miðvikudagur, maí 03, 2006
Einbeitingar örðuleikar...

Eitt próf eftir...á morgun og ég þarf að taka á honum stóra mínum til að halda athyglinni við bækurnar.
Það er svo mikið sem ég þarf að gera um leið og þetta próf er búið á morgun og ég get bara ekki hætt að skipuleggja það.
í huganum er ég "way past that test". Svo skilaði ég lokaverkefninu mínu í gær eftir langat vinnutímabil, sem hefur einnig áhrif á að mig langar bara að vera að gera allt annað núna en sitja við lestur.
Ástæðan fyrir þessu bloggi er í raun bara að ég var að lengja hádegismats-pásununa mína!
þriðjudagur, maí 02, 2006
Hæsta hringekja heims opnuð í Tívolí i Köben
sunnudagur, apríl 30, 2006
Handy
Flower girk..

Ég lauk mínum seinasta vinnudegi í dag sem formlegur starfsmaður Hlíðablm.
Skrítið? sorlegt? Hmmm...virðist ekki vera búin að átta mig alveg á því ennþá. Fatta þetta seinna....
Á þriðjudag( eftir rúmlega 1 dag) skila ég B.Ed. verkefninu mínu. Big day!
Á fimmtudag fer ég í seinasta prófið mitt sem nemandi Kennó.
Á laugardaginn er opnun útskriftarsýninigar Tj með tilheyrandi gilli.
Á sunnudag skrepp ég til Dk. (kem aftur á þriðjudag)
Þá tekur við málingavinna, möguleg spörslun, pökkun og flutningar út á Nesið
Svo er bara pökkun og flutningar eigin hluta...
-ásamt ýmsu öðru spennó í maí mánuði...
föstudagur, apríl 28, 2006
Afmælis/skirnardagur
miðvikudagur, apríl 26, 2006
Laumulesning

ég er að lesa þessa bók...ekki af því að ég er í megrunarhugleiðingum heldur af því hún er skemmtileg og lærdómsrík. Maður á að drekka nóg af víni borða súkkulaði og ýmislegt annað skemmtilegt...+ tips að heilbrigðu líferni án fyrirhafnar.
Ég kalla þetta laumaulesningu því ég á að vera með 100% ahygli á lokaverkefninu mínu....en leyfi mér að kíkja í þetta áður en ég sofna:)
Mæli með henni!
þriðjudagur, apríl 25, 2006
laugardagur, apríl 22, 2006
Paskarnir bunir og gott betur...
...og mín ekki ennþá komin með nettengingu!
Það var nóg að gera hjá mér um páskahátíðina.
Við fengum gesti-bróðir TJ, kona hans og Lára 2 ára dóttir þeirra. Þau bjuggu heima hjá okkur í viku (við vorum á Afló) og kynntust íslandi í fyrsta skipti. Farið var í sumarbústað, Gullfoss/Geysi-ferð, Þingvelli ásamt annari skemmtun.
Ég skilaði lokaverkefninu mínu ( fæ það reyndar aftur eftir fyrstu yfirferð til leiðréttingar).
Páksaeggjaát í hámarki...dauðfegin að páskarnir séu bara einu sinni á ári.
Páskaliljur seldar í blómó.
Málað af krafti í nýja húsinu á Seltjarnarnesi
Og svo ákvað Harpan að fæða glænýtt og ofur krúttilegt stúlkubarn til þessa heims. Enn og aftur til hamingju með litlu dömuna.
Þessa dagan er ég að vesinast í að binda alla lausa enda sem tengjast skólanum. Ritgerðir kláraðar, greinagerðir skrifaðar, málverk fíniseruð og verkefnamöppum skilað.
Allt að gerast....og nú eru bráðum bara tveir mánuðir í brottför Gög og Gokke frá Íslandi.
Time sure flies...

miðvikudagur, apríl 12, 2006
Nu styttist i það!

Já krakkar mínir...nú eru aðeins 3 dagar í súkkulaðibrjálaðið!
Ætli ég verði ekki að viðurkenna að "yours truly" hlakkar ansi mikið til....þó svo að tilhlökkunin sé eilítið frábrugðin því sem maður upplifði í denn.
Þegar ég og Sigrid vorum yngri var þessi dagur alveg óendanlega spennandi. Vöknuðum fyrir allar aldir og snérum öllu húsinu við í leit af súkkulaðieggjunum góðu. Við fylgdum miðum með gátum eða leiðbeiningum sem áttu að leiða okkur að fjársjóðunum. Stundum áttum við í basli með að skilja það sem skrifað var eða teiknað og var þá rokið inn í svefnherbergi foreldranna og tosað í þau þar til lífsmarks varð vart til að fá lausn okkar mála.
Þegar eggin voru fundin (hvort sem það var í þvottavélinni eða undir sófa) voru fyllt stór glös af mjólk og komið sér vel fyrir beint fyrir framan skjáinn.
Þessum páskadagprósess var yfirleitt lokið fyrir kl.08:00
Gleðilega páska allesammen!!
mánudagur, apríl 10, 2006
arans BN
Meira vesinið!!
Erum búin að borga netið í rúma viku núna og routerinn búinn að fara í stillingu hjá Símanum og enn erum við NET-laus.
Lokaverkefnis skil á miðvikudaginn!!
BN er alveg glatað fyrrtæki!!

föstudagur, apríl 07, 2006
þriðjudagur, apríl 04, 2006
Draumur?
ég verð að skella á ykkur draumi næturinnar. Mér finnst hann frekar absurd fyndinn.
Ég var s.s. komin með nýja vinnu og var að mæta í fyrsta skiptið. Ég átti að fara að vinna með henni Örnu í þjónustuveri Vodafone.
Ég voða spennt mæti á staðinn en þá er þjónustuversdeildin í húsi sem er eins og Smáralind bara stærri og fullt af búðum og öðrum fyrirtækjum með vinnuaðstöðu líka á staðnum. Ég vafra víst þarna um og skoða allt voða heilluð finn loksins Örnu í einhverjum svona símabás...en hún má ekkert vera að því að tala við mig;) Ég held áfram að vafra um í leit að einhverju eða einhverjum og gleymi mér aftur í búðarrápi. Svo er klukkan allt í einu orðin 18 og allir að fara heim úr vinnunni. Þá hugsaði ég "shit klukkan svona margt, ég hef ekki náð að taka eitt símtal á heilum degi, ég verð ábyggilega rekin"...ég hleyp aftur tilbaka voða bjartýn og ætla bara að redda mér með því að taka nokkur símtöl áður en allir fara. En þá finn ég ekki neinn bás með síma og gefst upp eftir að hafa stefnt lífi og limum í hættu með að stytta mér leið á milli hæða með því að príla e-ð voða.
Það seinasta sem ég man er að ég ætlaði að redda vinnunni með því að segja eitthvað með að fyrsti dagurinn hafi verið svo erfiður af því ég vissi ekkert hvað ég ætti að segja við fólkið í símanum.
- Já mín kæra, góð redding, góður starfsmaður!!
Æ mér fannst þetta svoldið fyndið....nýja vinnan hennar Örnu hlýtur að vera mér mjög hugleikin;)

föstudagur, mars 31, 2006
Krisa!!
Jæja þá er komið að því.
Það verður víst einhver pása á minni frjálsu og óháðu bloggun héðan í frá.
Á morgun 1.apríl missum við netsambandið okkar.
Já hugulsama fólkið hjá Bygggingafélagi Námsmanna(sem við leigjum hjá) ákvað að hætta að þjónusta íbúðirnar með interneti frá og með deginum í morgun.
Ofsalega gáfulega gert af þeim þar sem ALLIR námsmenn eru núna í miklum önnum og sumir meira en aðrir (LOKAVERKEFNI). Alveg óþolandi að þurfa að fara að vesinast í einhverju svona rugli þegar maður á að vera að einbeita sér að skólanum.
Þetta BN fólk hefur engann skilning á réttum tímasetningum.
Aldrei mun ég nenna að leigja hjá þeim aftur og vonandi neyðist ég ekki til þess (*bitur*)
S.s. ekki meira blogg þar til netsamband kemst aftur á í kotinu hjá lokaverkefna-parinu!!
ILL be Back!!

Afmælisoskir
miðvikudagur, mars 29, 2006
Nooooooooo........
Eins gott að maður geti áfram keypt ís í sveittu trópísku banana-umhverfi með apa sem talar og selur manni egg með dóti í.
Annars hef ég ekkert að sækja til Hveragerðis framar.
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1193219

þriðjudagur, mars 28, 2006
Im amazed!!

Þetta er alveg magnað!
Allt er nú hægt að búa til úr pappír....og bara pappír.
Kíkið á síðuna hjá þessum gaur. Hann byggir allskonar dót og eftirlíkingar af hlutum og meira að segja stigum úr pappír og það í fullri stærð.
Svo er bara spurningin hvað er ekta og hvað er pappír .......?
http://oncotton.co.uk/peter/paper/paper.html
....og ég sem hélt að ég væri dúttlari!!
sunnudagur, mars 26, 2006
Skemmtileg tilbreyting
föstudagur, mars 24, 2006
Mörgæsir eru sniðugar

Jæja bara komin helgi....
Föstudagur: slaka + lokaverkefnisvinna
Laugardagur: heimsækja ömmsuna mína og mögulegt matarboð um kvöldið með möguleika á bæjarferð?
Sunnudagur: Lokaverkefni og kannski bara pönnukökur
Svo kannski læt ég gott af mér leiða í nýju húsnæði foreldra minna....
Jeij ég dýrka lítið planaðar helgar!!
Góða helgi
fimmtudagur, mars 23, 2006
Blowing in the wind!
Þetta veður er alveg að fara með mig!
Ég var komin í vor gírinn um daginn en svo ásnerist allt við.
Það var svo sem allt í lagi í gær þó það væri skítkalt....en nú er líka komið rok.
Þurrt rok sem þýðir sandur í augum og dagblöð í andlitið.
Sumarjakkinn er aftur farinn innst inn í skáp!
Hananú

miðvikudagur, mars 22, 2006
"á að vera að skrifa lokaverkefni"-blogg
Vissu þið að það er í rauninni til vefsíða sem heitir:
- http://www.i-am-bored.com/
Svo rakst ég á þetta blogg fyrir tilviljun:
- http://snap-o-mania.com/
...svona til að lífga aðeins upp á daginn!

sunnudagur, mars 19, 2006
Kommenta verðlaun Eyjunnar!

Hin mikils virtu Kommenta-verðlaun Eyjunnar voru veitt í dag.
Verðlaunahafinn að þessu sinni er Frú Birna F. sem sýnt hefur mikinn metnað við kommentun á síðunni.
Hvatningaverðlaunin hlýtur Ungfrú Sigga Gyða fyrir frumleg og áhugaverð komment.
Öðrum kommenterum þakka ég fyrir þáttökuna og vonast til að fólk leggi metnað í að hljóta næstu verðlaun.
Við hjá Eyjunni.blogspot.com óskum vinningashöfum hjartanlega til hamingju með verðskuldaðann sigur
-Formaðurinn
laugardagur, mars 18, 2006
Laugardagsnörd!
Já já mín er bara heima í rólegheitunum þetta laugardagskvöld.
Vinnuhelginni næstum lokið...bara ein vakt eftir á morgun.
Helgin hefur mestmegnis farið rólega fram...fyrir utan nokkur skemmtileg atvik.
Þá einna helst eitt sem mér fannst frekar skondið:
Í gær föstudag var ég að afgreiða konu með ca. 6 ára strák. Þegar mamman segir allt í einu "Nei sjáðu hver er að koma". Þegar stráksi lítur út um gluggann sér hann þjóðhetju íslendinga á leið inn í búðina, enga aðra en sjálfa Silví Næt...þó ekki í fullum skrúða, bara venjulegum fötum. Það voru tveir menn með henni en þó ekkiPedro og Julio eða hvað þeir heita.
Stráksi missir hökuna niður á bringu og glápir úr sér augun. Þjóðhetjunni fannst þetta voða sniðugt og heilsaði upp á stráksa og brosti til hans. Hakan fór þá enn neðar.
Ég klára að afgr mömmuna og strákurinn fer með henni út....hann fer alveg niður tröppurnar, passar að vera komin örugglega nógu langt í burtu og snýr sér þar við og veifar eins og brjálaðingur til hetjunnar sinnar. Hetjan snéri baki í strákinn og sá því ekki veifið....ég aftur á móti kom auga á það og þurfti bara að halda niðri í mér hlátrinum á meðan hún var að segja hvaða blóm hún vildi.
Hlýtur að vera skrítið að vera svona mikil hetja fyrir það eitt að láta eins og ofdekruð og illa upp alin gelgja;)
Skrítið en einhverra hluta vegna er þetta bara asnalega töff.
Plan kvöldins: Kvikmyndin Capote...
Lifið heil

miðvikudagur, mars 15, 2006
Komm-bakkið

Össöss...pásan endist ekki einu sinni í viku! (Mínir nánustu höfðu enga trú á mér)
Ég ákvað að gera þetta ekki svona formlegt og kalla þetta ekki pásu...nú blogga ég frekar bara þegar mér hentar.
Pásan var í raun bara gerð til að sýna TJ fram á að ég væri ekki háð þessu blogg-bloggi.
Gjess hís ræt:/
Önnur ástæða fyrir því að ég ætla ekki að hætta að blogga ( er greinilega búin að hugsa þetta lengi) er sú að ég verð frekar svekkt þegar fólk hættir að blogga(svona formlega) því maður er nottlega að lesa þessar síður.
Það er eins og mogginn myndi skrifa í blaðinu á morgun" við erum hættir essu...þetta er seinasta útgáfa Moggans". Það er ekki hægt að bregðast fólki svona!!
Svo er þriðja ástæðan sú að það styttist í að ég fari að halda af landi brott og ekki hef ég efni á að hringja í alla og segja þeim tilgangslausu fréttir dagsins. Ég get alveg eins sparað nokkra aura og haldið lífi í þessari blogg elsku.
Og auðvitað ástæðan: "Im not a quitter!"
Jæja gott fólk haldið bara áfram að heimsækja síðuna.....annars er engin ástæða fyrir skrifum...nema þá fyrir sjálfa mig!
mánudagur, mars 13, 2006
laugardagur, mars 11, 2006
jæja...
...hætt að vera brjáluð.
Helgin byrjaði vel. Þessi fína árhátíð á fimmtudagskvöldið. Maður getur eiginlega sagt að þessi árshátíð hafi varað ansi lengi hjá mér þar sem ég reis ekki heil úr rekkju nema ca. einum og hálfum sólahring seinna.
Þetta voru frekar leiðinleg "veikindi"...en ég meina þetta var líka seinasta árshátíð mín sem nemandi K.H.Í.
Helgin fer í skólavinnu (þar sem föstudagurinn var mjög afkastalítlill) og afslöppun...maður þarf nú að jafna sig;)
-en kannski maður leyfi sér að kíkja aðeins í smáralindina eða eitthvað sniðugt...
gúten helgí!

