laugardagur, desember 02, 2006

Afmælisbarn dagsins...

..er hún Dröfn mín!

25 skemmtileg ár hafa flogið hjá og í kvöld mun hún fagna því með heljarinnar salsa teiti...sem ég kemt EKKI í...búhú...sem þýðir ekkert nachos né tequila handa mér:/

Þar sem ég kemst ekki í kvöld gróf ég upp mynd frá því ég var í afmæli hjá henni fyrir þó nokkrum árum síðan er við í denn gengum í menntaskóla saman...Dröfn þú verður bara að minnast þessa dags og ímynda þér að ég sé á staðnum.

Skemmtið ykkur rosa vel!



Grúppu högg!!:)




Ein auka til svona til að minnast gamalla tíma;)

miðvikudagur, nóvember 29, 2006

mánudagur, nóvember 27, 2006

Haustferð i dönskum skogi...


Its me!!!


Api í trjánum...




svoldið önnur stærð á trjám en heima...;)
Hvað lærði ég að þessari ferð?
1. í þessum skógi er hæst punktur Sjálands...91 m á hæð.
2. það er gott að vera í góðum og háum gúmmístígvelum þegar gengið er um skóg með blautum laufum og drullusvaði...

Lovely!

þriðjudagur, nóvember 21, 2006

Bloggfjarvera

Við TJ vorum svo heppin að fá Hagnaðarfjölskylduna í heimsókn í nokkra daga.
Búið að vera mikið fjör og mikið gaman....og mikið að gerast!
Það kemur ábyggilega fínasta ferðasaga á síðunnar hennar Hörpu svo þið verðið bara að bíða eftir henni;)


Ákvað að henda inn þessu líka fína myndbandi....

miðvikudagur, nóvember 15, 2006

Rakst á fyrir tilviljun...

...útlendingur á íslandi...gaman að lesa!

Danskur humor...



...rakst á þennan danska brandara. Skóladanskan ætti nú að redda ykkur að einhverju leiti gegnum hann;)


-Børnene fik i skolen at vide, da de lærte om Island, at hovederhvervet* er fiskeri. (*aðal atvinnuvegurinn)

"Man betaler faktisk alt med fisk", sagde læreren.

"Det var sørens*, sagde lille Peter. "Sikke nogle sjove parkometre* de må have der oppe."- (*það var árans.....*stöðumæla).

Jolin orðin official! :)



....í dag er sá merkisdagur að ég má löglega byrja að tala um jólin á mínu heimili.
-ég var að velta fyrir mér að skreyta svoldið vel fyrir þessi jól...e-ð í stíl við myndina;)

þriðjudagur, nóvember 14, 2006

Stöndum vörð...



...þetta finnst mér sniðugt.
Ekta skólaverkefni...ja eða fyrir áhugasama um íslenska tungu.
Vera með...

laugardagur, nóvember 11, 2006

Loksins bloggað



Við TJ eyddum kvöldstund með þessum gæja í gær og höfðum mikið gaman af.
Ég á samt alltaf erfitt með að horfa upp á grín gert af gömlu yndislega góðu fólki. Sem betur fer var senan ekki það löng! Allt annað var top-notch!

Það er búið að vera mikið að gera skólalega upp á síðkastið og skilaði ég möppu í gær fyrir seinasta verkefnatímabil. Jeij...nýtt tímabil á mánudaginn og þá er ég ekki að tala um kortatímabil;)

Harpa og frítt föruneyti koma hingað eftir skuggalega stuttan tíma...ótrúlegt hvað tíminn líður hratt...og hlökkum við mikið til. ég er meira að segja búin að fjárfesta í árskorti í tivoli til að geta skundað með á jólamarkaðinn þar sem opnar 16.nóv. Ég á ábyggilega eftir að vera tíður gestur þar fram að jólafríi nú þegar maður getur bara valsað inn hvenær sem er.

Jæja helgin framundan með sínum skemmtilegheitum ekkert planað og allt opið

-Góða helgi

sunnudagur, nóvember 05, 2006

Fótboltamyndir (ath. fengnar að láni:)



Hér er slóðin á restina að fótboltafjörinu...Guðrún Ragna var myndavélakona-ferðarinnar

laugardagur, nóvember 04, 2006

Stuð i Köben



Fórum á leikinn á miðvikudaginn. Það var bara stuð og sérstaklega þar sem "okkar" menn unnu. Samt svoldið súrt að Man. United hafi ekki sýnt betri takta...i was not really impressed.



Stjörnufans hér að fimmtudaginn...við löbbuðum framhjá ráðhúsplássinu þegar tónleikarnir þar voru í gangi..ég var dauðfegin a' geta farið heim undir teppi og fylgst með þessu í imbanum því það var alveg ískalt úti.

Í gærkvöldi var svo jólabjórinn seldur og mikil stemmning. Ég fór í "Mtv after-partýið í skólanum mínum. Voða fjör. Svo stakk ég af þaðan og hélt niður í miðbæ að hitta nokkra íslendinga og elta jólabjórsbílinn (eins og kóklestin heima). Það var rosa gaman. Fólk var með Tuborg jólasveinahúfur með blikkandi dúskum, syngjandi og trallandi. Maður kom seint heim.

-í dag er afslöppunardagur. Fólkið sem er að flytja inn í íbúðina fyrir ofa okkur er að gera einhverjar voða breytingar svo það heyrast skemmtileg borhljóð og bank og fleira. Þurfti akkurat að vera í dag:/

Góða helgi fólkens

miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Fyrsti snjorinn...

...kom í morgun!
Þetta var/er blautur snjór og þar af leiðandi nær hann ekki að festa sig heldur bráðnar einn tveir og tíu.
En þrátt fyrir það...jeij jólin eru að koma(athugið minna en 2 mánuðir til jóla!)


mánudagur, október 30, 2006

Það er fatt betra i heimnum en...

.....jóga. Það er amk á topp 10 listanum mínum!!
Það er bara ótrúlegt hvaða áhrif nokkrar spes æfingar geta haft á mann.

Annars allt gott að frétta héðan. Við fáum gesti í einnar nætur gistingu á miðvikudaginn(mega auðvitað vera lengur) það er hið stórskemmtilega par frá Århus sem ætlar að skella sér með okkur á FCK-MAN.UNITED leikinn.

Svo er allt að verða vitlaust í MTV european music awards hér. Það fer allt fram á fimmtudaginn, voða stemmning fyrir því.
Var að labba yfir Rådhuspladsen áðan og þar eru þeir komnir langt með að setja upp risa svið sem á að vera vettvangur tónlistaratriðina og skemmtiatriðana. Þó er allt fræga fólkið og svo verðlaunaafhendingin sjálf í ráðstefnuhöllinni "Bellacenter" sem er svona korters keyrslu í burtu. Lógískt?...nei ekki finnst mér það
Auðvitað verður maður að skella sér í after partýið hjá P.Diddy á Nasa klúbbnum þar sem sérinnflutt Don pergion kampavín verður serverað. Og jafnvel partýið hans Snoop á einhverjum stað þar sem hann hefur látið fólkið mála staðinn allan bláan að innan fyrir þetta eina kvöld í tilefni að útgáfu plötu sinnar sem heitir e-ð með "blue" í titlinum.
Já mín er með allt það helsta á hreinu í sambandi við þennan atburð;)

Svo kemur jólabjórinn á föstudaginn. Það er voða stemmning. Kl. nákvæmlega 20:59 (að mig minnir) mega barirnir byrja að selja jólaølinn! Sama kvöld er bekkurinn minn í skólanum að standa fyrir fredagsbar fyrir nemendur og þemaið verður s.s. MTV after-after party...verður án ef stuð.

Nóg að gera hjá minni!
Lovs*

sunnudagur, október 29, 2006

Hehe...gaman að þessu!



Mér finnst þetta bara fyndið!! Ég er sko bæði asísk og afrísk í útliti. Nú hef ég bara fengið staðfestan grun minn um að ég sé rosalega sjálfsöguð og tæknvædd jazzsöngkona. Ja...eða e-ð í áttina!

laugardagur, október 28, 2006

Fotboltabullur






Hetja dagsins...og helgarinnar ef út í það er farið...er hann TJ!!

Hann reddaði okkur miðum á löngu uppseldann leikinn milli FCK og Man. United á miðvikudaginn næstkomandi.
Við munum sitja í stúkunni og njóta leiksins og stemmningarinnar ásamt Guðrúnu Rögnu og Ingiber sem eru jafn hæst ánægð með miðana og við.

Mikil til hlökkun hér á bæ!!!

Ég held að ég ætli að halda með báðum liðum þó svo að maður hvetji danina aðeins meir( við erum jú þeirra megin í stúkunni)

föstudagur, október 27, 2006

Official H&M shopper!

Jæja mín var að fá sendan heim forlátan grip sem ekki er aðgengilegur á íslandi(að mér vitandi) en það er H&M kort. Voða fínt hvítsanserað og rautt "with my name on it. "I feel so special" ;)
Nú verða bara allir sem koma til mín í heimsókn að fá kortið með og nota það þegar verslað er í h&m því að þá safnar maður upp stigum og einhverju sniðugu. Æ er svo sem ekki búin að kynna mér þetta til hlýtar en ég efast ekki um það sé good stuff.
-Sigga þú verður bara að fá að nota það næst

í nótt var víst einhver voða stormur í hér í Danmark. Ég svaf hann greinilega af mér því ég varð sko ekki vör við neitt. Sá bara í morgun að hjólin lágu eins og dómínó í hjólastatífinu og svo eru risa hrúgur af laufblöðum út um allt. Kannski ég fari bara að draga fram vetrarúlpuna. Fussum svei og það bara í lok október ;) hehe

Í dag er ég reyndar hálf slöpp svo að ég hef hugsað mér að vera bara heima og taka til....sounds like a blast i know...en kannski maður baki bara í leiðinni til að setja smá stuð í þetta og æfa sig fyrir jólavertíðina!

-Góða helgi fólkens

þriðjudagur, október 24, 2006

Good times...boogie

jæja...systirin var að kveðja.
Við áttum nokkra ansi góða daga hér í verslunarborg norðursins;)
H&M var tekið með trompi og fjárfest í hinu og þessu..nytsamlegu sem ónytsamlegu.
Ég er ekki frá því að ég hafi næstum jafnað Siggu í versluninni. Ekki slæmt þar sem ég hafi verið að spara saman til að geta verslað smá með henni.
Það var hjólað, slappað af í nýjum jogging buxum og úlpu;), skoðað sig um, borðaður góður matur og auðvitað verslað.
Einkar ljúf og skemmtileg heimsókn í alla staði...

Er strax farin að hlakka til að koma heim um jólin!

þriðjudagur, október 17, 2006

Turistar i Carlsberg-verksmiðjunni



Carlsberg bjórsafnið skoðað. Yfir 13.000 mismunandi bjórtegundir allsstaðar að úr heiminum.



Ekki amalegt að fá einn svona old school hestvagn sendann heim þegar maður heldur teiti:)


Prufuðum allar húfurnar í "souvenir shop"

Júlía og Kristján skelltu sér til Köben með litlum fyrirvara og voru mætt hingað á laugardainn seinasta. Okkur til mikillar gleði og ánægju! Við notuðum tækifærið til að túristast aðeins með þeim og fórum í ferð á Carlsberg-safnið. Með aðgangseyrinum fylgdu tveir bjórar að eigin vali á Jacobsen barnum sem er bar staðarins...ekki slæmt! Einnig fórum við út að borða á tyrkneskum stað þar sem okkur var lofaður magadans. Þær sviku okkur....kannski voru þær veikar því þær hafa verið svo illa klæddar í vinnunni:) Who knows!

Frábært að fá þau í heimsókn...og eru alltaf velkomin!
Næsti gestur kemur á fimmtudaginn. The one and only sister ætlar að taka verslanir borgarinnar með trompi. Ég fæ að vera með...ábyggilega til að halda á pokunum!

...það ert orðið ansi kalt. hér. Sigga taktu með þér hlýja peysu....nei annars þú kaupir hana bara;)

Luv fra moi!

sunnudagur, október 15, 2006

Hahahaha...

fimmtudagur, október 12, 2006

Hmmm...hvert skal halda?

Lucky numer 13

...áðan pantaði ég mér klippingu og lit á morgun á hárgreiðslustofunni hinum megin við götuna.
Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema hvað að ég ákvað að vera sniðug og færa tímann minn inn í dagatalið mitt svo ég gleymdi því örugglega ekki. Þá rek ég augun í það að á morgun er föstudagurinn 13 október!!!!

Þetta er í fyrsta skipti sem ég fer í rótækar háraðgerðir á þessari stofu.
Á ég að afpanta tímann? Hefur einhver lent í að slæmri hárgreiðslu á þessum ó/happadegi?
Oh my...

þriðjudagur, október 10, 2006

History keeps repeating it self...

...þið eigið kannski ekki eftir að trúa þessu.
Bílnum okkar var stolið AFTUR...6 dögum eftir að við höfðum fengið hann aftur!!
Bara horfinn á núna mánudaginn.
TJ lét löggarana vita og bíllinn var eftirlýstur á ný.

Tj fór út að hjóla í gær til að svipast um eftir bílnum og mætir honum á Nørrebrogötu. TJ reynir að fylgja honum eftir og tekst það þar til kauði gefur í og hann verður að gefast upp. Frekar súr yfir því.

Í dag miðvikudag hringdi löggan í Tj og lét hann vita að bíllinn hefði sést á bílastæði ekki all langt frá húsinu okkar. Löggan sagðist ekkert geta gert í málinu núna þar sem það væri svo mikið að gera hjá þeim. Tj lét ekki segja sér það tvisvar. Hann sótti bíllykilinn og hélt til bílastæðisins til að athuga með að stela bílnum til baka. Ætlunarverkið tókst og höfum við nú endurheimt gripinn AFTUR.
Þetta var sami þjófurinn þar sem að hann skildi eftir sömu verksumverki. Skeið, álpappír og 20 schillingaseðil.
Mér finnst hann ansi frakkur að taka sama bílinn tvisvar!!

Eftir að TJ hafði sótt bíliin fór hann með hann i hreinsun og svo héldum við út í búðina T.Hansen til að kaupa stýrislás.
Mér þykir það nokkuð kaldhæðnislegt að eftir að bílnum var stolið í fyrsta skiptið fórum við að kaupa stýrislás en það var bara allt uppselt. Svo planið var að reyna aðra búð við tækifæri.
í millitíðinni náði maðurinn að stela honum aftur.

Bara rugl...

Nú fer bíllinn hvergi þar sem hann er kominn með þennan líka fína skærgula stýrislás. Við bindum allar vonir okkar við hann þar sem að bíllinn þolir varla mikið meira af glannaakstri frá dópista sem kann ekki að keyra!

Annars ekkert spennó að fréttta:)

sunnudagur, október 08, 2006

Bókanir bókanir...





...fólk er aldeilis byrjað að taka við sér í pöntunum á gistingu hjá okkur.
Sem er bara hið allra besta mál. Held samt að við séum orðin fullybooked fyrir haustönnina, þar sem því miður þarf að vera tími fyrir skólann.
Sigga sis kemur seinnipartinn í október, Harps, Haukur og Kristín litla María koma i lok nóvember, í byrjun des ætlum við að spranga um í tívolí með Herði og Önnu kærustu hans....Guðrún vinkona mín Ragna hefur svo pantað eina nótt um miðjan des...
Þetta eru allt góðir gestir og hlökkum við mikið til að fá þau!

Nú er bara að fara að íhuga vorönnina sem enn innheldur nokkur laus pláss;)

föstudagur, október 06, 2006

það er aldeilis...

...að Katie okkar Holmes fær ekki að hvíla sig. Tom er víst búinn að ráða barnfóstru til að passa krakkann til þess að Katie litla geti verið komin í topp form fyrir brúðkaupið. Og áður en barnfóstran kom til var hún að lyfta lóðum 5 sinnum í viku.
Það ætti að loka þennan mann inni....ja eða vekja Katie upp af þessari vitleysu. Hún hefur enga sjálfsvirðingu greyið...því gamla góða "ég elska þig eins og þú ert" á greinilega ekki við í þessu sambandi...fuss!
(-í þessu skrifum er gengið út frá því að allt slúðrið sem ég hef lesið sé dagsatt!)

Peter Andre (muniði annars eftir honum), konan hans var að koma upp um leyndarmál hans í slúðurblöðunum. Ástæðan fyrir að hann er alltaf svona svaka brúnn er að hann makar á sig kóka kóla áður en hann fer í sólbað...og þá erum við sko að tala um kók light til þess að skordýrin sæki ekki jafn mikið í hann...oj!

Victoria Beckham er víst orðin besta vinkona Katie Holmes því að Katie er vinsæl í slúðurblöðunum og Viggu okkar sárvantar fjölmiðlaathygli sem ekki beinist að karlinum hennar...

Æ mér finnst fræga fólkið í dag vera asnalegt...hvað varð eiginlega um að vera bara frægur og auglýsa kókakóla?

fimmtudagur, október 05, 2006

Rændu og rupluðu....




Já kæra fólk við breyttumst skyndilega úr því að vera eigendur tveggja bíla( í sitthvoru landinu) til þess að vera bíllaus á 4 dögum.
"Glæsikerrunni" okkar(svipuð bílnum hér að ofan bara "gamlari") var stolið fyrir utan húsið okkar á mánudag..ja eða kannski sunnudag. Mánudags kvöldið hringdi síminn þegar við vorum búin að taka fyrsta bitann af kvöldmatnum. Löggan spyr hvað TJ hafi sé eiginlega að hugsa og spyr einhverra spurninga um bílinn...TJ labbar út með manninn í símtólinu og kemst að því að bíllinn sé horfinn. Við nottlega voða hissa á því að bílinn sé hvergi að finna og að bíllinn hafi í þokkabót keyrt á mótorhjólamann og stungið af.
Manni leiðist sko ekki í Köben...!!
Bíllinn fannst svo í einhverri götu á Nørrebro og þegar við komum að bílnum var hann sem betur fer ekki allt of illa farinn(=getur enn keyrt). Við spæjararnir komust að því að þetta hafi verið dópisti(=skeið og álpappír) sem borðaði snakk og súkkulaði og skildi eftir 20 schillinga í sætinu. Höfum velt fyrir okkur hvort að hann hafi verið að borga fyrir lánið.

Við ætlum að dauðhreinsabíllinn og bolta upp annað brettið sem hangir laflaus(ákeyrsla á mótorhjólið) en skrámurnar og beyglurnar fá að standa. Við eigum núna alvöru ghetto-bíl með brotinn spegil og marglitar rendur á hliðunum( eftir að hafa keyrt inn í hliðina á öðrum bílum gerum við ráð fyrir)

Já já.....annars ekkert spennó að frétta svosem;)

mánudagur, október 02, 2006

laugardagur, september 30, 2006

Fjölskyldu minkun...


....Bíllinn okkar hann Willy hefur verið seldur.
Við þessi merku tímamót eru tilfinningar blendnar þar sem við gleðjumst mjög yfir að þurfa ekki að borga tryggingar áfram en hryggjumst yfir þeirri staðreynd að Willy með sín hestöfl og bilanir tilheyri okkur ei meir.
Megi gæfa og gengi fylgja honum með nýjum eigendum.

TJ var að koma frá Íslandinu góða þar sem hann meðal annars gekk frá sölu Willy ásamt öðrum pappírsmálum sem þurfti að ljúka. Nú þegar búið er að taka upp úr töskunum sit ég uppi með lager af íslensku nammi sem ég á án ef á eftir að smjatta mig í gegnum á no time og þar af leiðandi auka rúmmál mitt enn frekar eftir nammiflipp sumarsins. Gott mál!!;)
Ég þakka kveðjurnar frá þeim sem Tj rakst á á ferð sinni...

Haust-kveðjur frá Köben

miðvikudagur, september 27, 2006

þriðjudagur, september 26, 2006

Ég er enginn voðalegur "coke a cola" aðdaðandi....

...en mér finnst þessi auglýsing algjört æði.
Auðvitað er verið að hvetja til tilbeiðslu drykkjarins en burt séð frá því eru þessar loðnu kyssukúlur bara yndislegar.





Maður er allur að koma til heilsulega séð...loksins...ég gleðst mikið yfir því!

Ótrúlega fínt veðrið hjá okkur hér...og nú finn ég að ég er ekki í bloggstuði akkurat núna.
-more later

laugardagur, september 23, 2006

æ mig auman




I dag er ég lasin og ég var lika lasin á fimmtudag. Hvernig er hægt að vera veikur með dags millibili?? Og þá sérstaklega þegar fólk fyrir utan gluggann minn gengur um í suttbuxum og bol í september? Hvernig er þetta hægt...??
ég vorkenni mér alveg svakalega akkurat núna því ég er að missa af grillveislu og öðrum skemmtilegheitum í sólinni.

Just my luck:/

miðvikudagur, september 20, 2006

My darling Daisy



ég lofaði myndum í júlí...hér er loksins ein af mikilvægasta farartæki mínu þessa dagana. Hún stendur sig eins og hetja og hefur ekki sprungið á henni enn...7,9,13!

Aukalegar upplýsingar: ég hef fjárfest í flugmiða heim um jólin og ætla mér að vera í 19 daga. Ánægjuleg tilhugsun!
-20.des er dagurinn....og eru aðeins 90 dagar í þann merka dag. Punktið þetta hjá ykkur;)

mánudagur, september 18, 2006

Nautlliðug joga drottning



Mín var að byrja í jóga í dag. Er voða ánægð með mig og stefni á að verða eins liðug og konan á myndinni eftir þessa tíma.
Ég mæli með svona "leikfimi" fyrir alla þar sem þetta er yndisleg heilsurækt. Sérstaklega slökunin í lok hvers tíma!

Nóg að gera í skólanum hjá mér þessa dagana vorum að skila full size módeli af manneskju í ákveðnni hreyfingu í dag. Set kannski inn mynd seinna. Næstu daga verð ég í því að hanna hlut(hluti) sem vinnur með hreyfingum mannsins. Mjög spennandi verkefni...

Hef þær ánægjulegu fréttir að bólgan á fætinum eftir flugnabitin er að hjaðna....finally...

Nóg í bili...

sunnudagur, september 17, 2006

I tilefni þess að i dag er manuður siðan eg varð 25 ara...

...25 SIGNS YOU HAVE GROWN UP

1. Your houseplants are alive, and you can't smoke any of them.

2. Having sex in a twin bed is out of the question.

3. You keep more food than beer in the fridge.

4. 6:00 AM is when you get up, not when you go to bed.

5. You hear your favorite song in an elevator.

6. You watch the Weather Channel.

7. Your friends marry and divorce instead of "hook up" and "break up."

8. You go from 130 days of vacation time to 14.

9. Jeans and a sweater no longer qualify as "dressed up."

10. You're the one calling the police because those %&@# kids next door won't turn down the stereo.

11. Older relatives feel comfortable telling sex jokes around you.

12. You don't know what time Taco Bell closes anymore.

13. Your car insurance goes down and your car payments go up.

14. You feed your dog Science Diet instead of McDonald's leftovers.

15. Sleeping on the couch makes your back hurt.

16. You take naps.

17. Dinner and a movie is the whole date instead of the beginning of one.

18. Eating a basket of chicken wings at 3 AM would severely upset, rather than settle, your stomach.

19. You go to the drug store for ibuprofen and antacid, not condoms and pregnancy tests.

20. A $4.00 bottle of wine is no longer "pretty good stuff."

21. You actually eat breakfast food at breakfast time.

22. "I just can't drink the way I used to" replaces "I'm never going to drink that much again."

23. 90% of the time you spend in front of a computer is for real work.

24. You drink at home to save money before going to a bar.

25. When you find out your friend is pregnant you congratulate them instead of asking "Oh S*$# what the hell happened?"


Já krakkar mínir...komin tími til að meðtaka staðreyndina um að maður sé að verða fullorðin.
Ég vil samt benda á ég lifi eftir mínu mottói sem er: "You are Only as Old
as You Feel".

ætla ekki að monta mig...

...það er þvílík sumarblíða/haustblíða hér í Köben núna.
Ég held að það sé meira segja möguleiki á fari ef maður gefuri sér tíma til þess.
Svona á haustið að vera...og helst veturinn líka;)

Örkveðja úr góða veðrinu

miðvikudagur, september 13, 2006

The ultimate nörda hobby

Mér finnst þetta fyndið..það er líklega af því af því að ég er alin upp með svona föndurefniviði

En hvað þetta hlýtur að vera gaman

Mig langar líka að dansa svona

Skolaferðin mikla

Ég er komin aftur úr ferðinni heil á húfi og í einu stykki...en þó frekar götótt.
Var bitin vel og vandlega af mýflugum, er t.d. með ökla sem virðist vera tognaður bólgulega séð og önnur augnabrúnin er einnig fallega búnguð. Auk þess hef ég fjöldan allan af smærri bitum á fótunum. Sem betur fer var ég í síðbuxum og í langermapeysu sem bjargaði restinni af líkamanum.
Þetta voru agressivar mýflugur og auðvitað varð ég að fá svona sterk viðbrögð við bitunum. Kíkti til læknis og sem betur fer er ég ekki með ofnæmi...bara mikið óþol. Oh well...ég ætla mér ekki út í sveit á næstunni.

Ferðin var skemmtileg. Við fórum á fallegan sumarleyfisstað þar sem við gistum 5 í hverjum "hytte"(=smáhúsi). Þemaið var tónlist og ég lenti í pönk grúbbunni. Við þurfum að búa okkur til einkennisklæðnað, hróp og dans og e-ð fleira. Sem betur fer eru pönkarar svo anti-social að við sluppum við allt það. Pönkarar láta sko ekki segja sér að hrópa e-ð og hvað þá dansa. Við vorum bara pönk:) Hinir hóparnir voru hip-hop, kántrí, teknó og reggí. Það var ágætis matur og stóð eldhús hópurinn sig vel. Við fengum endalaust kökur og eftirrétti inn á milli máltíða.
Það var auðvitað partý bæði kvöldin og stóð ég mig betur seinni kvöldið eins og flestir gerðu...ég endist þó alls ekki alla nóttina eins og sumir og kenni ég aldrinum þar um...ja eða bara þreytu.

Allt í allt fín ferð og hefur maður nú kynnst aðeins fleirum af samnemendum sem er bara gott mál.
En ég get samt lofað ykkur að ég var dauðfegin að komast heim. Milljónir vespna um daginn og allt morandi í mýi á kvöldin. Fuss ég styð "a bug free world"

laugardagur, september 09, 2006

Intro verkefnið buið

Jæja fyrsta verkefnið er búið. Þetta var nú meira gaman en alvara sérstaklega þar sem maður var að kynnast fólkinu sem maður var í hóp á sama tíma og maður átti að geta verið sammála um hitt og þetta og unnið saman. Gekk misvel hjá fólki en á heildina litið var þetta voða stuð. Verkefnin voru svo sýnd í gær og hér eru nokkrar myndir af lausnum fólks. Gaman að sjá hversu ólíkar sumar lausnir voru. Ég nennti ekki að setja inn myndir af öllum heldur bara smá sýnishorn.


Þetta endaði með að vera framlag míns hóps...gömlu góðu skíðin með kústum undir. Svo að við sópuðumst bara yfir götuna.


Segulskór sem áttu að notast við segul mögnun til að komast yfir. Við urðum bara að ímynda okkur segulmögnunina.


Þessi manneskja var íklædd galla sem á voru festir fullt fullt af uppblásnum latexhönskum. svo rúllaði hún sér yfir á meðna hinir hópmeðlimirnir sópuðu götuna til að fjarlægja smásteina og svol. svo hanskarnir spryngju ekki jafn hratt. Þegar hún var komin yfir voru flestir hanskarnir sprungnir. Svo hún rétt náði;)


Þemaið þeirra var endurvinnsla og bjuggu til "teppisstranga" sem þau gátu öll komist yfir með. Vonandi sést á myndinni hvernig það virkar.


Sumir voru í búning og læti....það tók hana langan tíma að komast yfir götuna. Virkar s.s. þannig að hún klifraði alltaf upp eina "tröppu" í einu og þá "rúllaði" það áfram hægt en örugglega.


Hópurinn var inna í rúllunni og færðist "vegurinn" áfram þegar fólkið rúllaði sér samtaka áfram. Þau kölluðu þetta "rolling road"


Klassíski hopparinn með fullt af boltum undir tréplötunni.


Þau vorum mjög mjög hægfara en hreyfðust þó. Svoldill speisfílingur:)


Á morgun fer ég í skóla-ferðina og kem aftur á þriðjudag. Vinsamlega skiljið eftir skilaboð hjá ritaranum mínum ef þið þurfið að hafa samband;)
Kv. Miss Bissí!!

þriðjudagur, september 05, 2006

Schoolyschool...

...Skólinn er farinn að rúlla hægt en örugglega.
Í dag var okkur skipt í hópa og við fengum "intro" verkefni sem við eigum að skila á föstudaginn. Verkefnið er að hanna einhverskonar "hlut" sem getur komið amk. einni manneskju frá punkt A til punkt B ÁN þess að snerta jörðina. Það má ekki nota neinskonar hjól, stultur né svona stál hjól sem maður notar ef maður er að lyfta einhverju þungu upp með reypi( mann alls ekki hvað þetta heitir á íslensku og fékk að heyra orðið í fyrsta skipti á dönsku í dag). Er einhver með tillögu að því hvað ég er að meina?!
En verkefnið leggst vel í fólk og allir hópar eru á fullu við að vinna að sínum tillögum að lausn verkefnisins. Þetta er svona "koma okkur í gang" verkefni og þegar allir hafa skilað þurfa allir hópar að sýna lausnina sína fyrir framan skólann og þetta þarf sko að virka þegar við sýnum þetta!

Á sunnudaginn verður svo farið í svokallaðan "rustur". Kynningarferð fyrir fyrstaársnema. Komum svo aftur á þriðjudaginn. Þessar ferðir eru hefð í dönskum háskólum og eiga að vera rosa skemmtilegar. Ég er spennt:)

Ég ætla að taka myndir af lausninni okkar og skella á netið og jafnvel einhverra hinna líka. Það er nefnilega svo ótrúlega gaman að sjá allar mismunandi útfærslunar á svona verkefnum.

Velkomin heim Dröfn...ísland er án efa dauðfegið að fá þig heim á ný.

Rokrass-kveðjur frá Köben
Ein alls ekki sátt við að hjóla í roki!!

sunnudagur, september 03, 2006

Voða alþjoðleg i Köben




Þetta "kók" keyptum við í sjoppunni hinum megin við götuna. Mecca cola er ágætis drykkur og á honum stendur smáu letri "please dont mix this drink with alcahol". Slagorð drykksins er " Shakes your concience"..og á hann greinilega að hrista ærlega upp í samviskunni. Höfum svoldið verið að velta fyrir okkur trúargildi þessa drykks:) Hvernig væri nú að skella nokkrum bilíufrösum utan á gosdrykk og sjá hvort að það næði ekki vinsældum...
Það er gaman að þessu....svona skemmtilegheit rækist maður líklega ekki á í Bónusvideó.

Allt gott að frétta af okkur. Skólinn minn byrjaði á föstudaginn...mér líst bara vel á og er spennt fyrir framhaldinu.
TJ er að jafna sig eftir smávægilega hnéaðgerð og gengur það yfirmáta vel.

p.s. Ég hef komist að því að grunn "survivalkit " fyrir Danmörku er stór og góð regnhlíf og hjól. Það getur verið að ég bæti við "kittið" seinna en þetta er sú niðurstaða sem ég hef komist að hingað til.

miðvikudagur, ágúst 30, 2006

Enduruppgötvun


...var að horfa á bíómynd sem ég datt óvart inn í í sjónvarpinu. "White Oleander". Ég hafði aldrei séð þessa mynd áður þó að nafnið virtist örlítið kunnulegt. Michelle Pfeiffer lék í henni ásamt René Zellw. og Noah úr Bráðavaktinni...og svo fleiri. Góð mynd þar á ferð...að mínu mati. Ég er jú svoddan sökker fyrir myndum með "a little of everything":drama, rómó og allt hitt.
Þarna enduruppgötvaði ég líka hvað mér finnst M. Pfeiffer vera töff leikkona og sterkur karakter....man fyrst eftir henni í gömlu góðu "Dandgerous Minds"(gangsters paradise) sem maður fílaði svo vel í denn.Nú langar mig bara að sjá hana aftur við fyrsta tækifæri!

Jæja annars lítið að gerast, Tj er veikur (liggur við að maður segi: komin tími til að leyfa sér loksins svoleiðins munað eftir sumarvinnuna;) Dagarnir mínir líða allt í einu furðu hratt og fyrsti skóladagurinn er ekki á morgun heldur hinn. Jeij!

Langar að mæla með nýja disknum frá Baggalút sem ég og TJ fengum í afmó. Uppáhaldslagið mitt akkurat núna er "Hún fór að fitna" ég er viss um að þetta lag ætti fullkomnlega við mig ef ég brygði mér til Hawaii- þá meina ég viðlagið sko.....mmmm kókoshnetuís, ananasfrómas og pina colada!! :)

þriðjudagur, ágúst 29, 2006

bad, forstofa/gangur og stofa







-ATH. að við höfum enn ekkert sett á veggina. Smá hlutirnir eru ekki allir komnir á sinn stað og nokkrar bráðabirgða lausnir eru í gangi;) Svefnherbergið og vinnuherbergið koma seinna(= ég nennti ekki að taka til í þeim í dag;)

Myndir...eldhusið




Hættir!



...já þetta góðkunna band hefur lagt upp laupana. Sorglegt þar sem þeir (ásamt) öðrum hafa verið með til að gefa íslensku tónlistalífi smá krydd seinustu árin. Ég er voða ánægð með að hafa séð þá hér í Köben í sumar þar sem það var víst einn af seinastu sénsunum. Megi þeim vegna vel og gera e-ð nýtt og spennó.

Tæknin er annars alveg að fara með mig og suma af mínum nánustu. Ég ræði oft og iðulega við familíuna á skype sem er nottlega bara snilldar prógram fyrir millilanda samskipti. Í gær gaf ég svo systur minni "the grand tour" um fínu íbúðina okkar með vefmyndavél. Hversu tæknó er það?!!
Hugsið ykkur hvað hefur gerst á seinustu árum...þegar ég bjó hér seinast var það sko ekki á hvers manns færi að eiga webcam og hvað þá að ímynda sér að það væri hægt að tala í "símann" ókeypis í gegnum tölvuna. Maður þarf aðeins að halla sér aftur öðruhvoru og minnast þess hversu gott maður hefur það nú á dögum!

