
Við TJ eyddum kvöldstund með þessum gæja í gær og höfðum mikið gaman af.
Ég á samt alltaf erfitt með að horfa upp á grín gert af gömlu yndislega góðu fólki. Sem betur fer var senan ekki það löng! Allt annað var top-notch!
Það er búið að vera mikið að gera skólalega upp á síðkastið og skilaði ég möppu í gær fyrir seinasta verkefnatímabil. Jeij...nýtt tímabil á mánudaginn og þá er ég ekki að tala um kortatímabil;)
Harpa og frítt föruneyti koma hingað eftir skuggalega stuttan tíma...ótrúlegt hvað tíminn líður hratt...og hlökkum við mikið til. ég er meira að segja búin að fjárfesta í árskorti í tivoli til að geta skundað með á jólamarkaðinn þar sem opnar 16.nóv. Ég á ábyggilega eftir að vera tíður gestur þar fram að jólafríi nú þegar maður getur bara valsað inn hvenær sem er.
Jæja helgin framundan með sínum skemmtilegheitum ekkert planað og allt opið
-Góða helgi


3 ummæli:
oh yeah...we´re on our way! Á þessum tíma eftir viku verður íbúðin ykkar full af ferðatöskum og aldrei að vita nema Kristín María taki eins og nokkur óp til að "hita ykkur" upp fyrir barneignir;) Hlakkar ykkur ekki til? ;)
Knús,knús...við erum amk að telja niður hérna megin!
ooo...jólamarkaður! akkúrat það sem að passar við jólasnjóinn hérna heima!
fannst þér myndin ekki fyndin? þú misstir ekkert af atriðinu góða, er það nokkuð? ;) hehehehehehe.....
Skrifa ummæli