þriðjudagur, júlí 17, 2007

Sumó í svíþjóð!


Sænska sveitin..ef vel er gáð sést í TJ týna hindber af trjánum við veginn


í svíþjóð getur maður keypt "skipper brød"...með akkeri á!



ég lét sænska grasið finna fyrir íslenskum kröftum



TJ reyndi að veiða elgi úr veiðistólnum sem við fundum...en þarf víst að skifta prikinu út fyrir byssu ef svo á að vera.


Svo var slakað á "the swedish way"

Ein frá "Cowparade" í viðbót



hmmmm....kökubelja!

Nýji fjölskyldumeðlimurinn!




Bjóðum við hann hjartanlega velkominn...nú erum við þrjú á ný!



En um leið kvöddum við gamla bíllinn...
-megi hann hvíla í friði.

sunnudagur, júlí 15, 2007

Að gefa og þiggja...

Svokölluð "klukkblogg" er della sem kemur upp öðruhvoru..skemmtilegt fyrirbæri..en þó örlítið leiðigjarnt því oftar sem maður þarf að taka þátt. Þar sem ég hef rennt yfir þó nokkur klukkbloggin og fengið að vita hitt og þetta misáhugavert um náungann þá ákvað ég að henda inn nokkrum innhaldslausum upplýsingum um mig.

1. borða helst ekki fiskmeti
2. finnst ekkert leiðinlegra en að horfa á hryllingsmyndir
3. get haft ansi fjörugt ímyndunar afl (þegar mér hentar)
4. finnst rigning þreytandi
5. bíð spennt eftir harry potter bókinni og myndinni
6. sakna fjallanna og hafsins
7. finnst gaman að hjóla
8. langar í snúð


Þabbaraþa!

laugardagur, júlí 07, 2007

Hróa-Hildur

Það var ógeðslega blautt, leðjótt, illa lyktandi, skítugt og rosa stuð!


Nýju hreinu stígvélin mín í bílnum á leið á hátíðina!


Nýju stígvélin mín komin á hátíðina!!


Flestir gáfust bara upp á því að reyna að halda sér þurrum.

Hrói ´07 stemmning





þriðjudagur, júlí 03, 2007

þarna kom það...

...þessvegna hefur rignt svona mikið hjá okkur!
Þeir hafa fengið sólin mína!
Grrrr...

mánudagur, júlí 02, 2007

þjoðhatiðar veðurfar....


....meiri RIIIIIIIIGNING í Köben!!

Bráðum kaupi ég bara miða heim til að fá smá lit á kroppin.
ég vorkenni Hróarskeldu fólki mjööög mikið þessa dagana...þó að það sé "a slim chance" að ég fái armband til að komast inn á hátíðina. Ef svo fer ætla ég að reyna að kaupa mér fín stígvél!!

laugardagur, júní 30, 2007

Lífið er lotterí

Ég er búin að kaupa miða...þetta gæti sko vel fjármagnað allar íslandsheimsóknirnar mínar í framtíðinni..

allir að krossa fingur fyrir mig!

fimmtudagur, júní 28, 2007

Cowparade komin til Køben

Ég hef fundið þessar kýr á ferðum mínum um Kaupmannahöfn. ég set inn fleiri myndir ef ég rekst á fleiri....im on a mission.


Kúin í grænlenska þjóðbúningnum...á grænlenska torginu þar sem atvinnulausu grænlendingarnir safnast saman til að drekka bjór allan daginn. Skemmtilegt að kúin hafi leytað uppi landsmenn sína.


Hef ekki enn fundið út hvað þessi kúa-uppstilling á að mynda....en ein kúin er græn önnur með hreindýrahorn og síðasta kúin er með götukort af bæ prentað á sig....

miðvikudagur, júní 27, 2007

RIIIIIIIIIGNING i Köben....

...in case you were wondering!!!
Endalaus bleyta...ég er sko ekki hrifin...og ég get sagt ykkur að Hróarskeldur-farar eru heldur ekki hressir med urkomuna.
Svo er rigningin í Danmörku öðruvísi en heima...heima er alltaf rok med rigningunni svo maður verður aldrei almennilega gegnblautur(amk ekki í minningunni)....hér í Danmörku hættir rigningin ekki fyrr en þú ert orðin eins og rolla í sturtu. Sko komið nóg af vatni segi ég bara.

Ég vil nota tækifærið og óska litlu Katrínu Ingu til hamingju með nafnið sitt sem hún fékk síðast liðin sunnudag. Hlakka mikið til hitta skvísuna og fá að ávarpa hana með nafni við tækifæri...og jafnvel kasta kveðju á foreldrana í leiðinni...til hamingju Birna og Andri.

Nú haldiði ábyggilega að við séum rugluð...en ég og TJ vorum í gær að leggja loka hönd á ÞRIÐJU íbúðina sem við höfum gert upp á tæplega ári. Amma TJ átti s.s. seinustu íbúðina sem fékk "TJ og HH extreme makeover". Við erum að tala um 80fm íbúð sem fékk málingu á allt....hurðir,veggi, eldhúsinnréttingu, gólflista og allan pakkann. Svipað dæmi og það sem við gerðum við nýju íbúðina okkar sem við tókum í gegn fyrir ca. 2 mánuðum síðan.
ÉG VIL EKKI SJÁ MÁLINGAPENSIL AMK. NÆSTU 6 MÁNUÐINA....og helst lengur! Við erum reyndar orðin svo svakalega vön að það kostar morðfjár að fá okkur í vinnu...

Sigga sis kemur um helgina til mín ásamt stelpuhjörð á leiðinni á Hróa.....það er ekki laust við að mig langi með þó ég nenni engan vegin að vera í tjaldi(sérstaklega ekki í rigningu..hef prófað það).

Annars er ég bara að vinna og ánægð með það....eða verð ánægð um leið og þetta veður breytist til hins betra!

Jæja nóg í bili

laugardagur, júní 23, 2007

Skolinn buinn....syningin byrjud

Seinasta verkefnið í skólanum var að hanna eitthvað sniðugt með einhvern hlut frá frilandsmuseet sem "inspiration". Frilandsmuseet er eins og hið íslenska Árbæjarsafn með fullt að fínu og sniðugu gömlu dóti.
Sýningin er fram í miðjan október...láttu sjá þig!:)



Uppstilling á safninu


Inspirationin...


Pappakrukkan mín


Sýningaskráin...


Sýningaskráin...!

sunnudagur, júní 17, 2007

föstudagur, júní 15, 2007

Afmælisbarn dagsins er tvitugt!!!!



Til hamingju Sigga Gyða!

mánudagur, júní 11, 2007

Hvað a maður að gera...

...í svona hita?!!
minnst 30 gráður í sól(ef ekki meira) og kannski þægilegar 25 gráður í skugga.
Rugl!!!!!!
Íslendingar eiga bara að vera þakklátir fyrir norðanátt og ferska sjávargolu...því hér stendur loftið í stað og haggast ekki!
Mig langar bara heim til klakans þegar svona er...

Ég er loksins komin heim í skuggsæla íbúðina eftir að hafa verið í gufubaði í skólanum. Hendurnar á manni verða klístaraðar af rakanum og það er bara óþægilegt að taka sér neitt fyrir hendur.
Þessvegna fór ég bara heim og borðaði ís!

Það er stelpa niðri í garðnum við húsið okkar í bikini....datt í hug að skella mér í sund-outfittið og fara með henni í sólbað en áttaði mig svo á að þetta væri sólstingurinn að gefa mér kreisí hugmyndir...


Ætla að fara að stinga hausnum inn í ískáp!

föstudagur, júní 08, 2007

Eigum við e-ð að ræða.........

......30 gráður og heiðskírt?

Tja...

fimmtudagur, júní 07, 2007

Sumarlegar sumarpælingar...



Tími íssins er kominn!!!!!!!!!!!!!

Hér er mega gott veður, 25 + gráður og heiðskírt...auðvitað verður maður að monta sig aðeins þegar maður er það heppin að lenda í sól og blíðu.
Haha!

Ég byrja í nýrri sumar/skólavinnu á morgun. Ég verð skrifstofu-dýr hjá "Kort og matrikel styrelsen"( aka. Landmælingar).
Ég er alveg spennt að byrja....en hef þó á tilfinninguni að þegar byrjenda-stressið er liðið hjá þá verði þetta svoldið "boring"...en ég verð víst bara að bíða og vona að starfið komi mér á óvart.
Mitt starf verður semsagt að sækja fram kort og mælingar í tölvunni eftir pöntunum frá fyrirtækjum og einstaklingum og annað þesslegt.
-Mötuneytið þarna á að vera snilld....og það er alltaf stóóór plús!

Skólinn klárast ca. 18 júní og þá geta gestirnir byrjað að detta inn....amk hafa þeir sem ekki hafa eignast barn innan síðustu 3 mánaða enga afsökun!

Getur einhver sagt mér afhverju Paris Hilton er laus úr fangelsi eftir aðeins 3 daga af 23 daga dómi?? Hvað varð um þá fáránlegu fyrirætlun hennar um að hugsa sinn gang og bæta heiminn?? Skil ekki svona.....

Ég er enginn prófarkalesari.....EN ég tel mig stundum geta skrifað betri íslensku en þeir sem starfa við vefsíðu mbl.is. Það pirrar mig frekar mikið að lesa grein þar sem illa er farið með orðatiltæki, skorur er á orðum inni í setningum og að ekki sé minnst á stafsetningarvillurnar. Ég ætla ekki að koma inn á staðreyndarvillur...það er allt önnur ella!

Jæja...nóg í bili af röfli....þó að nýjasta markmið mitt sé að breyta þesu bloggi í tilgangslaust röfl um hitt og þetta (við skulum ekki fara út það hvort það hafi ekki verið það fyrir)

Adios....og góða ferð allt fólkið sem er á leiðinni í frí í framandi löndum.

mánudagur, júní 04, 2007

Islandsferð

Jæja..þá erum við komin aftur til DK.
Frábær ferð...
Stúdentspartí, eitt stykki trúlofun, vina/vinkonuhittingur og mikið borðað af góðum mat.

Allt í allt yndisleg ferð!

mánudagur, maí 28, 2007

timinn flygur...

...nú styttist all verulega í að ég (við) skreppi heim.
Í mjööööög stutta heimsókn. Í raun næ ég bara að að anda aðeins að mér ferska loftinu, borða góðan mat í tilefni af stúdentsveislu/20. afmæli litlu systur og drekka nokkur glös af íslensku vatni....áður en ég hoppa upp í vél aftur.
En ég ætla mér svooooooo að njóta þessara ÖRFÁU daga á klakanum með fjölskyldu og vinum.

Cant wait!!!!!!


-ef ég skipulegg tíma minn rooooooosalega vel næ ég kannski að dýfa litlu tá í Neslaugina áður en ég fer *tilhlökkun*

föstudagur, maí 25, 2007

My big big little sis



Í dag verður Sigga Gyða stúdent frá Kvennó!

Til hamingju með daginn mín kæra!

þriðjudagur, maí 22, 2007

Babygirl!



Elsku Birna og Andri innilega til hamingju með litlu skvísuna!
Get ekki beðið eftir að heilsa upp á hana, halda á henni og segja henni útlanda-ævintýri um Hildz frænku!

30 mínus 22

mánudagur, maí 21, 2007

Yndislegir desertar....




Ragna vinkona var í heimsókn hjá okkur um helgina og við brölluðum ýmislegt í góða veðrinu og fórum meðal annars á veitingastaðinn Reef n Beef og fengum okkur þessa líka geggjuðu eftirrétti....

Róbert Alvar: Til hamingju með töffara nafnið :)

þriðjudagur, maí 15, 2007

föstudagur, maí 11, 2007

Luxuslif a nyja staðnum..

Jæja helgin framundan..það verður æði.
Skilaði "viku"ritgerðinni minni í gær, sem ég þurfti að gera samhliða flutningunum. Nú sjáum við fram á smá afslöppun um helgina, sem inniheldur meðal annars uppsetningu skápa og annað þessháttar...og vonandi tökum við upp úr allra seinustu kössunum. Ég sé að það eiga að vera 18 gráður hér á sunnudaginn og ég stefni á að prófa garðinn við húsið okkar eða jafnvel Frederiksberg have fyrir smá sólbað.

Annars langar mig bara að segja til hamingju við alla nýbökuðu foreldrana sem spretta upp hægri vinstri þessa dagana. Sólveig og Georg fengu strák í seinustu viku og í gær eignaðist Carlos vinur okkar og konan hans Karina litla stelpu. Nú eru bara tvær eftir...Birna og Julie (frænka Troelsar)..ég veit að annað þeirra kemur í næstu viku og verður strákur ;)

Ætla ekki að skrifa neitt um Júróvision...maður nennir varla að horfa á þetta lengur...hvernig væri að starta bara nýju batteríi - einhverju svona "Skandivision" Fyrir Ísland, Danmörku, Svíþjóð, Noreg, Finland, Grænland og Færeyjar...kannski Bretland og írland með? Það væri gáfulegra..því að tónlistasmekkurinn er ansi mismunandi eftir því hvort þú kemur frá suður eða norður Evrópu.

Hmmm..ætlaði að skrifa e-ð meir...en þar sem ég er að spjalla við Dröfn á msn...þá er ég víst búin að gleyma því.
Svo..nóg í bili.
Góða helgi!

miðvikudagur, maí 09, 2007

Kosningar nalgast...

Kosningar smosningar....
..er ég að missa af einhverju í sambandi við kosningabaráttuna heima?
Hér er í danaveldi er lítið um að íslensku flokkarnir kynni sig og sínar stefnur...kannski ættu þeir bara að gera það.

Er fólk búið að ákveða sig?
-ég er sko ekki að spyrja um HVAÐ fólk ætlar að kjósa heldur HVORT að fólk sé búið að taka ákvörðun...

Missi af... :/

Mig langar svakalega að sjá Risessuna á laugardaginn!!

laugardagur, maí 05, 2007

Erum loksins flutt!!

...alla leið frá Københavns kommune til Frederiksbergs kommune...
Það var sko ekkert grín að flytja draslið upp á fimmtuhæð...!

Erum alveg búin á því..!

miðvikudagur, maí 02, 2007

Hmmf...

Ég á að byrja að skrifa ritgerð í dag...ég hef viku...sem er svo sem ágætt.
Ef ekki væri fyrir það að úti er sól og blíða alla daga með upp undir 20 stiga hita!
Og svo vill svo til að við ætlum okkur að flytja á laugardaginn sem felur í sér pökkun dagana á undan!

Er einbeitningin í lagi?...Er ég að sökkva mér ofan í fræðilegar bækur og skemmtilegheit á milli kassana?
Nei...eða...það gengur amk. ansi illa!

Geri vonandi betur á morgun(fingers crossed!)

Ég er samt búin að vera dugleg að setja drasl í kassa undanfarna daga...skrítið að vera að pakka aftur því það er innan við ár síðan ég tók allt draslið upp úr kössum. En ég er sátt þar sem nýja íbúðin er draumur miðað "gamla" pleisið sem er þó ekki al slæmt.

Jæja...víst kominn tími til að hætt að tefja tímann...

laugardagur, apríl 28, 2007

Sneak preview....




Flutningur planaður á laugardaginn, þar sem við erum aðeins á undan áætlun með málunina. Það er ekki að spyrja að dugnaðinum ( og það þó ég segi sjálf frá)!
Herbergið á myndinni er vinnuherbergi/gestaherbergi.

Það stefnir í að Ragna ætli að næla sér í titilinn "fyrsti gesturinn" á nýja staðnum, þar sem hún ætlar að koma til Köben um miðja maí.

Guðrún Anna og Óli Róbert-til hamingju með soninn!
Jana og Einar-til hamingju með dótturina!

Svo er stutt í Birnu og Andra dóttur/son.....allt að gerast þessa dagana!

mánudagur, apríl 23, 2007

Bissi tæmes




Þessa dagana erum við yfirleitt í nýju íbúðinni að mála og ganga frá hinu og þessu.
Ég er nú reyndar líka í skólanum og þar vorum við að byrja nýtt verkefni, sem reyndar varir bara í viku, en því meiri er pressan að ná að vinna verkefnið og slaka ekki á herbergja máluninni á meðan!

Við erum s.s. búin að fá kall til að slípa gólfin okkar og lakka...lítur ansi vel út.
Baðherbergiskall kemur á morgun og slípar steingólfið þar
svo erum við Tj í málingar-liðinu sem vinnur hratt...enda í æfingu eftir seinasta sumar;)
Þetta er allt að gerast...og stefnir í eðal íbúð og jafnvel flutning eftir ekki svo langan tíma.

Ætla að reyna að henda inn myndum við tækifæri.

p.s. bloggin fjalla ekki um annað þegar maður stendur í svona framkvæmdum. Þið verðið bara að þola það:)

fimmtudagur, apríl 19, 2007

Jeij!

Við höfum keypt svaka fína íbúð á Frederiksberg.
Jeij!
Við munum að öllum líkindum flytja eftir 3 vikur.
Jeij!
Við munum búa á fimmtu hæð.
Jeij!
Fengum lyklana afhenta á mánudaginn var.
Jeij!

Við erum ferlega ánægð með gripinn og það ríkir mikil tilhlökkun í kotinu.
Jibbí jæ jeij


Gleðilegt sumar!

mánudagur, apríl 16, 2007

Könnun


Ef ég væri að fara að kaupa mér litla og handhæga stafrænamyndavél hvaða tegund ætti ég að kaupa mér og hversvegna?
(s.s. þeir sem hafa góða reynslu af ákveðinni tegund eða týpu endilega deilið upplýsingunum)

sunnudagur, apríl 15, 2007

Ny-yrði


Já ég rakst á blogg þar sem það kom fram að íslendingar virðast hafa íslenskað orðið ipod.
Sem er frábært framtak.
Héðan í frá mun ég líka kalla ipodinn minn "lagasvamp".
Mér finnst það sætt og skemmtilegt og töff orð.

-ég er farin út að labba með lagasvampinn minn í góða veðrinu!

fimmtudagur, apríl 12, 2007

Paskanir voru godir

-Fórum á tónleika með Timbuktu.
-Nældum okkur í eitt stykki íbúð
-Sumarbústaðarferð til Rørvig þar sem við rúlluðum mini-páskaeggjum og tókum ferju fram og til baka:)
-Sumarbústaðarferð til Svíþjóðar þar sem við stoppuðum á fullt af flóamörkuðum á leiðinni, löbbuðum í sænskum skógi og
læstumst aðeins inni á sænskri formúlu-bílabraut.
-höfðum það rosa gott.
-átum páskaeggin á núll komma einni
-kláruðum að mála og ganga frá því sem þurfti til að vera formlega búin með íbúðina okkar núverandi.


Nú er skólinn byrjaður aftur og ég er komin á kaf í heimasíðugerð.
Sólin er komin...og í dag á að vera gott veður með 13-18 gráðu hita.
Og afhverju sit ég þá hérna og hangi tölvunni?
Góð spurning

Hafið það gott peeps!

mánudagur, apríl 09, 2007

Paskaeggin 07



Þessi glæsilegu súkkulaðiegg voru innflutt til Danmerkur frá Íslandinu góða af mínum elskulegu foreldrum.
Við erum búin með annað þeirra og hitt á ekki von á góðu.

Mmmm páskaegg lengi lifi!

miðvikudagur, apríl 04, 2007

PASKAFRIIIIIIIIIIIII!




vívíví!

mánudagur, apríl 02, 2007

Malmø-ferð

Skruppum til Malmø á laugardaginn var og höfðum það næs í góða veðrinu með nokkrum félögum úr höjskólanum.
Áttum góðan dag sem byrjaði á smá túristaferð að "Turning Torso" byggingunni og bryggjuhverfinu í kringum hann...fengum alveg frábært veður...þetta var alveg eins og að vera í útlöndum...*blikk blikk*;)



"Turning Torso" turninn up close.


Ég og svíarnir mínir Amelie, Åsa og Christina.


TJ og turninn góði



Turninn frá öðru sjónarhorni


Smá mynd frá nýbyggðu bryggjuhverfinu í Malmö

fimmtudagur, mars 29, 2007

Litið að gerast her i landi vors og bloma...

...er samt á fullu í skólanum. Litafræði er viðfangsefnið þessar vikurnar. Mikið hægt að læra í þeirri deild..amk. meira en mann grunar. Það krefst stundum mikillar þolinmæði þó þetta sé áhugavert og skemmtilegt.

Það er blessunarlega gott veður hjá okkur núna sem er bara frábært því kuldaskræfan ég er mikill hitatölu-aðdáðandi. Fólk er að komast í sumar stemmningu og jafnvel farið að tala um að fara á ströndina og að grilla.

Annars er ég bara að kvitta fyrir mig núna til að halda lífi í síðunni. Dettur ekki neitt sniðugt í hug sem gæti verið áhugavert fyrir ykkur að lesa og þar af leiðandi ætla ég bara að koma aftur við seinna.

p.s.
Harpa...þið hefðuð nú geta stoppað við í kaffi hjá mér fyrst að þið fjölskyldan voruð á svæðinu hvort sem er;)
Guðrún R....já það eru breytingar frammundan í íbúðarmálum. Þið Ingiber verðið bara að drífa ykkur yfir til okkar til að fá updeit.

Góða helgi mín kæru:)

sunnudagur, mars 25, 2007

Frjals a ny...

...ég er risin úr rekkju!
Eftir 5 daga af algjöru lystarleysi, orkuleysi,magakveisu og ömurlegum hita hef ég loksins loksins loksins komist aftur í heim lóðréttra.
Þessi leiðindar veikindi gáfu mér einungis um það bil 2 daga í samveru foreldra minna sem höfðu tekið sér tíma til að heimsækja mig hingað í Baunaland. Talandi um góða tímasetningu hjá mér!!!
Seinasti dagurinn þeirra var í dag og fengum við geggjað vorveður í bíltúrnum okkar...ekki frá því að maður hafi fengið smá lit.

Framundan mikið að gera í skólanum fram að páskafríi. Ég geri ráð fyrir að hluta af páskafríinu verði varið í sumarhúsum hér í Dk og líka e-ð í Svíþjóð.

Íbúðarmál eru í vinnslu og á góðri leið og læt ég vita meir með það þegar við höfum fengið pappíra í hendurnar.

Ást og hamingja

Fyrrverandi sjúklingurinn...sem er laus við pestina....jeij!

fimmtudagur, mars 22, 2007

....

veikindi->rúmliggjandi
heimsókn foreldra

skrifa e-ð sniðugt við fyrsta tækifæri.

sunnudagur, mars 11, 2007

Vorboðinn...

ég ætla að leyfa mér að segja að vorið sé á næsta leyti hér í Köben( þó að svona yfirlýsingar hafi yfirleitt ekki reynst vel!)
Sólin er farinn að sjást meira og getur maður greint örlítinn hita í loftinu. Þó maður hlaupi ekki niður á strönd með grillið undir vinstri og bjórinn í hægri þá er þetta vissulega í áttina.

Maður verður alltaf svo brjartsýn og jákvæð þegar sólin kemur og þar af leiðandi erum við farin að dunda okkur við íbúðarpælingar. Erum með augastað á tveimur þó að önnur þeirra sé að slá meira og meira í gegn hjá okkur.
Ákvörðun verður tekin á allra næstu dögum.

Vonandi er vorið líka að hressa ykkur við þarna heima!
Skrifa meira fljótlega

miðvikudagur, mars 07, 2007

Oeirðirnar minnka

...og vonum að það haldist. Það er eitthvað skrítið við að þurfa að halda sig frá ákveðnum bæjarhlutum til að lenda ekki í vandræðum. Maður getur til dæmis ekki ímyndað sér að svo gerðist á Íslandinu, burt séð frá þeirri staðreynd að það er ekki til mannafl í almennilegar óeirðir á Klakanum.

Hér er rigning og grátt veður. Ekkert til að monta sig af...

Ég er í skólanum eins og venjulega og áfram heldur strigaskós verkefnið mitt. Skil í næstu viku. Set kannski inn sýnihorn hérna þegar ég er búin.

Ma og pa ætla að heiðra mig með nærveru sinni í lok mars og er ég hæst ánægð með það. Þau munu í leiðinni halda upp á 25 ára brúðkaupsafmæli og ég mun halda upp á 25 ára skírnar-afmæli( sem er glænýr hátíðardagur sem ég fann upp á)
-25 ár sem Hildur...ekki amarlegt afrek það!

Jæja....nóg í bili!

fimmtudagur, mars 01, 2007

Dagurinn i dag...

Baráttan um Ungdomshuset á Nørrebro í dag.





miðvikudagur, febrúar 28, 2007

Barnatimabilið er hafið...

....í morgun eignaðist ég litla sæta frænku á Íslandinu góða.
Þriðja pæjan í þeirri fjölskyldunni. Til hamingju með það!

Þetta þýðir bara eitt og það er að nú get ég farið með góðri samvisku og ærinni ástæðu í barnadeild H&M og aðrar búðir og skoðað/keypt allt það sæta og krúttilega þar.
Frá og með deginum í dag byrjar s.s. "fæðingartímabil" sem mun standa fram á vor, með síðustu fæðingar í maí.

Æðislegt...ætli það megi flokka þetta undir vorboða?

mánudagur, febrúar 26, 2007

Tja...

..veit ekki af hverju ég er að skrifa hérna núna...því það er svo sem ekkert í fréttum þannig séð.

Snjórinn er að fara sem er gleðiefni...veit ekki hversu ánægð ég er með rigninguna sem tók við en það er amk. aðeins hlýrra hérna núna. Svo eru danirnir skemmtilegri þegar þeir eru ekki að panikka yfir einhverjum hálfum meter af snjó..eins og þeir hafa gert seinustu daga.

Guðrún Ragna frá Århus kíkti til mín í eins dags/kvölds heimsókn á laugardaginn og ég brá mér á djammið með henni og vinkonum hennar. Fínasta skemmtun...en við fengum staðfest enn og aftur að maður á ekki að taka leigubíl í Köben!! Barasta aldrei...! Hvar annastaðar lendir maður í því að leigubílstjórarnir neita að taka þig upp í vegna þess að þú sért annaðhvort ekki að fara í rétta átt/hverfi eða það ferðin þangað taki of stuttan tíma!??! Hneyksli!! Hjól er það eina sem gildir í þessum bæ og hananú.

Næsta föstudag er grímuball/búningapartý í skólanum mínum þemaið er víst Balkan svæðið og þar sem ég tel mig ekki eiga neitt Balkandót(er heldur ekkimeð það á hreinu hvaða "look" það er) þá ætla ég bara að finna einhvern annan búning.
Þeir búningar sem ég á/hef aðgang að eru eskimóabúningur(maður tók sig vel út í honum í dimmissioninu hehe) eða skipstjórabúningur í yfirstærð. Allar hugmyndir að frekar "auðveldum" en mega töff búningum eru vel þegnar...

All the best
frá Kbh!

miðvikudagur, febrúar 21, 2007

Snjor i Köben...again



jæja...mín er hætt að aumka sér yfir aðstæðunum...nú er bolludagurinn og sprengidagurinn líka búnir:)
Veikindin eru líka aðeins betri...fór í skólann í gær og skellti mér í langan hjólatúr og í heimsóknir eftir skóla til að komast aðeins út úr húsi. Ég hef eitthvað farið mér of geyst þar sem ég er aftur slöpp í dag...þó ekki rúmliggjandi sem betur fer...nóg komið af því.

Í dag byrjaði að snjóa í Danmark...blautur snjóir sem samt nær að festa...úff...og ég sem var að veðja á að sumarið væri á næsta leiti. Ég verð illa svikin ef það verður ekki komin sól og blíða í mars;)

kv.
Frk. Vongóð

mánudagur, febrúar 19, 2007

Gleðilegan Bolludag!

Mér leiðist...er veik heima og er búin að gera allt sem hægt er að gera þegar maður er veik...horfa á sjónvarp, lesa bók, vera í tölvunni og meira að segja að gera smá hreingerningu..úff..það er ekkert leiðinlegra! Sérstaklega þegar ég er líka búin að hanga heima hálfa helgina vegna einhvers slappleika.

Jæja nóg af röfli...bolludagurinn er í dag...engar bollur hér...hmmmf...ekki var þetta betra. Og svo er sprengidagur á morgun...

Æ ég hætti bara hér...

föstudagur, febrúar 16, 2007

Southpark Hildz...




Þið getið búið til ykkar eigin hér