föstudagur, október 27, 2006

Official H&M shopper!

Jæja mín var að fá sendan heim forlátan grip sem ekki er aðgengilegur á íslandi(að mér vitandi) en það er H&M kort. Voða fínt hvítsanserað og rautt "with my name on it. "I feel so special" ;)
Nú verða bara allir sem koma til mín í heimsókn að fá kortið með og nota það þegar verslað er í h&m því að þá safnar maður upp stigum og einhverju sniðugu. Æ er svo sem ekki búin að kynna mér þetta til hlýtar en ég efast ekki um það sé good stuff.
-Sigga þú verður bara að fá að nota það næst

í nótt var víst einhver voða stormur í hér í Danmark. Ég svaf hann greinilega af mér því ég varð sko ekki vör við neitt. Sá bara í morgun að hjólin lágu eins og dómínó í hjólastatífinu og svo eru risa hrúgur af laufblöðum út um allt. Kannski ég fari bara að draga fram vetrarúlpuna. Fussum svei og það bara í lok október ;) hehe

Í dag er ég reyndar hálf slöpp svo að ég hef hugsað mér að vera bara heima og taka til....sounds like a blast i know...en kannski maður baki bara í leiðinni til að setja smá stuð í þetta og æfa sig fyrir jólavertíðina!

-Góða helgi fólkens

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég skal láta gott af mér leiða og leyfa þér að nota H&M kortið þitt óspart helgina 18-21. nóvember...:)

Segðu þessum stormi annars að fara eitthvað annað. Noregs til dæmis;) Ég hef á tilfinningunni að það verði sól í Köben í lok nóv. Æi ég veit...bjartsýni hefur alltaf verið my strong point.

Knús knús og vonandi hressti hreingerningin þig við darling! ;O

Unknown sagði...

Hæhæ! Ég er akkúrat með HM kort líka, þvílíkt flott heit. Hehe, var að koma heim frá djamminu og kjaftaði í ingiber og hann á ekki eftir að geta sofið í nótt. Ég hringi í þig á morgun:)

Unknown sagði...

þór er að fara til kuuuben í lok nóvember - held samt að ég minnist ekkert á þetta H&M kort - hann gæti allt eins bara hætt við að fara út.
Kveðja úr sveitinni - þar sem rok og rigning er upp á hvern einasta dag - nema á miðvikudaginn - þá snjóðai.

.:Eyjan sagði...

Hehe...H&M kortið mun bara vera notað af þeim sem bjóðast sjálfvilgjugir til þess að kippa þvi með í innkaupinn. Þór hefur ekkert að óttast. Enda á ég bágt með að trúa að H&M innkaup séu aðal ástæða ferðarinnar.

Harpa ég hef pantað gott veður í lok nóv. Við skulum bara treysta á að það rætist:)