
Þessa dagana erum við yfirleitt í nýju íbúðinni að mála og ganga frá hinu og þessu.
Ég er nú reyndar líka í skólanum og þar vorum við að byrja nýtt verkefni, sem reyndar varir bara í viku, en því meiri er pressan að ná að vinna verkefnið og slaka ekki á herbergja máluninni á meðan!
Við erum s.s. búin að fá kall til að slípa gólfin okkar og lakka...lítur ansi vel út.
Baðherbergiskall kemur á morgun og slípar steingólfið þar
svo erum við Tj í málingar-liðinu sem vinnur hratt...enda í æfingu eftir seinasta sumar;)
Þetta er allt að gerast...og stefnir í eðal íbúð og jafnvel flutning eftir ekki svo langan tíma.
Ætla að reyna að henda inn myndum við tækifæri.
p.s. bloggin fjalla ekki um annað þegar maður stendur í svona framkvæmdum. Þið verðið bara að þola það:)


3 ummæli:
Þið verðið orðin svo sjóuð að þið farið að taka þetta að ykkur fyrir aðra ;)
Kv. Birna
Til hamingju með nýju íbúðina!
kveðja frá Fróni
Eygló og prinsarnir 2
Hæ Eygló!
Langt síðan ég hef heyrt í þér..
Eru prinsarnir orðnir tveir? Ferlega ertu dugleg:) Til hamingju með það.
Kv. Hildur
Skrifa ummæli