fimmtudagur, september 30, 2004

model smjodel!

...ég brá mér í heimsók í gærkveldi á gamlar heimaslóðir...aka.Aflagrandann til að kveðja elskulega forledra mína sem eru í þessum töluðu orðum að sleppa sér á Ítalíu í fríinu sínu. Lucky people!
Það er nú kannski ekkert í frásögur færandi nema að ég datt ofan í þáttinn "Americas next top model"(eða e-ð í þeim dúr) sem er bara ansi áhugaverður fyrir þær sakir að þetta er jú pjúra drama og bull. Ótrúlegt að sjá svona hóp af sætum tilvonandi topmódelum vera svona hrottalega frekar, hallærislegar, vondar við hvor aðra og óþroskaðar. Pabbi minn trúði nú ekki að við systurnar sætum og horfum á þetta rugl en það toppaði allt þegar mamma var mætt við kassann líka og sussaði á hann þegar hann byrjaði að sveia yfir vali á sjónvarpsefni.
Svona eru reality shows merkilegar. Manni er alveg sama um allt þetta frægðarþyrstalið þangað til maður horfir á einn þátt og verður hooked á því að sjá meira....eitt er víst og það er að nú verð ég að sjá næsta þátt!
By the way er einhver sammála mér að Tyra Banks er ein sú væmnasta gella ever þegar hún er að segja hverjir komist áfram og hverjir ekki...það eru bara ekkasogarnir og læti!

Könnun dagsins: Hverjir horfa á þáttinn "Americas next top model?"

B.t.w. Dröfn það er bannað að segja hver vinnur ef þú ert búin að sjá enda þáttinn þarna úti!!

Engin ummæli: