laugardagur, mars 27, 2004

Veikindi sökka

...hér sit ég og reyni að skrifa e-ð bloggerí...það er svo ömurlegt að vera veik (einhver sammála?)..ég hef misst alla stjórn á hálfum hausnum á mér þ.e. ég er stífluð upp í hárrót með kvefi en nota bene þó aðeins annari nösinni! Svo er maður bara slappur og dugir varla til neins. Dröslaði mér samt í vinnuna í morgun og hékk fram á afgreiðsluborðið í 3 tíma (afleysing)...
Svo var ferðinni ekki haldið heim því stefnan var tekinn á Hafnarfjörður centrum s.s. Fjörðurinn....veit ekki alveg afhverju en...við komumst allveganna að því að þrátt fyrir að búðir séu af skornum skammti er hægt að kaupa gott brauð hjá göflurunum.

Veikindin eru líka ástæðan fyrir því að ég missti af ábyggilega góðu partýi í gærkveldi. Bekkurinn minn tók sig nefninlega saman og skellti upp einu get2getheri í gær í miðri æfingakennslunni. Hildurin var búin að boða komu sína og alles en varð svo að hætta við missionið vegna andþrengsla í nefi og slappleika í kroppi!
Og ég sem hef sýnt mínimum veikindi í vetur.....um leið og vorið bankar upp á leggst maður í rúmið! Eðlilegt? Held ekki....

Svo er það AK-ferð næstu helgi þ.e. til Akureyrar. Það er e-ð "snjóbretta things"mót í gangi. Jú jú ábyggilega mjög gaman en ég hlakka mest til að rölta aðeins um stræti höfuðborgar norðursins þar sem ég hef í raun aldrei gert það. Einu kynni mín af Akureyri eru Landsmót skáta´93 sem haldið var í Kjarnaskógi. Talandi um að sjá ekki bæinn fyrir skóginum(remix;)

Anyways...ég er úti í bili, skrifa meir seinna....but dont hold your breath aight!

Engin ummæli: