..veit ekki af hverju ég er að skrifa hérna núna...því það er svo sem ekkert í fréttum þannig séð.
Snjórinn er að fara sem er gleðiefni...veit ekki hversu ánægð ég er með rigninguna sem tók við en það er amk. aðeins hlýrra hérna núna. Svo eru danirnir skemmtilegri þegar þeir eru ekki að panikka yfir einhverjum hálfum meter af snjó..eins og þeir hafa gert seinustu daga.
Guðrún Ragna frá Århus kíkti til mín í eins dags/kvölds heimsókn á laugardaginn og ég brá mér á djammið með henni og vinkonum hennar. Fínasta skemmtun...en við fengum staðfest enn og aftur að maður á ekki að taka leigubíl í Köben!! Barasta aldrei...! Hvar annastaðar lendir maður í því að leigubílstjórarnir neita að taka þig upp í vegna þess að þú sért annaðhvort ekki að fara í rétta átt/hverfi eða það ferðin þangað taki of stuttan tíma!??! Hneyksli!! Hjól er það eina sem gildir í þessum bæ og hananú.
Næsta föstudag er grímuball/búningapartý í skólanum mínum þemaið er víst Balkan svæðið og þar sem ég tel mig ekki eiga neitt Balkandót(er heldur ekkimeð það á hreinu hvaða "look" það er) þá ætla ég bara að finna einhvern annan búning.
Þeir búningar sem ég á/hef aðgang að eru eskimóabúningur(maður tók sig vel út í honum í dimmissioninu hehe) eða skipstjórabúningur í yfirstærð. Allar hugmyndir að frekar "auðveldum" en mega töff búningum eru vel þegnar...
All the best
frá Kbh!


3 ummæli:
ohh leiðinlegt að hafa ekki getað djammað með þér og Guðrúni, þið eruð alltaf svo hressar í glasi(og jú líka ekki í glasi :)
Júlía Tan
ertu ekki að grínast með leigubílana? helvítis rugl.
annars kenndi ein ákveðin ung falleg kona búsett í dk ungri fallegri konu í heimsókn í dk að fara allra sinna ferða í metró.
kannski var það ekki í boði en ég mátti til með að sýna þér að þú kenndir mér að metró er málið.
;)
p.s myndir fyrir aðdáendaklúbb chrissy emm eru á leiðinni..einhver vandræði með bloggerinn!
kv. harps.
Mér finnst þetta nú bara vera fullt af fréttum :)
En já, maður verður að muna þetta með leigubílana þegar maður fer til Köben!
kv. Birna
Skrifa ummæli