mánudagur, apríl 05, 2004

AK-Extreme...

...er búið! Ég er komin heim eftir að hafa lært að swing-a...ja eða á góðri leið með það;)
Ferðin var mjög vel heppnuð. Ég er fyllilega ánægð með Akureyri og skíðasvæðið þeirra. Vissuði að þegar þú ferð í stólalyftuna er svona færiband til að þú fáir ekki högg frá stólnum aftan á lappirnar!(Þetta hafði mikil áhrif á mig!)
Anywho...þá gekk mótið bara vel fyrir sig. Mér fannst ansi gaman að horfa á alla pro-anna gera trick, þar sem ég tók ekki þátt(anyone surprised??) Var samt að velta fyrir mér "free ride-inu"...hefði kannski farið ef það hefði verið þyrla í boði....!

Jæja nenni ekki að skrifa meira hérna en ef einhver vill vita meira um ævintýri Eyjunnar og Mr.T á Akureyri þá er síminn opinn og af nógu að taka!
Set kannski inn myndir seinna aight!

Friður*

p.s. mission accomplised=Brynjuís, tröppurnar við kirkjuna og sundlaugarferð!
(og já Sigga fengum okkur hressingu á Bláu könnunni..thanx for the tip!)

Engin ummæli: