Skólinn er bara gera það gott þessa dagana og allt í sínum föstu skorðum á ný.
Skellti mér í miðbæinn á laugardaginn og ég verð að segja að þessi raða-trend er ekki að gera sig fyrir mig. Hvað er málið að þurfa að gera sig fína fyrri part kvöldsisn til að taka þátt í undercover slagsmálum og troðningi við innganna á flesta skemmtistaði borgarinnar seinna um kvöldið. Sumir staðir eru verri en aðrir og ætla ég að nefna Prikið sem dæmi...ertu að grínast, maður gæti haldið að áfengi væri ókeypis inni á staðnum. Það er allt notað, í þessari þvögu sem á víst að heita röð, til að koma sér inn fyrir dyrnar. Við erum að tala um ferlega uppstrílaðar og fínar stelpur í mínipilsum sem nota olboga og hné við að komast inn á þröngasta skemmtistaðinn í bænum. Ég neita því ekki að maður getur skemmt sér hið besta þegar inn er komið en vá...það er ekki eins og þetta sé þess virði að koma heim með ónýtan sköflung og glóðurauga! Þá verður Grand Rokk að duga....það er aldrei röð þar....wonder why?!
Annars áttum við Arna fínt kvöld í þrítugsafmæli með ókunnugu liði þar sem við sungum með kassagítari allt kvöldið og vorum viðstaddar snoðun á vel hærðum karlmanni.
Nóg í bili...Smásálin veður framvegis á hverjum Mánudegi!


Engin ummæli:
Skrifa ummæli