miðvikudagur, mars 08, 2006
snar brjaluð!
Íslenkir háskólar eru að missa allt niður um sig!!
Ég á ekki til orð yfir hallærislegum vinnubrögðum gagnvart útskriftanemum.
Ég átti að upphaflega að útskrifast 10. júní 2006. Voða gaman!
Það var vandlega merkt inn í skóladagbókin sem allir nemendur fengu frá skólanum í upphafi skólaárs.
Í janúar er allt í einu sendur póstur til nemenda um að K.H.Í ætli að spara nokkra seðla og nota okkur sem upphitunaratriði fyrir útskrift háskóla íslands þann 24.júní. Fólk mótmælti en skólinn lét það sem vind um eyru þjóta.
Bömmer...en víst lítið við því að gera.
Ég ákvað að mæta þá ekki í mína útskrift heldur nota bara útskrift TJ þann 27.maí sem minn dag.
Í dag kom svo bréf frá L.H.Í. að þeir ætli að færa útskriftina fram til 24.júní sem er miðvikudagur.
Útskriftin á að vera milli 16 og 18 í Borgarleikhúsinu.
Það er óþolandi....að tveir háskólar hér á þessu skeri geti ekki haldið sig við settar dagsetningar.
Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að ég nenni ekki að útskrifast.....þetta er bara vesin hvort sem er!!
GRRRRR!!!

Árshatið
K.H.Í. heldur árhátíð sína annaðkvöld á Broadway.
Á Móti Sól og Gullfoss og Geysir ætla að leika fyrir dansi...matseðillinn verður ábyggilega svipaður þeim sem maður fékk á menntaskólaböllunum hérna í denn.
Þó að ég sé orðin nett leið á Broadway ætla ég auðvitað að skella mér því að ég hef á tilfinningunni að þetta verði síðasta skiptið sem ég muni skemmta mér árhátíðlega í því pleisi.
Spennan fyrir þessu er ekki gífurleg en ég er viss um að eftir að ég kem úr klippingu hjá mömmu Guðrúnar á morgun...treysti á hana;)...auk þess er ég líka búin að bíða eftir að komast í klippingu 4eva

þriðjudagur, mars 07, 2006
Le scent du Wisteria
sunnudagur, mars 05, 2006
Minnisleysi eða bara ansi omannglögg?
ég er alveg rosaleg.....ég hef aldrei viljað viðurkenna að ég væri ómannglögg...en verð víst að játa mig sigraða.
...ég var að vinna í gær( laugardag) og á miðri vaktinni koma inn strákur og stelpa til að kaupa blóm.
Ég horfi tvisvar á strákinn því mér finnst ég kannski einhversstaðar hafa séð hann áður...en andlitið sagði mér ekker svo ég hélt ég hefði bara séð hann í sjónvarpinu eða að hann kannski hafi verslað hjá okkur áður. Ég þekkti hann amk. ekki snitti.
Svo segir hann við mig eftir smá stund: "hef ég ekki komið í mat til þín?". Mín fyrstu viðbrögð voru að það hljómaði hátt "what?" í hausnum á mér. Þegar hann sá engin viðbrögð hélt hann áfram vandræðalega "já í Köben...það er nú orðið svoldið síðan".
Heyrðu þá kveikir mín...jújú...þessi maður hafði víst snætt einhvern kvöldmat heima hjá mér í Köben ásamt tveimur vinkonum mínum. Hann kom sem sagt með þeim og við skemmtum okkur öll vel það kvöldið...gott ef við skelltum okkur ekki bara á djammið eftir mat.
Þetta var vandræðalegt en samt ekki óyfirstíganlega vandræðalegt. Ég afsakaði bara með að ég væri ómannglögg...þó mér finnist ég ekki vera það.
En það sem er vandræðalegt við þetta er að fyrir einu og hálfu ári síðan kom þessi sami strákur upp að mér í búð í smáralindinni og heilsaði mér og byrjaði að spjalla. Ég vissi heldur EKKERT hver hann var þá. TJ kom labbandi að okkur og stráksi byrjaði að spjalla við hann og TJ svaraði eins og þeir væru mestu mátar. Það var bara ég sem var algerlega í myrkrinu í þessu samtali. Þegar við fórum út spurði ég TJ hver þetta eiginlega hefði verið!!
Ég skammast mín ennþá fyrir þetta...hvernig er þetta hægt!!!

mánudagur, febrúar 27, 2006
Þa er það opinbert...
Ekki laust við að einhverjir sperri upp augun við svona fyrirsögn;)
Við vorum s.s. rétt í þessu að panta okkur ONE WAY miða til Köben þann 4.júní 2006!
Þá munum við herja á Danmörku í óákveðin tíma þar til annað verður ákveðið.
En sannir íslendingar snúa alltaf einhverntíman aftur....og ég hef ávallt litið á mig sem einn slíkann. Say no more!
Langaði bara að deila þessu með ykkur núna því það er líklegt að ég verði búin að gleyma þessu á morgun.
Svo held ég að ég verði að gefa Íslandi stig fyrir einstaka veðurblíðu þennan mánudaginn.

eðall
otrulega fin helgi!
föstudagur, febrúar 24, 2006
Happy friday:)
Komin þessi líka yndislega vinnulausa helgi.
Plan:
-dandalast aðeins í miðbænum
-bruna upp í bústað (Héðinsholtið fræga)=góður matur,fjölskylda og potttur!
-bruna í bæinn
-tónleikar með Pharcyde
-baka bollur fyrir bolludaginn
-hrista sig í tíma nr.tvö af funk freestyle dansi
-slaka!!
Í gær var top secret fundur hjá vatnaliljunum og það lítur út fyrir að hin svakalega "sumarbústaðarferð vatnaliljanna" sé að verða að veruleika;)
-who would have thought...hehe
Dröfn mín þú verður nú að fara að láta sjá þig bráðum...Birna er alltaf með súkkulaði köku frá jóa Fel á boðstólnum. Þú getur ekki látið hana framhjá þér fara nema visst mörgum sinnum;)
Góða helgi allasammen