Smá áminning um lífsgæðin;)

mánudagur, ágúst 28, 2006

30 stöðvar

...í sjónvarpinu okkar. Þetta er sko e-ð annað en á Háteigsveginum þar sem rúv og skjár 1 voru valkostirnir.
Loksins get ég sappað almennilega eins og sönnum íslendingi sæmir. Gamla sjónvarpið okkar var sko bilað..svo að við þurftum alltaf að standa upp til að stilla inn myndina ef okkur datt í hug að skipta yfir á hina stöðina. Klárlega lúxuslíf hjá okkur núna þó að gamla góða sjónvarpið muni ávallt eiga stað í hjarta mínu;)

Þar sem ég er í mont horninu núna þá langar mig að skrifa stuttlega um nýjustu vinkonu mína hana Miele sem við fengum í afmælisgjöf. Þessi einstaki hlutur hefur nánast gert það ánægjulegt að ryksuga. Engin læti í henni og svo svífur hún um gólf á eftir mér hvert sem ég fer. Yndislegt alveg... hreinasta pleisið í bænum....að minnsta kosti ennþá;)

Í kvöld munum við loksins sofa í okkar rúmi hér í íbúðinni. Hingað til höfum við sofið í fína svefnsófanum sem við fjárfestum í fyrir alla framtíðar gesti okkar. TJ sótti loksins rúmið til ömmu hans í dag þar sem við höfum jú búið þar í allt sumar.
Mér finnst það vera svoldið svona punkturinn yfir i-ið þar sem þá er flest komið á sinn stað íbúðinni og heimilisfílingurinn að komast í samt lag. Jeij...home is where the bed is...finnst mér að það eigi að vera. Þó að klakinn verði ávallt hið eina sanna "home". Hef komist að þeirri niðurstöðu eftir marga búsetuna erlendis.

4 dagar í að skólinn byrji....

sunnudagur, ágúst 27, 2006

Hin sivinsæla hafmeyja




-ég er alltaf jafn hissa á því hversu kreisí vinsæl þessi litla hafmeyja er og líka finnst mér það alveg merkilegt hversu lítil greyið er....en túristarnir elska hana eins og sést á myndinni. Allir keppast þeir um að láta taka mynd af sér með henni...gaman að hafa eitt stykki svoleiðins í myndaalbúminu. Ég gat ekki stillt mig um að smella einni mynd af á crowdið.
Myndin er tekin úr bát svo við sjáum aftan á hafmeyjuna.

föstudagur, ágúst 25, 2006

Days go by so slowly...

.....þessa dagana er ég bara heima í rólegheitunum að mála aðeins þar sem þarf og dútla aðeins við heimilið. TJ er byrjaður í skólanum og fer út fyrir 9 á morgnanna. Skólinn minn byrjar eftir viku..þeir eru greinilega e-ð seinni að koma sér af stað..sem gefur í skyn að hann eigi ágætlega við mig;)

Mér finnst ég allt í einu hafa tonn af frítím sem er að sjálfsögðu ágætt. Ég er búin að kynna mér bókasafnið hérna og skoða hverfið betur. Fann meira að segja keiluhöll hérna í næsta nágreni...það verður nóg að gera hjá mér í vetur;)

Jæja þetta var bara smá innskot frá mér í hversdagsleikanum.

-kærlighed fra Danmark

fimmtudagur, ágúst 24, 2006

Komin timi til...

...að svona vefsíða (eða bæklingur í gamla daga) kæmi út.

http://www.framhald.is/

Frábært framtak hjá þeim ungu mönnum sem stóðu að þessu.
Þetta hefði nú getað auðveldað manni ýmislegt hér í denn.

miðvikudagur, ágúst 23, 2006

Kaupmannahafnar rigning...

...er öðruvísi en sú Reykvíska (ætli þetta sér rétt stafað hjá mér!).
Það koma dembur...alls svaðalegar dembur sem gegnumbleyta mann á augabragði. Þessar dembur bíða annaðhvort eftir að þú sért komin á bert svæði þar sem enginn séns er á skjóli eða þá að þú ert á hjóli með körfuna fulla af drasli sem gerir það erfiðara að stoppa(svo maður hjólar bara áfram). Já þetta er mín greining á dösnku rigningunni. Á Íslandi er rigningin öðruvísi...einhvernveginn mannúðlegri.
Anywho....þá erum við að taka upp úr kössum þessa dagana og setja saman hirslur til að geyma dótið úr kössunum í. Aðeins hefur hægt á framkvæmdar gleðinni eftir að sófinn kom og keyptir voru púðar til að gera hann enn þægilegri. En þetta mjakast þó...ég skrúfaði t.d. saman skóskáp í dag og fyllti og TJ...hmmm...gerði fullt annað á meðan;)

Ég hef lofað myndum...en ætla ekki að birta neitt fyrr en ég er hætt að reka tærnar í og hrasa um kassa á gólfinu.

-Spurning 1: Hefur einhver kynnt sér tónlistahæfileika Paris Hilton? Ég hef ekki verið svo heppin að heyra sjálf...bara heyrt um. Er fólk að digga þetta? Getur hún sungið?

-Spurning 2: Jeff Who og Eberg eiga að spila hér í Köben 1.sept...ég (hef heldur ekki haft tíma til að kynna mér þá) er þetta ekki ástæða fyrir mig til að skella mér? Hvað/Hver er Eberg?

p.s. nýtt blogg-lúkk í bili
commenting and trackback have been added to this blog.