þriðjudagur, október 17, 2006

Turistar i Carlsberg-verksmiðjunni



Carlsberg bjórsafnið skoðað. Yfir 13.000 mismunandi bjórtegundir allsstaðar að úr heiminum.



Ekki amalegt að fá einn svona old school hestvagn sendann heim þegar maður heldur teiti:)


Prufuðum allar húfurnar í "souvenir shop"

Júlía og Kristján skelltu sér til Köben með litlum fyrirvara og voru mætt hingað á laugardainn seinasta. Okkur til mikillar gleði og ánægju! Við notuðum tækifærið til að túristast aðeins með þeim og fórum í ferð á Carlsberg-safnið. Með aðgangseyrinum fylgdu tveir bjórar að eigin vali á Jacobsen barnum sem er bar staðarins...ekki slæmt! Einnig fórum við út að borða á tyrkneskum stað þar sem okkur var lofaður magadans. Þær sviku okkur....kannski voru þær veikar því þær hafa verið svo illa klæddar í vinnunni:) Who knows!

Frábært að fá þau í heimsókn...og eru alltaf velkomin!
Næsti gestur kemur á fimmtudaginn. The one and only sister ætlar að taka verslanir borgarinnar með trompi. Ég fæ að vera með...ábyggilega til að halda á pokunum!

...það ert orðið ansi kalt. hér. Sigga taktu með þér hlýja peysu....nei annars þú kaupir hana bara;)

Luv fra moi!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hey, við höfum aldrei farið í verksmiðjuna. Bæti því hér með á "to do" listann minn fyrir Köbenferðina....nú þegar er komið "versla", "borða", "tívolí", "tala við Rampis" og...var ég búin að nefna "versla"?

arna sagði...

talandi um bjór.. hvenær ætlarðu að blogga á ný kona?
og pé ess.. er kannski mögulega eitt laust fleti eina kalda vetrarnótt í febrúar fyrir mig og kannski kötuling?

Nafnlaus sagði...

dastu svona ærlega í það með systur þinni Hildur? Við viljum blogg, við viljum blogg....;)

ég þarf annars að bjalla í þig. er búin að dreyma þig svo svakalega, 3 nætur í röð, og alltaf það sama....need to update me darling;)

knús frá kleiken,
harps og co.