þriðjudagur, febrúar 21, 2006
Hversu sorglegur þriðjudagur...
....rigning og þungskýjað!
Fyrirutan silfursmíði tímann minn í morgun hef ég haldið mig ansi vel innan dyra í dag...þá helst undir sæng.
Það er ekki hundi út sigandi í þetta veður.
Hildz ætlar að gera heiðarlega tilraun til að hrista sig svoldið vel í kvöld þar sem við ætlum nokkrar saman að mæta á ee-ð freestyle-funk námskeið í Kramhúsinu. Ég er viss um að þetta verði ansi skrautlegt þar sem einungis framhaldsnámskeið var í boði.....fyrir okkur byrjendurna:)
Wish me luck!

laugardagur, febrúar 18, 2006
Til hamingju Island!!
Eurovision í maí verður hillarious. Geeeikt skiluru!
Verður gaman að sjá hvort að lagið verður "snurfusað" e-ð fyrir keppnina (eins og Garðar Thor sagði)

föstudagur, febrúar 17, 2006
Nooooooooooooo
Æ mig auman!!
Tekið af Mbl.is:
"Varað við tölvuormi sem ræðst á Apple-tölvur
Notendur Macintosh-tölva eða „Makkanotendur“, eins og þeir eru jafnan kallaðir, hafa verið hvattir til þess að vera á varðbergi gagnvart fyrstu tölvuveirunni sem ætlað er að herja á Apple-tölvur. Umrædd veira, sem kallast „Leap-A“, reynir að dreifa sér í gegnum iChat samskiptaforrit Apple.
Tölvuormurinn dulbýr sig sem myndir af tölvukerfinu Leopard, sem er væntanlegt á Apple, og stelur hann nafnalistum ef honum er hlaðið inn á tölvuna.
Veiruvarnafyrirtæki segja að „Leap-A“ hafi ekki dreift sér víða og ólíklegt þykir að margir Makkanotendur lendi í því að fá tölvuorminn inn á sína tölvu.
Fréttavefur BBC greindi frá þessu."

Konudags-craze
Jæja það er komin helgi....
...konudagshelgi (ATH. sunnundag).
Mín svo heppin að vera að vinna.
Karlar kaupið e-ð annað en blóm...við viljum miklu frekar dekur, e-ð eigulegt eða bara koss!!
Vona að ég sleppi lifandi frá þessum degi...
Góða helgi!

þriðjudagur, febrúar 14, 2006
Happy Valintines..;)

Ég er í staðsett himnaríki akkurat núna...var að koma úr nuddi (nei ekki valintines gjöf;) )
Þetta fólk á skilið medalíu fyrir að velja þessa starfsgrein!
TJ skilaði BA ritgerð í dag...héldum upp á það. Nú á hann bara eftir BA verkefni.
Þetta er nóg í bili...er farin í mat hjá uppáhalds kokknum mínum = moms
sunnudagur, febrúar 12, 2006
föstudagur, febrúar 10, 2006
Töff töff töff
fimmtudagur, febrúar 09, 2006
Illu er best af lokið...
...segi svona þetta kítl og klukk er bara stemmning ef maður hefur tíma. Reynda er það kannski gagnlegast fyrir mann sjálfann að þurfa aðeins að "go back in time" til að svara spurningunum;)
4 störf sem ég hef unnið við um ævina:
-Blómakona..blómabindari...blómaafgreiðslukona(call it what u want)
-Leikskólakona
-Pökkunarvinna í útlöndum(never again)
-Starfsmaður í gulri og bleikri stórverslun kennd við grís( maður verður nú að vera stolt af fyrsta jobbinu)
4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur og aftur...
-pride n predjudice (ég veit...en ég fíla svona sögur)
-úff þessi er erfið þar sem ég gleymi bíómyndatitlum eins og skot ef ég hef bara séð þær einu sinni.
Þeir sem þekkja mig vita líklegast hvers vegna ég á við þetta vandamál að stríða;)
4 staðir sem ég hef búið á:
-Reykjavík, westside!
-København, Danmark
-Swakopmund, Namibia
-á hólnum í 105 Reykjavík
(-já og líka Siglufjörður)
4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:
-Simpson
-Family guy
-Will og Grace
-Desperate Housewives
-og reyndar margir fleiri
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
-Portugal, Lisboa
-Mallorca, Palma
-Krít, Hania
-Túnis, Hammamet
4 síður sem ég skoða daglega (fyrir utan blogg):
-Mbl.is
-Ekstrabladet.dk (ansi mikið upp á síðkastið)
-Khi.is
-Bigperk.com
4 matarkyns sem ég held upp á:
-Grjónó (sem mamma gerir)
-nánast all mexicanfood
-nánast all italian food
-grænmetisréttirnir okkar TJ
4 bækur sem ég les oft:(úff, er nú ekki vön að lesa sömu bækurnar mörgum sinnum!)
-1000 vegetarian recepies
-kökubók Hagkaupa
-the acryl artists bible
-hmmm svo gæti ég ábyggilega lesið Garfield teiknimyndabækur oftar en einu sinni
4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
-í sól og hita á Fiji eða jafnvel hawaii
-í heitapottinum í Neslauginni
-undir sæng með elsku tölvuna mína á nýja rúmborðinu okkar
-í sumó (Héðinsholtinu)
4 bloggarar sem ég klukka:
-Sigga Gyða
-Dröfn
-Guðrún Björk frænka
-Sigurgeir cuz
(-og Troels ef hann nennir)
NJótið vel og eigið góðan dag!

þriðjudagur, febrúar 07, 2006
Folk að missa sig i mugæsing....eða hvað?
Mér líst EKKERT á þetta lið í múslimalöndunum. Fæ illt í magann bara við að hugsa um hverju þetta fólk er að öllum líkindum að koma af stað. Þriðja heimstyrjöldin?!! Kalda-trúar-stríðið?! Varla annað þorskastríð....en þó maður veit ekki...þetta fólk er til alls líklegt.
Ég skil að fólk sé ekki mikið fyrir að það og málefni þeirra(trúarleg eða ekki) séu ekki tekin alvarlega af öðrum hópum.
En samt má alveg e-ð á milli vera. Hvað varð um að sýna skilning og umburðalyndi og að fyrirgefa náunganum? Tilheyra þessi atriði einungis kristinni trú??!!
Við höfum ákveðið að flytja til Köben í sumar. Fólk af þessari trú verður nú bara að taka sig saman í andlitinu og taka við afsökunarbeiðni eins og annað fólk!!! Þetta minnir svoldið á þvera krakka sem þráast við taka einhvern í sát sem hefur skemmt "dótið" þeirra....en samt beðist afsökunar.
Maður er nú bara ansi uggandi um lok þessa máls!!

laugardagur, febrúar 04, 2006
Jurovision
Jæja...loksins fékk ég að heyra út á hvað allt undankeppnar-fárið gekk út á.
Ég verð bara að segja að lagið með Sylvíu Nótt er það eina með einhvern snefil af frumlegheitum af lögunum í þessari keppni.
Lagið er fyndið á ísl/ensku...en ég ímynda mér að sniðugheitin hverfi svoldið ef þetta verður þýtt á al-enskuna.
Sjálf melódían er góð....og manni leiddist ekki á meðan lagið var sungið.
Sendum Sylvíu til "hvar sem keppnin verður haldin í ár". Hún verður fín landkynning...frekar það en gamla góða 15 sætið.

fimmtudagur, febrúar 02, 2006
Januar buinn...
...þá er þessi langi og dimmi mánuður loksins búinn. Það þýðir að útsölurnar eru líka að klárast. Held það sé fátt leiðinlegra (fyrir mitt leiti) en að versla á útsölum. Ég hef ekki þetta baráttueðli sem þarf þegar kemur að því að krækja í bestu kaupin í upphafi útsala. Þannig að þegar ég loksins læt sjá mig í búðum eru öll fötin sem ekki seldust í fyrra og hitt í fyrra hanga eftir á slánum og stundum er meira að segja gömul geymslu lykt af þeim.
Reynslan hefur sýnt mér að útsölubransinn er ekki mín deild...og þar af leiðandi gleðst ég mikið þegar að útsölulokum kemur.
Minn tími mun koma!
(p.s. öllum er velkomið að heilsa upp á mig í blómabúðinni á morgun föstudag...its gonna be a verí LO14O22Ong dei!! já og laugardag líka;)

mánudagur, janúar 30, 2006
sunnudagur, janúar 29, 2006
Helgin

Jú jú...helgin búin...eins og skot.
Ég áorkaði ýmsu um helgina. Heimsótti listamann á vinnustofu(út af skóla verkefni)
og hjálpaði TJ eftir fremsta megni að standa að frumsýningu á nýrri "Alis" hjólabrettamynd sem haldin var í Laugarásbíói laugardag. Það var vel mætt og ágætis stemmning. Út að borða á Shalimar þar sem var maturinn góður en ansi vel kryddaður. Hvítlauks nan-brauðið var toppurinn. Svo var slakað á í góðra vina hópi um kvöldið og kíkt aðeins niður í bæ...
-ég er sátt en þreytt eftir þessa helgi(en bara af því að maður kom alltof seint heim; )
föstudagur, janúar 27, 2006
Vissir þu...
...að Mozart á afmæli í dag?
Ég vissi það ekki fyrr Google.com sagði mér það....frekar sætt...tjékk it
http://www.google.is/
Kallinn hefði bara orðið 250 ára í dag....ekki slæmur aldur það

miðvikudagur, janúar 25, 2006
Til hamingju Baggalutur...
þriðjudagur, janúar 24, 2006
International D-day
mánudagur, janúar 23, 2006
-sel það ekki dyrara en eg keypti það
Orðið á götunni er að Friends ætli að taka upp 4 nýja (klukkutímalanga) þætti seinna á árinu.
Júhú...
Júhú...
sunnudagur, janúar 22, 2006
ferskt og sumarlegt
Gledilegan "helgin er buin" dag
jæja....stórt JÆJA...enn og aftur er ég fegin að helgin er búin. Ég er ábyggilega ein af fáum sem oft er fegin að það sé komin mánudagur. Ég er búin að vinna föst,laug og sunn og inni í því var bóndadagurinn. Það var ágætt að gera...en konur voru samt ekki alveg jafn duglegar að kaupa blóm handa körlunum sínum eins og í fyrra eða árið þar áður.
Ég hef þrátt fyrir vinnuna náð að borða þorramat tvisvar um helgina...ég flokkast samt undir "harðfisks og hangikjöts-týpuna" sem tekur enga sénsa í punga og kjamma áti. Ég er sátt við það...hákarlinn er heldur ekki að tæla mig með ljúfum ilmi(svo það er eiginlega hans sök að ég borði þetta gums ekki).
Skellti mér í fjölskyldu-þorra-boð en kom frekar seint vegna vinnunar (ætti maður ekki bara að hætta í þessari vinnu?!) þannig að þegar ég hafði rétt lokið við að borða voru allir á leiðinni heim;)...En þrátt fyrir stuttan tíma þá var þetta ánægjulega fjölskyldustund.
All in all fín helgi.

föstudagur, janúar 20, 2006
miðvikudagur, janúar 18, 2006
mánudagur, janúar 16, 2006
Betra er seint en aldrei...

Skelltum okkur á "A little trip to heaven" í kvöld, þessa líka "frægu" "íslensku" mynd.
Skemmtilegt nokk varð ég ekki fyrir vonbrigðum. Hafði reyndar engar vonir og væntingar fyrir utan að sjá Juliu Stiles stíga á stokk. Mér finnst hún ennþá töff, hún er e-ð svo öðruvísi og klár leikari....man fyrst eftir henni úr 10 things I hate about you og hún virðist bara verða betri með aldrinum.
Myndin var á heildina litið svoldið dimm og skítug(white trash-leg)með miklu roki sem er líklega vegna þess að myndin er tekin upp á skerinu okkar en einnig var hún frekar spes og áhugaverð.
Dómur: 3 og 1/2 tópas af 5 mögulegum.
sunnudagur, janúar 15, 2006
15. januar!
Hvað er málið með þessa dagsetningu! Mér finnst vera komin einhver allt annar dagur...en þegar ég spyr mig hvaða dagur eigi frekar að vera þá get ég bara ekki svarað því. Mér finnst amk. ekki að það eigi að vera 15.janúar. Ég myndi skjóta á 2.janúar eða 20. febrúar frekar en 15.!!( Svona hefur mér reyndar liðið undanfarna daga) -ég virðist ekki vera mikið fyrir þetta tímabil.
Anyhooo þá langaði mig bara til að blogga að því að fólk víðsvegar um netið virðist vera gripið blogg-gleði og ég ákvað að ég ætti að taka þátt í gleðinni. Auk þess ætti ég að vera að undirbúa mig fyrir fyrirlestur sem ég á að halda í skólanum á morgun...en það er að sjálfsögðu aukaatriði þegar kemur að tilgangslausu sunnudags-blogg-fjasi...
Ég fór í Smáralindina á föstudaginn og keypti mér buxur...stór-sigur þar á ferð þar sem buxur sem heilla mig upp úr skónum eru alls ekki á hverju strái. Því miður.
Að lokum: ég er komin með leið á að labba í snjónum...eins og hann er nú yndislegur séður út um glugga.

fimmtudagur, janúar 12, 2006
Menning
Ég var að koma heima af túskildingsóperunni.
Leikararnir stóðu sig bara ansi vel. Hljómsveitin var góð og leikmyndin skemmtileg.
En handritið....var ekki minn tebolli.
Leikritið fær tvö tópas af fimm mögulegum á Hildz-skalanum.

miðvikudagur, janúar 11, 2006
Jæææja...
...ætti ekki bara að loka DV til frambúðar.
Ekki það að mál dagsins í dag sé einhver betri ástæða heldur en önnur.
Þetta blað er og hefur alltaf verið frekar andstyggilegt hvort sem er.
Nows as good a time as any!!

Let it snjow
Það bara snjóar og snjóar!
Vonandi endist þessi snjór þanga til á morgun svo fólk komist á skíði/bretti. Ekki verð ég þar á meðal þar sem vikan mín er út plönuð með vinnu, leikhúsi, matarboði og fleiru. Damnnn íd!
Jæja nóg um það ég er búin að vera að taka svoldið til hjá mér og ákvað að það væri komin tími á bloggið í leiðinni.
Ég var á myndlistasýningu áðan í galleríi Sævars Karls (er á námskeiði í listasögu sem krefst svona mikils lista-metnaðs) þar var smá sýning hjá ungum listamanni /að öllum líkindum/ á uppleið...þeir kíkja sem vilja.
Hafiði það nú gott í snjónum
(allir nema þú Arna...bið að heilsa á Kanarí)

mánudagur, janúar 09, 2006
Rough-tough times ahead...
Ég hef lokið fyrsta degi af síðustu skólaönn minni.
Ég er með hnút í maganum.
Þetta verður sko hektísk önn með yfirdrifið NÓG af verkefnum.
-úff!
Aðeins léttari sálmar:
Ég fór í dag á sýningu á verkum Kjarvals sem núna stendur yfir á Kjarvalsstöðum (karlinn kominn heim til sín;).
Mæli barasta með því að vera pínulítið menningarlegur og kíkja á þennan yfirmáta ástsæla listamann þjóðarinnar. Hann fær mann virkilega til að sjá hið íslenska hraun með öðrum augum...ja og bara skilja um hvað allt fárið snýst.

sunnudagur, janúar 08, 2006
Muzakka
Jæja...þá hefur maður farið á tónleika til að sýna góðu málefni stuðning og nýtt tækifærið til að bera áhugaverðar hljómsveitir/tónlistarmenn augum.
Ég er bara mjög ánægð með þessa tónleika. Tónlistin var góð, góð mæting, málefnið gott og málefnið fékk að njóta sín. ég hélt að þetta væri kannsi einskonar sölubrellu hugmynd hjá einhverju gróðagúrúinu en það var ekki að sjá þar sem maður fékk beint í æð ýmsar upplýsingar um málið sem voru mér(=almúganum) ekki nægilega kunnar(<-shame on me!)
ýmsir gjörningar voru á göngum Laugardalshallar ásamt fólki sem dreifði dreifildum og þessháttar...gott mál.
Þeir sem stóðu uppúr hjá mér voru Björk og Zena(hún er bara orðin klassíker blessunin), Sigurrós fór létt með að ná athyglinni, Damien Rice fór úr hinum blíða "Blowersdaughter" manni í eitthvað nuttcase á sviðinu (verí kjúl)...já og svo er Mugsison ansi sterkur á sviðinu með (og án) Hjálma sem þarf varla að nefna.
Mín er sátt....stoppum virkjanirnar...komið alveg nóg af þeim anyway!

laugardagur, janúar 07, 2006
miðvikudagur, janúar 04, 2006
þriðjudagur, janúar 03, 2006
hversu töff...
mánudagur, janúar 02, 2006
Gleðilegt nytt ar!!

2006 bara mætt í öllu sýnu veldi. Ég er engin völva en tel að þetta blessaða ár eigi eftir að vera viðburðaríkt...hef þó engar heimildir fyrir því. Gamlárskvöld 2005 fór fram úr mínum björtustu vonum (þar sem ég hef einsett mér að vera með vonir í lágmarki fyrir þetta árlega kvöld) og var ég bara mjög sátt þegar kvöldinu/morgninum lauk. Vorum með fjölskyldunni langt fram á nótt í góðu glensi eftir að hafa borðað á okkur gat af eðal áramótamat, skálað í kampavíninu og sprengt nokkrar rakettur kl.00:00 og svo haft það kósý og spjallað með snakk og osta til ca.3. Leiðin lá þá niður í bæ í teiti á Tjarnargötu þar sem við áttum hressilegt kvöld með nóg af allskonar fólki.
Ég er bara mjög sátt við byrjunina á árinu og er bjartsýn (það er partur af ný ársheitinu mínu).
Mig langar líka til að nota tækifærið og kynna fyrir lesendum nýjasta meðlim fjölskyldunnar og jafn framt mína nýju bestu vinkonu: Fúdjí frænku (hugguleg mynd af henni fyrir ofan)
fimmtudagur, desember 29, 2005
Tjuhæ...
Ég var að klára jólabókina þetta árið: Flugdrekahlauparinn eftir Khaled Hosseini
Var búin að hlakka til að lesa hana og varð ekki fyrir vonbrigðum. Mjög sorgleg, áhugaverð og falleg saga. Ekki laust við að maður felldi tár. Erfitt að leggja hana frá sér. Mæli eindregið með henni...
TJ kemur aftur í kvöld (ef það nú er flogið frá Köben, það er víst snjóstormur=5 cm snjólag og smáskafrenningur).
Vonum bara það besta.
Áramótin eftir 2 daga...hvernig er stemmningin á fólki?
Er það spil í heimahúsi eða villt biðraðadjamm í miðbænum?

mánudagur, desember 26, 2005
komin og farin...
þá eru jólin komin og farin!
Og mér sem finnst þau rétt vera byrjuð.
Þetta er búið að vera yndislegt...frábærar gjafir, matur og jólaboð ásamt huggulegum stundum í faðmi fjölskyldunnar. Getur maður beðið um meira? Held nú ekki.
Það verður tekin Narnía á þetta í kvöld...

laugardagur, desember 24, 2005
Kæru landsmenn...
...fjölskylda, vinir og kunningjar nær og fjær,
ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og ástar og friðar á komandi ári!
Njótið nú þess að hafa það afar huggulegt yfir þessa yndislegu hátíð ljóss og friðar( ath.ekki spara konfektið!)
Jólakveðja
-frá mér
(og TJ sendir kveðju frá Dk.)

þriðjudagur, desember 20, 2005
..timinn er svo lengi að liða..
Ja sei sei...4 dagar til jóla og mér finnst það heil eilífð!
Er það af því að tilhlökkunin er að sprengja mig?...nei reyndar ekki...eiginlega finnst mér þessi tími bara vera svoldið useless. Akkurat núna snýst allt um jólin og þegar búið er að gera allt myndast bara einhverskonar biðtími.
Ég er ein í kotinu og stemmningin er bara ekki að gera sig hérna heima eftir jóla-huggulegheit mörg kvöld í röð.
..fer að vinna á fimmtudaginn. Það á vonandi eftir að drífa tímann áfram.
Grinch

mánudagur, desember 19, 2005
laugardagur, desember 17, 2005
Afmæliskveðja
föstudagur, desember 16, 2005
miðvikudagur, desember 14, 2005
Hinn sanni jolaandi?
...þessi árstími hefur ýmislegt ljúft með í för...jólin, ljósin, gleðina og hamingjuna.
En það er líka eitt sem bregst ekki að láti á sér bera um þetta leiti. Lánasjóður íslenskra námsmanna. Betur þekktur sem L.Í.N.
Ég ætla nú ekki að vera að kvarta...EN mikið ofslalega er maður þreyttur á þessari stofnun. Sem er nú fjandi leitt þar sem maður á eftir að hafa þetta lið á bakinu þanga til maður er orðin gömul og grá.
Léleg kjör og endalaus hnýsni um tekjur fólks(sbr. endanlega tekjuáætlun) svo ekki sé minnst vanhæfni í persónulegum samskiptum!
Ég hringdi í símanúmer þessarar gamalgrónu stofnunnar í dag til að nálgast ákveðnar upplýsingar, mjög kurteis og róleg . Ekki nóg með að enginn nenni að svara símanum hjá þeim fyrr en eftir langa mæðu, þá svarar loksins einhver kerlingarbeygla með eintóm leiðindi í röddinni sem gefa vel til kynna að maður sé að trufla friðhelgi kaffibollans og kleinunnar! Svo fær maður svörin við spurningum sínum í "ofsalega ertu e-ð vitlaus" tón. Halló! Hvar er þjónustulundin í fólki(í þjónustustörfum?!!?)?
Jebbs....its the season to be jolly*

þriðjudagur, desember 13, 2005
How about it?
Er einhver í stuði fyrir Mugison, trabant og hjálma á föstudaginn??
Tónleikar á Nasa byrja kl.24.
Tónleikar á Nasa byrja kl.24.
mánudagur, desember 12, 2005
12 dagar til jola!
miðvikudagur, desember 07, 2005
Jolaföndur!

Jæja, búin með prófin. Á morgun ætla ég að skila síðasta verkefninu mínu og vera þá komin í 100% jólafrí.
Ég er reyndar komin í ekta jólastemmningu. Fagnaði próflokum með hádegismat á Vegamótum og labbaði svo í fullt af nýjum og gömlum búðum á laugarveginum. Endaði svo á að skera og steikja laufabrauð með familíunni ásamt því að fylgjast með leik Manchester United og Benefica( ekki góð frammistaða hjá Man.United, úff! )
Jóla-gleðin heldur svo áfram með jólatónleikum annaðkvöld. Ætla kíkja á frændann á sviðinu á Nasa ásamt hinum lútunum. Verður án efa stuð.
Ho ho ho
mánudagur, desember 05, 2005
Profa-bloggun
Skemmtilegt hvernig p´rofa lestur kemur manni alltaf á óvart. Mér tekst alltaf að gleyma hversu erfiður þessi prófatími er á milli prófatarnanna. Þó svo að ég fari bara í tvö formleg próf í ár (og ég er búin með annað þeirra) þá finnst mér þetta ansi erfitt.
Hver fann eiginlega upp á því að skella prófum á tíma sem maður notar í jólagjafa-vangaveltur, jólafata-vangaveltur, jólabaksturs-vangaveltur og þessháttar mikilvægar pælingar. Þetta er alveg eitur þegar maður á að vera að einbeita sér að bókum(í þessu tilviki að aðferðafræði).
Maður spyr sig bara hvernig maður fór að því hérna í denn að taka kannski hátt í 10 próf á desembermánuði...úff!?!
Ekkert blogg fyrr en eftir hádegi á miðvikudag. Þá er ég sko komin í jólafríið mitt!!

föstudagur, desember 02, 2005
Big day
Í dag á hún Dröfn afmæli. Hún er að heiman á afmælisdaginn þessi gæska en ég mun taka á móti gjöfum, blómum og súkkulaði fyrir hennar hönd í dag milli kl.10 og 22. : )
!!!Til lukku með daginn gamla mín!!!
Skellti mér á Harry Potter í gær.
Ofsalega er þetta vel gerð mynd....mæli algerlega með henni.
Ég er mikill H.P. aðdáðandi...mögnuð saga sem þeir eyðilögðu alls ekki með myndinni!
Bíð spennt eftir að sjá hvað þeir geta gert í næstu mynd.
Kv. Madam Blown Away

fimmtudagur, desember 01, 2005
Sitt litið af hverju
Hvað er ég búin að gera upp á síðkastið:
-fara út að borða á Shalimar í fyrsta skiptið
-ganga helv. vel í öðru jólaprófinu mínu
-fá fína einkunn út úr öðru jólaprófinu mínu
-kaupa miða á tónleika þann 6.( eða 7.) janúar 2006 með Siggu töffara
-kaupa eina jólagjöf...segi ekki handa hverjum
-Skanna Epal
-kynna mér jólabækurnar í ár
-borða piparkökur lesa milljón jóla-tilboðasbæklinga
-skreyta heimilið
-fá einn pakka í pakkadagatalinu mínu!
Á döfinni:
-fá fleiri pakka í pakkadagatalinu mínu
-læra fyrir aðferðafræði próf
-kaupa fullt af jólagjöfum
-vinna í jóla-blómabúðinni
-vera duglega að mæta í Baðhúsið
-baka smákökur...jeij
-fullt af afmælum hjá vinum og ættingjum
já já....happy times ahead

þriðjudagur, nóvember 29, 2005
Hvers a maður að gjalda..
fór í einn leikfimi tíma í gær...þá meina ég leikfimi...ekkert body-neitt...tíminn hét bara leikfimi-þessi gamla góða.
Meðal aldurinn var ca. 40 sem er ekkert atriði....ég ákvað bara að byrja varlega á átökunum þar sem ég get ekki kallað mig nautliðuga eftir kyrrsetu-verkfall haustsins. Tíminn var barasta svo fínn...svoldið hooperí og einhver lóð og teygjur. Rosa nett bara....mín hæst ánægð þegar heim var komið.
Í dag er önnur hlið uppi á teningum. Harðsperrunar eru mættar....damn it...og mér sem fannst þessi æfing ekki vera neitt brjáluð. Ég hef s.s. komist að því að ef ekki nema fyrir kraftaverk mun ég verð Miss.Flexible fyrir jólin. Sem er frekar súrt þar sem kortið rennur út þann 31.desmeber.
Yfir og út

Ja sei sei...
maður er barasta komin með kort í baðhúsinu. Jebb...þessi dugnaður í mér ætti nú að gefa mér nokkur stig hjá jólasveininum.
Ég sé fram á dugnað og stranga þjálfun....tja að minnsta kosti hoppar maður og skoppar e-ð smá með kellunum sem eru þarna.
Einnig sé ég fram á mikla konfektveislu um hátíðaranar með félögum mínum Nóa og Mr. Machintos þar sem ég er svo fyrirhyggjusöm að gera pláss fyrir þá á meðan ég get með smá sprikli í gymminu.....
Aðeins 26 dagar til jóla to go...

sunnudagur, nóvember 27, 2005
Gleðilegan fyrsta i aðventu
Jæja fólk...nú er boltinn farinn að rúlla...jólin eru officially á næsta leiti.
Ég ætla nú ekki að láta þetta hljóma eins og einhverja stress-pressu...eyddi bara helginni í blómó þar sem allt er komið í gull og glimmer búning, jólalög í útvarpinu og kúnnar að versla fyrir aðventukransana sína.
Stemmning?..já það má segja það. Létt jóla-stemmning beint í æð.
Langaði bara til að "spread the joy"
Mér varð hugsað til þeirra heppnu sem nutu tónleika Sigur-rósar í kvöld...hefur ábyggilega verið alveg brilliant.
Ég hef ákveðið að skella mér á næstu tónleika þeirra sem ég kemt á...hvort sem það er hérlendis eða erlendis.
Kvða.
Miss Joyfull Joyfull

fimmtudagur, nóvember 24, 2005
Ljos i myrkrinu:)
Já ykkar einlæg brá sér í einhverju flippi í ljós á Sælunni. Ég er að reyna að forðast ljósabekkina en lét undan þegar spegillinn sagði við mig í morgun að kominn væri tími til að hressa aðeins upp á "ég hef ekki farið út úr húsi í 5 mánuði" lookið mitt.
So I did. Sem er ekki í frásögu færandi fyrir utan að ég rakst á nokkuð merkilegt fyrirbæri. Það var karlmaður.....að vinna við að hreinsa bekkina. Hingað til (hef farið stöku sinnum ljós frá kannski 17 ára aldri;) hef ég AÐEINS séð stelpur í þessum ljósastofuvinnum. Er heimurinn að breytast? Já ég held það nú...jafnrétti kynjanna...áfram með smjörið!

My speis?
Rétt upp hend sem er dottin í þessa "myspace.com" bylgju!
Ég var að skoða þetta í gær og komst að því að þetta er heill heimur sem hefur farið fram hjá mér. Kom mér á óvart hversu mikið af íslensku fólki er með síðu þarna inni. Og núna líka yours truly.
Þetta er voða sniðugt...amk. enn ein leiðin til að drepa tímann þegar maður ætti kannski að vera að læra.
Tjékk it át

miðvikudagur, nóvember 23, 2005
sunnudagur, nóvember 20, 2005
Sma sunnudagshumor fra Afriku
THE GEOGRAPHY OF A WOMAN
Before the age of 16 a female is like North Korea. Only a few
weirdos want to go there and they end up in prison.
Between 18 and 20, a woman is like Africa. Half discovered,
half-wild,
naturally beautiful with fertile deltas.
Between 21 and 30, a woman is like America. Well developed and open
to trade, especially for someone with cash.
Between 31 and 35, she is like India. Very hot, relaxed and
convinced of her own beauty.
Between 36 and 40 a woman is like France. Gently aging but still a
warm and desirable place to visit.
Between 41 and 50, she is like Yugoslavia. haunted by past mistakes.
Massive reconstruction is now necessary.
Between 51 and 60, she is like Russia. Very wide and borders are
un-patrolled. The frigid climate keeps people away.
Between 61 and 70, a woman is like Mongolia. A glorious and all
conquering past but alas, no future.
After 70, they become like Afghanistan. Everyone knows where it is,
but no one wants to go there.
THE GEOGRAPHY OF A MAN
Between 15 and 90, a man is like Zimbabwe.
Ruled by a dick !

föstudagur, nóvember 18, 2005
Juhu!
FIMM vikna vettvangsnámi lauk í dag. Þar með hef ég lokið öllu mínu vettvangsnámi sem kennaranemi!
Búið að vera skemmtilegt og frekar lærdómsríkt en ég er samt frekar sátt við að þessu sé lokið í bili.
Nú taka við 2 próf og svo heilmikið jólerí með tilheyrandi stuði.
Kennaraneminn kveður að eilífu og háskólaneminn tekur við á ný...

miðvikudagur, nóvember 16, 2005
Visindalega sannað...
...að veikindi sökka.
Hvernig er hægt að vera svona kalt á fótunum? Mér líður eins og tærnar á mér séu í Alaska!
Og hvað er það að geta ekki komið sér þægilega fyrir á neinn mögulegan hátt í sófanum?!
Eina lausnin virðist vera rúmið...damn it...ég þoli ekki að gefast upp fyrir þessum pestum!

Hohoho...
Jæja nú er bloggið komið í smá jólabúning...því það er bara alls ekki svo langt í fyrsta sunnudag í aðventu.
Svo er ég líka komin í jólafíling og ákvað að láta bloggið fylgja með.
Ég var líka að endurskoða bloggara-linkana mína. Fullt af fólki er hætt að blogga og þá er ekkert gagn að því að hafa það á síðunni. Birna verður samt ekki fjarlægð því ég hef fulla trú á því að hún sjái að sér og taki sig saman á ný í blogguninni!!
Eigiði gott og dimmt miðvikudagskvöld(=ANTM)
.:Hildzy

þriðjudagur, nóvember 15, 2005
Gurls night out!
Í gærkveldi var stelpukvöld.
Ég, móðir mín og systir skelltum okkur á Vegó til að snæða. Fengum ferlega fínan mat..þeir klikka sjaldan þarna í eldhúsinu.
Svo var haldið í bíó á "In her shoes" með Cameron Diaz. Þar er á ferð nánast perfect stelpumynd. Er um systur sem eru svo ólíkar en geta ekki án hvor annarar verið. Mikið kemur fram af skemmtilegum skóm í myndinni og svo er Cameron alltaf sæt.
Mæli með henni fyrir allar pæjur.
-Gagnrýnandinn

fimmtudagur, nóvember 10, 2005
Verslunar-kreize...oder was!!?
Já já mín fór í Smáralindina í gær og Kringluna í dag.
Og vitiði hvað ég keypti....????........
Bara fullt fullt fullt af engu.
Ég keypti ekki neitt...og ofan á það sá ég ósköp fátt sem mig langaði í.
Hversu sorglegt er það?? (auðvitað fyrir utan það að ég á ennþá allann peninginn minn)
Held ég þurfi bráðlega að drífa mig í einhverskonar "verslunarþerapíu".
Í nótt eignaðist ég litla frænku. Virkilega gleðilegar fréttir fyrir fjölskylduna...en reyndar virðist vera sem að öll heimsbyggðin sé að gleðjast með okkur eins og sést hér: http://www.baggalutur.is/frettir.php?id=3237
Góðar stundir
The Non-shopoholic

miðvikudagur, nóvember 09, 2005
Snjør snjør snjør
Jeij....kominn jóla snjór úti.
Það er ekkert betra en að vera heima að dunda sér( *við verkefnavinnu*) þegar það er snjór og kuldi úti.
Alveg lovlí:)

laugardagur, nóvember 05, 2005
úff!!
Hversu mikill bömmer er það að vera búin að borða á sig gat á föstudegi...og öll helgin framundan;)
Spjall/át hittingur vatnaliljanna á fimmtudeginum. Góði félagsskapurinn og veglegar veitingar gerðu það að verkum að maður stóð á beit....átakanlega gott;)
Föstudagskvöldið var haldið matarboð með hinum ýmsu réttum. Bekkjarfélagar TJ mættu á staðinn með spilið "Cluedo" og eftir lúxus átið var spilað fram á nótt....góð skemmtun og mikið keppni í fólki þar sem útspekuleruð kerfi voru í fyrirrúmi;)
En nú hef ég heldur ekki pláss fyrir meiri mat restina af helginni....omgoddskí...þannig að ég verð bara að sætta mig við nammi!

miðvikudagur, nóvember 02, 2005
Skoðannakönnun
...fyrir þá sem fylgjast með þættinum.
Nú eru 5 keppendur eftir í Americas Next Top Model.
Hver haldið þið að vinni?!

þriðjudagur, nóvember 01, 2005
Sma mont
..já ég er núna officially komin í vetrarfrí.
Ég veit ekki alveg af hverju ég er að monta mig...því ég er á fullu í annari verkefnavinnu.
En það er greinilega bara svona gaman að segja þetta...
Var áðan á mynd nr.2 á októberbófestival....og ég reikna með að ná þeirri þriðju fljótlega... meira bíónördið þar á ferð;)
Sé ykkur Vatnó´s á fimmtudaginn kl.20 sharp
Góða ferð til Köben Guðrún Anna...bið að heilsa Sálinni:)