miðvikudagur, apríl 28, 2004

já...á eftir að smakka það...


find your inner PIE @ stvlive.com

hef ekki gert þetta áður....

....en vil óska henni Hörpu Rós minni gömlu bekkjarsystur/vinkonu úr Kvennó til hamingju með ammmmælið...ég hef núna þekkt hana í sjö stykki afmæli.....ekki slæmt!! Eigðu góðan dag og gott próf...

þriðjudagur, apríl 27, 2004

lalala...

...ég veit ekki alveg afhverju ég er að skrifa núna....eða jú verð eiginlega að viðurkenna að ég veit það 100%....ég á nefnilega að vera að spjalla við stærðfræðibókina mína um kenningar og hugmyndir um hvernig sé best að kenna litlum stærðfræðinemum aðgerðir og aðferðir....þetta kennsluefni er gera mig gráhærða þar sem ég er engu stuði fyrir svona enskar pælingar á stærðfræðimáli!!

Prófin byrja 5.maí með munnlegu stærðfræðiprófi sem verður án efa skrautleg upplifun. Hef einu sinni prófað svoleiðins áður og þá var ég í 10.bekk í skóla í Danmörku. Vissi ekkert um hvað verkefnið fjallaði og skildi bara pínu dönsku..algert klúður og bull! Þar af leiðandi vekur munnlegt próf engar vonir um glæsilegan árangur...hvað á maður t.d. að gera ef maður verður alveg kjaftstopp? Grípa til táknmálsins kannski....og taka nokkur salsaspor.

Jæja þetta voru smá veltingar um lífið og prófin...ég held líka almennt að fólk sé týnt í þessum prófum þar sem maður heyrir bara í engum þessa dagana...maður gæti haldið að allir væru í frumlestri;)

Heyrðu, lestrarpásan búin og skjár1 kallar....!*

fimmtudagur, apríl 22, 2004

sól sól skín á mig!!

hmmmm já....gledilegt sumar!!

Jæja folkens...

Nokkrar A.k.extreme myndir hér til hægri---->

mánudagur, apríl 19, 2004

Hvað er...

...langt síðan þú hoppaðir seinast í rúminu þínu lesandi góður? Ja nú eru eflaust margir sem þurfa að hugsa sig um...ég þurfti að gera það. Er ekki skrítið að maður hættir að muna eftir að gera svona nauðsynlega hluti þegar maður eldist! Hvað er málið?

í dag tók ég að mér að vera tilraunadýr....við skelltum okkur nefninlega 3 úr bekknum á Hamborgarabúllu Tomma sem nýlega var opnuð á milli fiskibragganna og miðbæjarins. Þar sem enginn mundi hvort gömlu Tomma borgararnir hefðu verið góðir ákváðum við að reyna að komast að leyndardómum um hina týndu borgara.
Vonbrigði....það var sinnepslag á borgaranum...og yours truely borðar ekki sinnep..en borgarinn var að öðruleyti ekki mjög frábrugðin gamla Maccaranum....Svo eftir að hafa troðið okkur inn í lítið (en huggulegt)rými fullt af stórum sjóurum sem voru í leit einhverju olíusteiktu, borðað borgarann og smeykt okkur aftur út um hurðina sem við fundum einhversstaðar í mannmergðinni...fórum við sáttar í skólann. En þó var það sameiginleg ákvörðun í bílnum að stælinn væri samt betri! Með þessum orðum líkur veitingahúsa gagnrýni Eyjunnar í þetta skiptið....

Núna er maður byrjaður að dusta jólarykið af bókunum sem á að lesa fyrir prófin í byrjun næsta mánaðar...ég elska undirbúning fyrir prófin. Maður dundar sér við að merkja alla kaflanna og þær blaðsíður sem á að lesa í hverri bók. Svo sorterar maður....mjög mikilvægur þáttur í ferlinu...sortera allt sem hægt er að sortera. Svo gerir maður fína (helst skreytta) lestraráætlun með aðstoð mismunandi litaðra penna og öðlast þá tilfinningu að maður hafi fulla stjórn á öllu sem við kemur prófalestri.
Næsta skref kemur svo þegar á að taka upp bókina og byrja að lesa...þá virðist allt í kringum mann þurfa athygli eins og t.d. þvottakarfan, uppvaskið, Troels, síminn og bara allt......good luck to me...

ég er úti núna....*


fimmtudagur, apríl 15, 2004

þriðjudagur, apríl 13, 2004

fimmtudagur, apríl 08, 2004

Gleðilegt páskaegg allir saman!!

Nóa eggin eru uppseld hjá verksmiðjunni. Hafiði heyrt annað eins?
Hvernig ætli þetta hafi verið í gamla daga...sturlaðist fólk vegna þess að ullaregginn komu illa undan vetri? Æ þetta var smá bull...en ég meina í alvörunni..er heilbrigt að Nói sé uppseldur fyrir páska...það er ekki eins og Jesú hafi fengið sér eitt Nóa-egg fyrir krossfestinguna.
Fólk er búið að mergsjúga eggjahillurnar í búðunum..eins og það sé að koma stríð og í staðinn fyrir dósamat tók það öll þau páskaegg sem það komst yfir!!

Ganga páskarnir virkilega út á að troða sig út af súkkulaði sem þá helst á að vera frá honum Nóa(tilvitnun í Biblíuna?)....ég held að ég verði að segja: já þeir gera það víst að hluta til. Hvað ættu íslendingar annars að gera á sunnudeginum?

Ég gerði dauðaleit að Nóa í dag og ekki finnst tangur né tetur af honum í heilbrigðri stærð...allt 6 eða yfir! Ýtti þeirri hugmynd strax frá mér að kaupa egg í yfirstærð...maður þarf helst að geta staðið upp úr sófanum eftir sunnarann!

Jæja langaði bara að láta ykkur vita sem ekki eruð búin að næla ykkur í egg að þetta eru síðustu forvöð...hillurnar eru eins og eyðimörk.

Kveðja
ein bitur*

p.s.hitti Birnu og Örnu á kaffi París í dag...very nice lunch there, þær voru bara hressar og kátar...efast ekki um að þær hafi verið búnar að næla sér eitt stykki Nóa:/ (.....og þá meina ég ekki albinóa...hehe)

mánudagur, apríl 05, 2004

AK-Extreme...

...er búið! Ég er komin heim eftir að hafa lært að swing-a...ja eða á góðri leið með það;)
Ferðin var mjög vel heppnuð. Ég er fyllilega ánægð með Akureyri og skíðasvæðið þeirra. Vissuði að þegar þú ferð í stólalyftuna er svona færiband til að þú fáir ekki högg frá stólnum aftan á lappirnar!(Þetta hafði mikil áhrif á mig!)
Anywho...þá gekk mótið bara vel fyrir sig. Mér fannst ansi gaman að horfa á alla pro-anna gera trick, þar sem ég tók ekki þátt(anyone surprised??) Var samt að velta fyrir mér "free ride-inu"...hefði kannski farið ef það hefði verið þyrla í boði....!

Jæja nenni ekki að skrifa meira hérna en ef einhver vill vita meira um ævintýri Eyjunnar og Mr.T á Akureyri þá er síminn opinn og af nógu að taka!
Set kannski inn myndir seinna aight!

Friður*

p.s. mission accomplised=Brynjuís, tröppurnar við kirkjuna og sundlaugarferð!
(og já Sigga fengum okkur hressingu á Bláu könnunni..thanx for the tip!)

miðvikudagur, mars 31, 2004

And the veikindi goes on...

Jæja einn dagur eftir af æfingakennslu...jeij..og ég sem er að mennta mig til kennara. Get sagt ykkur eitt og það er að þetta "kennara thing" er sko ekkert pís of cake...maður er bara ánægður með að fá frí og fara í venjulega háskólann sinn þar sem allt er svo rólegt og einfalt;) Respect til kennara sem gera þetta all on their own...takið eftir við erum 3 að kenna í sameiningu og þetta tekur á.

Fór á sinfoníutónleika með örugglega 500, 10-13 ára krökkum í háskólabíói kl.09:00 í gærmorgun. Mæli ekki með að veikt fólk reyni það...en fyrir utan veikindin var þetta gaman að sjá. Kynnirinn var Jónsi (black clothes) og hann var sorglegur greyið. Maðurinn er kannski myndalegur einhversstaðar undir brúnkunni og aflitaða hnakkanum en það sem hann hefur drepur hann niður með Selfoss stælum. Hann átti að syngja eitt lag sem í þessu tilfelli var lag eftir Magnús Eríksson um hana Garún Garún(Mannakorn) Heyrðu hann var með textann fyrir framan sig en samt heyrðu maður bara muml þar til í viðlaginu sem var...hehe: Garún Garún! Ásamt því að hann slengdi út orðum eins og motherfucker fyrir framan krakkaskarann...var það nauðsynlegt?
Greyið strákurinn....en ég get sagt ykkur það að þó hann hafi sökkað greyið sem kynnir og allt hitt...fékk hann meiri píkuskræki en Sugerbabes koma til með að fá í höllinni! How about that!!

Veika konan ætlar svo að skella sér til Akureyrar á morgun...! Ætli Sjallinn sé eins merkilegur og maður hefur heyrt?, er Brynju ís hinn eini sanni?, er Kjarnaskógur kjarni Íslands?...hmmm....þetta og margt fleira heimskulegt í blogginu eftir helgi.

-heil og sæl kæru vinir*

laugardagur, mars 27, 2004

Veikindi sökka

...hér sit ég og reyni að skrifa e-ð bloggerí...það er svo ömurlegt að vera veik (einhver sammála?)..ég hef misst alla stjórn á hálfum hausnum á mér þ.e. ég er stífluð upp í hárrót með kvefi en nota bene þó aðeins annari nösinni! Svo er maður bara slappur og dugir varla til neins. Dröslaði mér samt í vinnuna í morgun og hékk fram á afgreiðsluborðið í 3 tíma (afleysing)...
Svo var ferðinni ekki haldið heim því stefnan var tekinn á Hafnarfjörður centrum s.s. Fjörðurinn....veit ekki alveg afhverju en...við komumst allveganna að því að þrátt fyrir að búðir séu af skornum skammti er hægt að kaupa gott brauð hjá göflurunum.

Veikindin eru líka ástæðan fyrir því að ég missti af ábyggilega góðu partýi í gærkveldi. Bekkurinn minn tók sig nefninlega saman og skellti upp einu get2getheri í gær í miðri æfingakennslunni. Hildurin var búin að boða komu sína og alles en varð svo að hætta við missionið vegna andþrengsla í nefi og slappleika í kroppi!
Og ég sem hef sýnt mínimum veikindi í vetur.....um leið og vorið bankar upp á leggst maður í rúmið! Eðlilegt? Held ekki....

Svo er það AK-ferð næstu helgi þ.e. til Akureyrar. Það er e-ð "snjóbretta things"mót í gangi. Jú jú ábyggilega mjög gaman en ég hlakka mest til að rölta aðeins um stræti höfuðborgar norðursins þar sem ég hef í raun aldrei gert það. Einu kynni mín af Akureyri eru Landsmót skáta´93 sem haldið var í Kjarnaskógi. Talandi um að sjá ekki bæinn fyrir skóginum(remix;)

Anyways...ég er úti í bili, skrifa meir seinna....but dont hold your breath aight!

miðvikudagur, mars 24, 2004

Pixies...jeij!

Ég er að fara á pixies....nahnahnah...verður fjör að rifja upp gamla góða smelli en og HEY og where i s your mind.....við live undirleik!(ásamt restinni af íslandi...þetta verður ansi crowded...minn miði er númer 857!!)

Er buin að vera að kenna grunnskóla bekk seinustu 3 dagana...og gengur bara vel en boj geta þau sogið úr manni alla orku!! Ég er meira segja búin að fá hálsbólgu og vægan hita...frá því á mánudaginn og ég sem hef ekki orðið veik í allan vetur!

Anywho...ég er hálf lasin og nenni eiginlega ekki að skrifa meira...var bara að gegna skyldu minni við umheiminn...þar sem enginn virðist eiga síma lengur

-hafiði það nú gott í bili angarnir mínir..
until next time...snurf*

föstudagur, mars 19, 2004

skóli skóli skóli

er buin að eiga ekkert lif nuna upp á siðkastið.
Skyrslu verður skilað i dag...jeij....
vinna um helgina...ekki jeij....

mánudagur, mars 15, 2004

góð helgi liðin...

Eyddi helginni í sumarbústað á Flúðum...
með söng og gítar,
heitum potti,
góðum mat
og góðum félagsskap....

snilld....!

föstudagur, mars 05, 2004

Bévítans veður!

Ljóta veðrið núna mar...er sko ekki sátt við þetta ástand! En held í vonina um að næsta helgi verði góð því þá er ég í fríi...jeij...og ætla að gera e-ð ógeðslega skemmtilegt....hmmm

Þið sjáið að ég hef voða lítið um að skrifa núna þar sem maður er komin út í gamla góða veðurspjallið. Það er bara lítið að gerast núna eða að gullfiskurinn ég er ekki að muna eftir neinum spennó.

Ég og Arna fórum á Dillon á laugardaginn og drógum Troels með. Ég var í jómfrúarferð minni á þennan stað og fannst bara mjög fínt...góð tónlist(Andrea ekki að klikka), skemmtileg+spes stemmning oflr. Eina sem var ekki alveg í toppi var að maður þekkti svo fáa. Fann vel fyrir fráhvarfi mínu frá djammmarkaðnum því öll djammljónin þarna inni voru eins og æskuvinir yfir bjórglasinu. Þetta þýðir bara að maður þarf að gera "comeback" einn daginn....það verður sko villt....hmmm

Jæja ég ætla að fara að láta mig dreyma um þeyting (þar sem súkkulaðiísmaðurinn á hvíta rjómaíshestinum er ekki að láta sjá sig) á meðan ég horfi á skjáinn....
-lundir*

Búin...

..að vera kennaranemi í 4 daga. Það var bara mjög gaman og hressandi að komast út í sjálft skólalífið eftir að hafa lesið sér til um það í yfir hálft ár. Bekkurinn var fínn...fjölbreyttur og áhugaverður, með 10 og 11 ára krökkum! Krakkarnir eiga hrós skilið fyrir að þola 4 daga af endalausum spurningum og okkur þrem kennaranemum sem vorum bara í því að horfa yfir öxlina á þeim til að athuga hvernig gengi...hehe;) Ég eignaðist líka nokkra vini(mest stráka) þarna í bekknum sem fannst ég bara nokkuð kjúl...jeij, alltaf góður plús!!;)

Svo er að það bara að gera kennsluáætlun næstu 2 vikurnar...sem verður by the way ábyggilega svoldið hektískt! Það byrjar á mánudaginn og þar af leiðandi verður helgin notuð í e-ð kúl og afslappandi.

Nenni ekki meir núna...það er e-ð að "get to me" að hafa vaknað 6:30 alla daga vikunnar, held svei mér þá að ég þurfi að leggja mig til að catch up on sum sleep

until next time........snurf*

mánudagur, mars 01, 2004

Miss teacher in da house!

Jæja....wannabe kennarinn er búin að fara einn dag í áheyrn í ónefndan skóla. (ónefndur því við urðum að skrifa undir einhvern þagnarsamning...vissara bara að segja ekki neitt at all anywhere!) Það gekk bara vel og ég fer aftur á morgun og hinn og hinn:)! Við verðum bara í því að aðstoða í kennslunni og fylgjast með framvindu kennslumálanna í bekknum. Svo næstu tvær vikur verðum við að skipuleggja tveggja vikna kennsluáætlun sem við þurfum svo að framkvæma eftir þessar tvær vikur. Ég held það verði bara allt í læ....því krakkarnir voru voða spenntir að fá okkur til að kenna sér...bara spurning hvort þeir taki mark á manni;)

Hverjum hefði annars dottið í hug að litla ég væri farin að vera einhver kennara beygla....ekki mér, svo mikið er víst. Ég held að ég komist að því hvort þetta er e-ð fyrir mig eftir þessar tvær kennsluvikur....vonum það!

Annars er maður bara að reyna að njóta vorblíðunar...var svo hress í dag að ég ákvað að draga Troels að stað í hjólatúr til að sýna manninum Nauthólsvík...fannst komin tími til að hann sæi EINU strandar strönd okkar íslendinga. En svo þegar við vorum komin nógu langt frá heima til að snúa við byrjaði að helli rigna! Vorstemmarinn minn var ekki alveg jafn ferskur við það...! Lagaðist samt örlítið við súkkulaðiköku í kaffihúsinu;)

Langar svoldið að skora á fólk sem þetta les í keilumót bráðlega....dagsetning auglýst síðar!

Komi þeir sem þori!!*

(Dröfn þu ert leagally afsökuð.... þó það væri nú gaman að vinna þig...hehe)





föstudagur, febrúar 27, 2004

jeij peanuts!!!

Woodstock
You are Woodstock!


Which Peanuts Character are You?
brought to you by Quizilla