föstudagur, mars 05, 2004

Bévítans veður!

Ljóta veðrið núna mar...er sko ekki sátt við þetta ástand! En held í vonina um að næsta helgi verði góð því þá er ég í fríi...jeij...og ætla að gera e-ð ógeðslega skemmtilegt....hmmm

Þið sjáið að ég hef voða lítið um að skrifa núna þar sem maður er komin út í gamla góða veðurspjallið. Það er bara lítið að gerast núna eða að gullfiskurinn ég er ekki að muna eftir neinum spennó.

Ég og Arna fórum á Dillon á laugardaginn og drógum Troels með. Ég var í jómfrúarferð minni á þennan stað og fannst bara mjög fínt...góð tónlist(Andrea ekki að klikka), skemmtileg+spes stemmning oflr. Eina sem var ekki alveg í toppi var að maður þekkti svo fáa. Fann vel fyrir fráhvarfi mínu frá djammmarkaðnum því öll djammljónin þarna inni voru eins og æskuvinir yfir bjórglasinu. Þetta þýðir bara að maður þarf að gera "comeback" einn daginn....það verður sko villt....hmmm

Jæja ég ætla að fara að láta mig dreyma um þeyting (þar sem súkkulaðiísmaðurinn á hvíta rjómaíshestinum er ekki að láta sjá sig) á meðan ég horfi á skjáinn....
-lundir*

Engin ummæli: