mánudagur, febrúar 19, 2007

Gleðilegan Bolludag!

Mér leiðist...er veik heima og er búin að gera allt sem hægt er að gera þegar maður er veik...horfa á sjónvarp, lesa bók, vera í tölvunni og meira að segja að gera smá hreingerningu..úff..það er ekkert leiðinlegra! Sérstaklega þegar ég er líka búin að hanga heima hálfa helgina vegna einhvers slappleika.

Jæja nóg af röfli...bolludagurinn er í dag...engar bollur hér...hmmmf...ekki var þetta betra. Og svo er sprengidagur á morgun...

Æ ég hætti bara hér...

5 ummæli:

Unknown sagði...



bara svona til að reyna að bæta skapið þá skal ég segja þér það að það er erfiðast í heimi að vera veikur og þurfa líka að hugsa um börnin sín. Mér finnst þú heppin að hafa getað gert þetta allt í veikindum þínum. Við þessar með börnin þurfum að skipta á bleyjum og snýta þó við séum að drepast sjálfar. Svo hef ég líka lent í að vera með gubbupest og börnin líka á sama tíma... ekki gaman...

...svo ekkert væl, þú ert heppin að ná að horfa á sjónvarp...

en ég skal ekki vera alveg svona leiðinleg. Þú átt alla mína samúð Hildur mín. Það er hundleiðinlegt að vera veikur.

... annars er það nýjasta af mér að ég fékk nóg og skilaði inn uppsagnarbréfi, veistu nokkuð um vinnu fyrir mig????

kv
hildurs

Nafnlaus sagði...

Stórt knús til köben!! Vonandi líður þér betur í dag :) kv. Birna

Nafnlaus sagði...

hér er e-ð til að stytta þég stundirnar :)
http://www.tv-links.co.uk

þ.e. ef þú ert ekki búin að tjékka á þessu nú þegar.

.:Eyjan sagði...

Já Hildur mín...ég skil vel að ég eigi nú ekkert að vera að aumingjast þetta...en stundum kemst maður bara ekki hjá því;)
Gott að þú tókst á málinu.Hvað ætlaru að fara að gera nú eftir að þú kemst í "frí"?

Takk stelpur mínar...ég þarf að skoða þessa síðu arna..þekki hana ekki:)

Nafnlaus sagði...

ég var sjálf að uppgötva hana í gær og sá mér til mikillar gleði að þarna er hægt að horfa á t.d. SATC :)
gleðilegt mjög!