fimmtudagur, október 05, 2006

Rændu og rupluðu....




Já kæra fólk við breyttumst skyndilega úr því að vera eigendur tveggja bíla( í sitthvoru landinu) til þess að vera bíllaus á 4 dögum.
"Glæsikerrunni" okkar(svipuð bílnum hér að ofan bara "gamlari") var stolið fyrir utan húsið okkar á mánudag..ja eða kannski sunnudag. Mánudags kvöldið hringdi síminn þegar við vorum búin að taka fyrsta bitann af kvöldmatnum. Löggan spyr hvað TJ hafi sé eiginlega að hugsa og spyr einhverra spurninga um bílinn...TJ labbar út með manninn í símtólinu og kemst að því að bíllinn sé horfinn. Við nottlega voða hissa á því að bílinn sé hvergi að finna og að bíllinn hafi í þokkabót keyrt á mótorhjólamann og stungið af.
Manni leiðist sko ekki í Köben...!!
Bíllinn fannst svo í einhverri götu á Nørrebro og þegar við komum að bílnum var hann sem betur fer ekki allt of illa farinn(=getur enn keyrt). Við spæjararnir komust að því að þetta hafi verið dópisti(=skeið og álpappír) sem borðaði snakk og súkkulaði og skildi eftir 20 schillinga í sætinu. Höfum velt fyrir okkur hvort að hann hafi verið að borga fyrir lánið.

Við ætlum að dauðhreinsabíllinn og bolta upp annað brettið sem hangir laflaus(ákeyrsla á mótorhjólið) en skrámurnar og beyglurnar fá að standa. Við eigum núna alvöru ghetto-bíl með brotinn spegil og marglitar rendur á hliðunum( eftir að hafa keyrt inn í hliðina á öðrum bílum gerum við ráð fyrir)

Já já.....annars ekkert spennó að frétta svosem;)

Engin ummæli: