þriðjudagur, apríl 27, 2004

lalala...

...ég veit ekki alveg afhverju ég er að skrifa núna....eða jú verð eiginlega að viðurkenna að ég veit það 100%....ég á nefnilega að vera að spjalla við stærðfræðibókina mína um kenningar og hugmyndir um hvernig sé best að kenna litlum stærðfræðinemum aðgerðir og aðferðir....þetta kennsluefni er gera mig gráhærða þar sem ég er engu stuði fyrir svona enskar pælingar á stærðfræðimáli!!

Prófin byrja 5.maí með munnlegu stærðfræðiprófi sem verður án efa skrautleg upplifun. Hef einu sinni prófað svoleiðins áður og þá var ég í 10.bekk í skóla í Danmörku. Vissi ekkert um hvað verkefnið fjallaði og skildi bara pínu dönsku..algert klúður og bull! Þar af leiðandi vekur munnlegt próf engar vonir um glæsilegan árangur...hvað á maður t.d. að gera ef maður verður alveg kjaftstopp? Grípa til táknmálsins kannski....og taka nokkur salsaspor.

Jæja þetta voru smá veltingar um lífið og prófin...ég held líka almennt að fólk sé týnt í þessum prófum þar sem maður heyrir bara í engum þessa dagana...maður gæti haldið að allir væru í frumlestri;)

Heyrðu, lestrarpásan búin og skjár1 kallar....!*

Engin ummæli: