fimmtudagur, júní 07, 2007

Sumarlegar sumarpælingar...



Tími íssins er kominn!!!!!!!!!!!!!

Hér er mega gott veður, 25 + gráður og heiðskírt...auðvitað verður maður að monta sig aðeins þegar maður er það heppin að lenda í sól og blíðu.
Haha!

Ég byrja í nýrri sumar/skólavinnu á morgun. Ég verð skrifstofu-dýr hjá "Kort og matrikel styrelsen"( aka. Landmælingar).
Ég er alveg spennt að byrja....en hef þó á tilfinninguni að þegar byrjenda-stressið er liðið hjá þá verði þetta svoldið "boring"...en ég verð víst bara að bíða og vona að starfið komi mér á óvart.
Mitt starf verður semsagt að sækja fram kort og mælingar í tölvunni eftir pöntunum frá fyrirtækjum og einstaklingum og annað þesslegt.
-Mötuneytið þarna á að vera snilld....og það er alltaf stóóór plús!

Skólinn klárast ca. 18 júní og þá geta gestirnir byrjað að detta inn....amk hafa þeir sem ekki hafa eignast barn innan síðustu 3 mánaða enga afsökun!

Getur einhver sagt mér afhverju Paris Hilton er laus úr fangelsi eftir aðeins 3 daga af 23 daga dómi?? Hvað varð um þá fáránlegu fyrirætlun hennar um að hugsa sinn gang og bæta heiminn?? Skil ekki svona.....

Ég er enginn prófarkalesari.....EN ég tel mig stundum geta skrifað betri íslensku en þeir sem starfa við vefsíðu mbl.is. Það pirrar mig frekar mikið að lesa grein þar sem illa er farið með orðatiltæki, skorur er á orðum inni í setningum og að ekki sé minnst á stafsetningarvillurnar. Ég ætla ekki að koma inn á staðreyndarvillur...það er allt önnur ella!

Jæja...nóg í bili af röfli....þó að nýjasta markmið mitt sé að breyta þesu bloggi í tilgangslaust röfl um hitt og þetta (við skulum ekki fara út það hvort það hafi ekki verið það fyrir)

Adios....og góða ferð allt fólkið sem er á leiðinni í frí í framandi löndum.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Iss verið að monta sig bara, hér er bara búið að vera skýjað, rok og smá rigning. En það er allt að lagast held ég... gott veður í dag og spáð góðu held ég framundan! En þetta er orðið eitthvað veðrakomment hjá mér... Líst vel á þessa vinnu hjá þér og jú alltaf gott þegar það er gott mötuneyti ;)

Kv. Birna