mánudagur, mars 01, 2004

Miss teacher in da house!

Jæja....wannabe kennarinn er búin að fara einn dag í áheyrn í ónefndan skóla. (ónefndur því við urðum að skrifa undir einhvern þagnarsamning...vissara bara að segja ekki neitt at all anywhere!) Það gekk bara vel og ég fer aftur á morgun og hinn og hinn:)! Við verðum bara í því að aðstoða í kennslunni og fylgjast með framvindu kennslumálanna í bekknum. Svo næstu tvær vikur verðum við að skipuleggja tveggja vikna kennsluáætlun sem við þurfum svo að framkvæma eftir þessar tvær vikur. Ég held það verði bara allt í læ....því krakkarnir voru voða spenntir að fá okkur til að kenna sér...bara spurning hvort þeir taki mark á manni;)

Hverjum hefði annars dottið í hug að litla ég væri farin að vera einhver kennara beygla....ekki mér, svo mikið er víst. Ég held að ég komist að því hvort þetta er e-ð fyrir mig eftir þessar tvær kennsluvikur....vonum það!

Annars er maður bara að reyna að njóta vorblíðunar...var svo hress í dag að ég ákvað að draga Troels að stað í hjólatúr til að sýna manninum Nauthólsvík...fannst komin tími til að hann sæi EINU strandar strönd okkar íslendinga. En svo þegar við vorum komin nógu langt frá heima til að snúa við byrjaði að helli rigna! Vorstemmarinn minn var ekki alveg jafn ferskur við það...! Lagaðist samt örlítið við súkkulaðiköku í kaffihúsinu;)

Langar svoldið að skora á fólk sem þetta les í keilumót bráðlega....dagsetning auglýst síðar!

Komi þeir sem þori!!*

(Dröfn þu ert leagally afsökuð.... þó það væri nú gaman að vinna þig...hehe)





Engin ummæli: