sunnudagur, apríl 17, 2005

Svei mer þa...

...helginni var vandlega varið í leti og tiltekt, fyrir utan almennan vinnutíma.

Ég fékk nýja "workout" skó beint frá ammmeríkunni í dag (ásamt ýmsu öðru spennandi) og sé fyrir mér í hyllingum alla kílometranna sem þeir eiga eftir að flytja mig. Takið eftir að ég skrifa "í hyllingum", því þessir kílometrar halda sig líklegast að mestu leyti þar.
Hún móðir mín sagði mér að ég hefði örugglega hagað mér eins og krakki í nammibúð ef ég hefði verið með í þessu búðarrápi. Ég efast alls ekki um það.
Það er líka alveg komin tími á að Ameríka fái loksins að kynnast the one and only Hildur.
Spurning um að ég fari á svona official tour um ríkin sem professional verslari....kannski kaninn skilji það sem professional wrestler og myndi þá borga undir mig ferðina.

Draumar eru góðir fyrir sálina....

laugardagur, apríl 16, 2005

Menningaleg i meiralagi

Ég er búin að vera ofsalega dugleg í kvikmyndunum upp á síðkastið.

Ég er núna búin að sjá 3 myndir á kvikmyndahátíðinni í Hásk.bíó ásamt Garden State(sem ég held að tilheyri ekki hátíðinni), Napoleon Dynamite og Million Dollar Baby.

Menningamyndirnar eru:
-Maria Full of Grace: mér fannst hún góð
-The Motorcycle Diaries: heilluð
-I Heart Huckabees: twisted en góð

Ef einhver þarf review þá látið mig bara vita...;)

Langar svoldið að sjá: Beyond the Sea, SpoungeBob Squarepants, Et Hål i mitt hjarta....ja og fleira...

fimmtudagur, apríl 14, 2005

Meðmæli...

Amos Lee er snilld.
Hann er næsta Norah Jones (en þó karlkyn)
Mæli sterklega m gæjanum
úff...

miðvikudagur, apríl 13, 2005

Solin að standa sig!

Ótrúlega ánægð með veðrið í augnablikinu.
Ef við höldum þessu svona ásamt því að hækka hitatölurnar þá erum við komin með drauma-sumarið.

:) :)

Ætla að bregða mér á bíó í kvöld með henni Birnu...ja eða það held ég...verður spennandi að sjá hversu margar við endum með að verða:)- The more the merrier!

mánudagur, apríl 11, 2005

By the way..

..ég fann spólu frá Peysufatadeginum um daginn.
Það er hefur sko mikið vatn runnið til sjávar síðan þá.
Þetta var ansi leiðinlegt og langdregið myndband með okkur dansandi þjóðdansa í slowmó um allan bæ en þó var hægt að skella upp úr hér og þar vegna útlits og útbúnaðar fólks ásamt góðum minningum sem endurvöktust...

Spurning um að skella þessu á við tækifæri og hóa í vatnaliljurnar?
Hvað segiði Gunna frá Stöng, Sigríður úr Efra Koti, Hallgerður af Saurbæ og fleiri....?

Got to get one of those!

tekið af Mbl.is:

"Vekjaraklukka sem hleypur í felur

Þessi vélknúna vekjaraklukka á hjólum hringir og skýst síðan í felur þannig að eigandinn verður að fara á fætur og finna hana til að slökkva á henni. Gripurinn er uppfinning Gauris Nandas, framhaldsnemanda við Tækniháskólann í Massachusetts (MIT) í Bandaríkjunum. Hann kallar tækið „Clocky“."

Held að þetta verði afmælisgjöfin í ár.
Vá hvað maður yrði morgunfúll af því að eltast við svona kvikindi á hverjum morgni.
(Kvennaskólafólk=no comment on that last thing thank u) ;)

laugardagur, apríl 09, 2005

Fjolublair dagar...

Laugardagurinn minn varð í einu orði "not as expected"
Hófst snemma á símtali frá systur minni sem venjulega hringir ALDREI fyrir hádegi.
Við tvær plönuðum date upp á slysó innan nokkra mínútna.
Við höfðum það huggulegt með hjólastól, x-rays og fleira í morgunstemmningunni.
Hún neitaði gipsinu. Harður nagli.
Við héldum heim með hálf brotið tásubein.
Harður nagli=harður miðnætur "hlaupari".

Kvaddi foreldrana sem voru á leið til fyrirheitnalandsins. Ameríka.

Eftir gipsstofuna var leiðin bara niður á við fyrir mig með hausverk dauðans og kuldaköst. Kannski bæklingur, sem ég greip á biðstofunni, um mígreni hafi haft áhrif.
Var að vakna núna.Tel að klukkan sé 20. Líður betur.

Kvöldið óplanað.

Gærkvöldið var mjög kósí. Matur á Pottinum og pönnunni, sem kom ágætlega á óvart.
Pool á Gauknum þar sem við TJ skiptum á milli okkar tveimur sigrum. Mikið af spes fólki þar fyrri hluta kvölds.
Kíkt við í partý hjá Örnu. Mikið rökrætt um heimsmálefni.
Bustaði nokkrar rímur á ískápinn áður en við héldum heim.

fimmtudagur, apríl 07, 2005

french frie!

Oh my le godskí...
ég var að koma heim af Edith Piaf og verð að segja að mér finnst hún alveg brill.
Gleymdi mér alveg í frönsku stemmningunni og oui oui-inum.

Þegar ég var lítil og kom heim úr fyrstu utanlandferðinni minni, sem var til París og Andorra, þá lýsti ég því hátíðlega yfir að þegar ég yrði stór myndi ég sko:
a) tala frönsku
b) giftast franskara
c) flytja til Frakklands

Hver veit nema að ég bara hrindi þessu plani í framkvæmd.

Je ne regrette rien....lala
Il est malade og fleira þesslegt

þriðjudagur, apríl 05, 2005

Desp.Housew. rokka!

Af mbl.is:

"Framleiðendur sjónvarpsþáttanna Aðþrengdar eiginkonur, sem nú njóta mikilla vinsælda, afþökkuðu tilboð söngkonunnar Britney Spears um að koma fram í gestahlutverki í þáttunum. Kváðust þeir telja að ef Britney birtist í þáttunum myndu þeir missa aðdráttarafl sitt."

Ég fíla ekki Britney!

mánudagur, apríl 04, 2005

Spriklari dauðans

Já ykkar einlæg er orðin mikill spriklari.... varð að endurtaka þetta ef einhver skyldi hafa misst af því áður.

Í dag mætti frökenin í Klósettsetrið í Laugardalnum og púlaði þar í 1 og hálfan klukkutíma!! Meira að segja þeir sem búa þarna hafa ekki verið svona lengi....(tel ég mér trú um). Oj hvað ég er ánægð með mína. Tel varla þörf á að mæta aftur næsta mánuðinn:)

Á laugardaginn var stofnaður einstakur matarklúbbur, sem ekki hefur fengið nafn ennþá. Það var haldið upp á stofnfundinn með pompi og prakt.....svo miklu pompi að næstum gleymdist að borða;) Eftir mikið spjall um yfirnáttúrleg fyrirbæri( unmræða sem virðist eiga við alls staðar) og nokkrar "Lestir" var haldið í bæinn með fylgdarliðið. Er über ánægð með framtak klúbbsins og hlakka til þemakvöldanna...sem eru yet to come.

Hún Guðrún Anna ofurgella fagnaði "litlumþstór" afmælisdegi um daginn og er núna komin í hóp hinna merku gamalmenna sem stunda nám í Kennó...haha...enn og aftur til lukku og þú ert automatiskt komin með V.i.P. í "litla-stór" afmælið mitt.

Dröfn heldur áfram að koma á óvart....þó er hún ekki á landinu! Stattu þig nú vel í brúnkunni og krónísku dýfingunum!

jæja meira af æsispennandi updates later....

þriðjudagur, mars 29, 2005

Einn sjens enn....

Fannst þetta hilarious:

"Handbók drykkjumannsins"

Vandamál: Drykkjan veitir enga ánægju bjórinn er óvenjulega bragðlaus, fölur og tær.
Orsök: Glasið er tómt.
Viðbrögð: Fáðu einhvern til að kaupa annan bjór handa þér.

Vandamál: Drykkjan veitir enga ánægju, bjórinn er óvenjulega bragðlaus, fremri hlutinn á þér er blautur.
Orsök: Munnurinn hefur ekki verið opinn meðan þú varst að drekka EÐA glasið hefur verið sett upp við rangan andlitshluta.
Viðbrögð: Kauptu annan bjór og æfðu þig fyrir framan spegil. Drekktu eins marga og þörf er á til að byggja upp fullkomna tækni.

Vandamál: Fætur blautir og kaldir
Orsök: Glasinu hefur verið haldið á hvolfi
Viðbrögð: Snúðu glasinu við þannig að "opni" endinn snúi upp.

Vandamál: Fætur blautir og heitir
Orsök: Slæm stjórn á þvagblöðrunni
Viðbrögð: Labbaðu upp að næsta hundi, og kvartaðu svo við eigandann að hundurinn sé illa upp alinn. Krefstu þess að fá bjór í skaðabætur

Vandamál: Gólfið er þokukennt
Orsök: Þú ert að horfa í gegnum botninn á tómu glasi
Viðbrögð: Fáðu einhvern til að kaupa annan bjór handa þér.

Vandamál: Gólfið sveiflast
Orsök: Of mikil ókyrrð í loftinu, sennilega vegna úrslita sem hafa orðið í einhverju spili á barnum
Viðbrögð: Settu kústskaft niður bakhlutann á skyrtunni.

Vandamál: Gólfið hreyfist
Orsök: Það er verið að bera þig út
Viðbrögð: Reyndu að komast að því hvort að það sé verið að fara með þig á annan bar. Ef svo er ekki, öskraðu þá að það sé verið að ræna þér.

Vandamál: Veggurinn á móti þér er þakinn loftklæðningu og ljósaperum
Orsök: Þú hefur dottið aftur fyrir þig
Viðbrögð: Ef glasið þitt er fullt og enginn stendur á hendinni á þér, vertu þá bara ennþá á gólfinu og haltu áfram að drekka. Ef ekki, fáðu þá einhvern til að hjálpa þér að standa upp og haltu þér vel í barborðið.

Vandamál: Allt er orðið dimmt, munnurinn á þér er fullur af sígarettustubbum
Orsök: Þú hefur dottið fram fyrir þig.
Viðbrögð: Sjá fyrir ofan

Vandamál: Allt er orðið dimmt
Orsök: Það er búið að loka barnum
Viðbrögð: Hræðsla!!!!!

Vandamál: Þú vaknar og finnur að rúmið þitt er kalt, hart og blautt; þú sérð ekkert inni í svefnherberginu.
Orsök: Þú hefur sofnað í göturæsinu.
Viðbrögð: Kíktu á klukkuna til að gá hvort að það sé búið að opna barina. Ef ekki, reyndu þá að sofa aðeins lengur

Skál!

þriðjudagur, mars 22, 2005

Paska fri!

Bloggið mitt er komið í páska frí...
...ætla að sjá til hvort ég nenni að skrifa aftur.

-Gleðilega páska!-

(...og góða ferð aftur til U.S. Dröfn mín!!)

fimmtudagur, mars 17, 2005

Glataðir ökumenn!

Íslendingar eru sorglegir ökumenn! Það er algjörlega mín skoðun...og þeir verða bara verri með tímanum. Sem dæmi þá gerðist það um daginn að ég flýtti mér yfir gatnamót á hágulu/rauðu ljósi og hugsaði "hjúkket ég rétt náði" þegar ég fór yfir, EN svo lít ég í baksýnisspegilinn og það kom ekki einn né tveir bílar beint á eftir mér yfir á rauðu heldur fjögur/fimm stykki!!!
Svo svína menn hægri vinstri og skipta um akgreinar eins og nærbuxur án þess að blikka eða yfirhöfuð líta í baksýnisspegilinn!
Are u kiddin me hvað fólk er kærulaust!...Það geta ekki ALLIR átt réttinn né fengið forgang þegar þeim hentar....íslendingar eru bara ekki að átta sig á að þeir eru hvorki einir á veginum né ódrepanlegir!
Djö...vitleysa!

Kv. Ein ekki paranoid!!

miðvikudagur, mars 16, 2005

Allt er nu til!

Ég hef verið að vinna að verkefni um málshætti seinustu daga í tilefni þess að páskarnir eru á næsta leiti og rakst á nokkra sem ég vildi bera undir ykkur...

-Ekki fretar mús eins og hestur þó rauf rifni. 
-Margur dansar þó hann dansi nauðugur. 
-Sætt er sameiginlegt skipbrot. 
-Engin kona verður skækja af eins manns völdum. 
-Margur kafnar undir nafni. 
-Digur rass þarf víða brók. 

og fleira sem þið fáið að sjá seinna!
...ja sei sei, þessir Íslendingar!*hristir hausinn*

mánudagur, mars 14, 2005

I luv surprises:)

Ég get bara sagt....keep them coming!!!

:)
:)

sunnudagur, mars 13, 2005

long time no blog!

Ég elska sunnudaga sem eru gjörsamlega óplanaðir og það vill svo skemmtilega til að svoleiðins eintak er einmitt í dag:)

Ýmislegt hefur gengið á í liðinni viku.
-Yours truly er gengin í klósettklúbbinn WC í Laugum. Planið er að vera dugleg og enn sem komið er hefur BIrna verið dyggur stuðningsmaður minn...amk. í bæði skiptin sem ég hef mætt. Framvegis er það bara Brennslukickbox og sterakokteilar með ljósalegnum íþróttaspírum....Við Birna ættum nú ekki að eiga erfitt með að fitta inn!!

-Kennslukonan í mér er búin að vera að blómstra seinustu vikuna. Hinn alkunni morgunhressleiki minn er meira að segja að lagast með árunum því nú er sko engin miskun hjá Magnúsi heldur rífur maður sig núna upp eiturhress kl.7 og er til í slaginn( ja svona ca.). Batnandi manni (eða konu í þessu tilfelli) er best að lifa....ég panta hann í páskaeggið!

Ég er búin að fara í sumarklippingu og lét taka svoldið vel neðan af stríinu...en ég því miður sit ég ennþá uppi með Krullu Jóns sem rígheldur í hárið á mér...permanet er alveg OFF í framtíðinni...tíska eður ei!

Ég fékk fjórar ókeypis mjólk daginn áður en mjólkin var hækkuð upp í 38kr.....heppin...ég held það nú!

Páskaegg heimilisins eru komin í hús og reynt verður að hemja sig frá því að ráðast á þau með því að borða allt annað óhollt sem á vegi mínum verður...það verður því mikill léttir þegar páskadagur rennur loksins upp!

Akkurat núna sit ég með skattaskýrslur og svoleiðins óbjóð við hliðina á mér. Planið er að vera á undan skilafrestinum í ár...þoli ekki þessar umsóknir um frest og svoleiðins vesin. Þetta er samt meira ruglið....ég er bara dauðfegin að vera ekki að vinna hjá skattinum....hjá þeim er þetta ekki svona einu sinni á ári thing....heldur allt árið, öll árin.....greyin!

Heimurinn fær prik í kladdann fyrir að vera bjartur og fagur, mínus fyrir kulda....eigið góðan HVÍLDARdag!

miðvikudagur, mars 09, 2005

Allt að verða vitlaust

...ég er búin að komast að því að bloggið mitt er steindrepleiðinlegt.
Miðað við allt actionið hjá henni Örnu ætti ég bara að loka mínu;)
Ath. http://arnaolafs.blogspot.com/ þar sem röflari lætur gamminn geysa...

úff...

mánudagur, mars 07, 2005

Ofur kennari...

er ekki neitt sem ég myndi kalla mig!
Eftir kennslu tók ég mér vel útilátinn lúr, með extra topping af púðum og teppi.
Ég var bara hissa á því að ég væri ekkert þreytt þegar skóladeginum lauk...en svo kom ég heim og bara lak niður. Úff þvílíkar energy-sugur.....en þrátt fyrir það bara ansi skemmtilegar;)

Ég er loksins búin að gera mér grein fyrir afhverju kennarar hafa starfsdaga....það er alveg voðaleg undirbúningsvinna fyrir þetta allt saman....

Yfir og út-

laugardagur, mars 05, 2005

Dönsku heimaprof..

..er ekki málið á laugardagskveldi. En þegar maður hefur engan annan tíma í þetta þá lætur maður til leiðast.

Ég er alltaf að hitta svo dúllulegt eldra fólk í vinnunni(það er náttlega líka til afskaplega fráhrindandi eldra lið)...þau fara sér svo hægt og segja svo skemmtilegar sögur meðan maður er að afgreiða það. Þetta eru reyndar ekki draumakúnnar þegar það er vitlaust að gera en ef búðin er tóm þá eru þetta skemmtilegustu kúnnarnir. Til dæmis kom gráhærður eldri herra í dag og tilkynnti hátíðlega að frúin ætti afmæli í dag og hann þyrfti vönd. Ég gerði einn og sagði honum verðið (fannst hann sjálf svoldið dýr) þá svarar hann herramannlega" maður horfir ekki í aurana þegar frúin á í hlut, hún þetta skilið"....Mó!

Jæja þið sjáið hvað ég hef átt spennandi dag...og hversu mikill áhugi er á dönskuprófinu sem á að vera í gangi akkurat núna.

Mig langar til að nota tækifærið og mæla með (fyrir þá sem ekki þekkja) Ben Harper...finnst hann ansi skemmtilegur tónlistarmaður.

Anyway, prófið bíður mín....vonandi drekkur einhver þarna úti einn öllara fyrir mig í kvöld!

Ariva datchi!

fimmtudagur, mars 03, 2005

Að vera eða ekki vera...

....veik.
Það er EKKERT leiðinlegra en að vera of slappur til að gera e-ð EN of hress til að hvíla sig!!!
Það ætti bara að vera annaðhvort eða.....finnst mér og hananú!

Anywho þá er nóg að gerast þessa dagana....
Kennslukonan í mér ýtir úr vör á mánudagsmorguninn og verður á sjó í 2 heilar vikur. Undirbúningsvinnan er í hámarki og þessir sjö ára krakkalingar eiga von á OFSA lærdómsríkum og fjörfylltum dögum;)

Helgin fer í blómvinnu, kennslundirbúning og heimapróf í dönsku. Þannig að djamm-mynstur seinustu helga verður rofið þrátt fyrir hækkandi sól og almenna stemmningu hjá fólki. Ég verð bara með í næstu lotu..dadara:)

Ég var að átta mig á að ég fer ekki í neina fermingarveislu í ár...og þykir mér það mikið miður. Ég elska svona risavaxinn kökuboð...ég veit að sumir vilja ekkert frekar enn að sleppa við að mæta í svonalagað...en ég er greinilega svona family-and cake-oriented:)
Þannig að nú held ég bara í vonina um gott afmæli hjá einhverjum á næstunni....Harpa og Guðrún Anna ég treysti á ykkur;)


Eigið smellna viku!