þriðjudagur, september 28, 2004

Nothing beats tuesdays!

Þetta eru einfaldlega bestu dagarnir. Er í aðeins einum tíma sem er ferlega skemmtilegur: "hönnun og mótun hugmynda". Get sofið út OG gert e-ð sniðugt áður en ég mæti kl.12:50! Geri aðrir betur...

Annars er ég bara að skrifa e-ð af því að ég var orðin leið á seinustu færslunni minni....þegar maður er komin með leið á sinni eigin síðu þá er komin tími til að take sum action.
Ég sé fram á skemmtilega viku þrátt fyrir vinnu um helgina. Ætla að gerast stórtæk og stefna á þjóðminjasafnið á miðvikudaginn þar sem ég heyrði nú að það er víst gratis inn alla miðvikudaga. Auðvitað á maður að nýta sér svona gæða tilboð!! Sundlaugar Rvk eru líka á dagskránni ásamt ýmislegu öðru sniðugu. Hver veit nema að maður drífi sig í heimsókn e-ð út í buskann...allir að taka til hjá sér ´n be ready!

kveðja
Helen Happyline

Engin ummæli: