og hún var nema að heita pottarnir eru e-ð aðeins öðruvísi...mér gafst nú ekki tími til þess að tjékka þá nánar út vegna pottaóþoli systur minnar. Verð bara að gera það næst;)
Þetta er víst trend laugin í dag og það er hægt að spotta nokkra selebba ef maður hefur augun hjá sér (þ.e. uppi úr vatninu). Líklegast hanga þeir þarna vegna þess hve stutt hún er frá Melabúðinni sem er alveg töffið hjá þotuliðinu þessa dagana...
Þetta var fyrirfólks hornið fyrir þess vikuna...fleiri þotuliðsstaðir verða gefnir upp í næstu viku, fylgist vel með!
Hildur alsjáandi


Engin ummæli:
Skrifa ummæli