mánudagur, október 18, 2004

Ma eg kynna....

....Veturkonung og hans óþolandi fylgdarlið...Kulda, Frost, Rok og meiri Kulda!

laugardagur, október 16, 2004

long time no blog...

...jæja þetta hefur ekki beint verið mín vika upp á síðkastið, þess vegna hef ég heldur ekki nennt að skrifa neina skemmtilega lesningu....ja svo er líka ástæðan að ég er komin með leið á bloggi.... þetta plöggar öll mannnleg samskipti!

Anywho þá get ég nefnt dæmi af því hversu heppin ég hef verið upp á síðkastið...var að leggja lokahönd á verkefni í
skólanum en var greinilega ekki nógu vakandi til að muna að setja grænsápu í gifsmótið mitt áður en ég fyllti það með gifsi sem átti að verða að gifsgrímu þegar ég væri búin að höggva gifsformið utan af henni, að það sé grænsápulaust gerir það að verkum að þetta verður einn stór gifsklumpur sem ofan í allt tók upp á því að mynda stóra sprungu í gegnum sig. Þar fór öll vinnan mín fyrir lítið. Og það á seinasta stigi verkefnisins....djö!
Eftir að hafa leitað lengi að gemsanum mínum í morgun í vinnunni fann ég hann loksins fljótandi í rósabúntafötunni. Vel "soaked" í vatni með blómanæringu....gæti varla hafa verið betra!! Ofan í áfall morgunsins skar ég mig líka vel og vandlega í hægri þumalputtann sem gerir það að verkum að öll innpökkunar vinna á blómum og gjafavörum verður MUN erfiðari og ég leit út fyrir að vera með 10 þumal putta og með risa umbúða þumalinn út í loftið.....

Nóg um kvart...skellti mér á opnun sýningar í Hafnarhúsinu í gærkveldi með TJ og hans crewi. Þetta er voða skemmtilg sýning um íslenska grafíska hönnun. Gamlar/nýjar mjólkurfernur, peningar og tískublöð meðal sýningarefnis. Svoldil "ah..ég man eftir þessu" sýning.
Have a nice weekend!

sunnudagur, október 10, 2004

Jeij Jeij!

Nú í kvöld fjárfesti ég í flugmiða til Oslo....til að heimsækja hana Eddu, fékk svona líka ansi góðan prís!
Í byrjun nóvember munum við Edda rölta niður Karl Johan í verlunarhug...

föstudagur, október 08, 2004

Enn ein helgin...

...og í þetta skiptið án vinnu. Nú er maður bara orðin svo óvanur því að eiga frí að það reynist erfitt að velja úr öllum þeim möguleikum sem helgin býður upp á. Hvernig er þessari wonderful fríhelgi best varið:

-Sumarbústaðar eldhugi- fjölskyldustemmning, útivera, hreysti, góður matur, vinna...lalalala
-Letidýrið- kassinn, dvd, nammi og.... u know the rest
-Næturljónið-fljótandi veitingar, fjör,gleði. hausverkur, sjónvarpsgláp....mmmm
-Heilsufríkið- læra, hlaupa, elda heilsumat, vakna snemma, synda, labba allt sem maður þarf að fara ....sjæse!

Anyway þá kemur þetta víst allt til greina....og skerst úr um hvernig fer í fyrramálið.

Núna er Arnie B í borg ástarinnar "Le Paris" og án efa að skemmta sér með öllum frönsku hönkunum;) Það verður gaman að fá sögurnar þaðan og sjá myndir (Arna mundu að taka myndir!!!)þegar hún snýr aftur.
By the way þá er ég akkurat þessa stundina að deyja úr ítalíu þrá...var að sjá magnaðann ferðaþátt um landið og ég verð að viðurkenna að... I´m sold!
Strax og ég er búin að klára planið með Harrods þar sem ég og Sigga ætlum að mæta dressed up einn daginn og shop our pants off! Vissu þið að í Harrods í London eru yfir 6000 starfsmenn, þeir framleiða eigið rafmagn, þeir eru með minningargosbrunn um Díönu og Dodi, þeir eru með sérstaka fálka sem drepa dúfurnar sem herja á bygginguna og svo er gamall kall sem hefur unnið þarna í milljón ár og heitir George. Eftir honum eru Harrods bangsarnir nefndir! ....Og margt fleira!! Þetta barasta verður að upplifast....

Jæja nóg af útlanda dagdraumum...tími til komin að horfast í augu við það að ég fer ekki neitt...fyrr en 29.des...en þá held ég til Köben til að sækja hann TJ minn og halda áramót á danska vísu....ísland hefur ekki verið að veita mér nein geggjuð áramót seinustu ár svo það er tími til komin að veita öðrum löndum séns..ikke sandt;.)

Jæja folkens...im outie!

fimmtudagur, október 07, 2004

speki dagsins

Fékk þetta sent frá henni móður minni og varð að leyfa öðrum að njóta með mér;)

"Að ljúga eða ekki ljúga!"
Dag einn, þegar saumakonan
sat og vann á árbakkanum, þá missti hún fingurbjörgina sína útí ána. Hún
hrópaði upp yfir sig í örvæntingu og henni til mikillar undurnar birtist
Drottinn sjálfur og spurði: Hvers vegna grætur þú ? Saumkonan svaraði að
fingurbjörgin hennar hefði fallið í vatnið og hún þyrfti á
fingurbjörginni að halda svo hún gæti aðstoða bónda sinn við að afla
tekna til heimilisins. Drottinn hvarf ofan í vatnið og kom til baka með
gullfingurbjörg. "Er þetta fingurbjörgin þín?" spurði Drottinn.
Saumakonan svaraði neitandi og þá hvarf Drottinn aftur í vatnið og kom
upp með demantsfingurbjörg. "Er þetta fingurbjörgin þín?" spurði
Drottinn en saumkonan neitaði því. Enn hvarf drottinn ofan í vatnið og
kom nú upp með silfurfingurbjörg og spurði hvort þetta væri sú rétta og
saumakonan jánkaði því. Drottinn var mjög ánægður með  sannsögli
konunnar og færði hennir allar fingurbjargirnar þrjár  til eignar
að launum, og saumkonan hélt glöð heim á leið. Nokkru síðar   þegar
saumakonan var á göngu eftir árbakkanum með eiginmanni sínum, datt hann
í ána. Þegar hún hrópaði upp yfir sig í örvæntingu, birtist Drottinn
enn á ný   og spurði hvers vegna hún gréti? "Æi guð, maðurinnminn   datt
í ána". Guð stakk sér í ána og kom til baka með Mel Gibson. "Er þetta
eiginmaður þinn?" spurði hann. "Já" hrópaði saumakonan. Drottinn
reiddist. "Þú lýgur" sagði hann "Æ, fyrirgefðu Drottinn, þetta á sér
sínar skýringar. Sjáðu til, ef ég hefði sagt nei við Mel Gibsons, hefðir
þú næst komið með Tom Cruise og ef ég hefði sagt nei við honum, þá hefir
þú komið með eiginmann minn . Ef ég hefði sagt já við honum þá hefðir þú
gefið mér þá alla þrjá og þar sem ég er ekki lengur eins hress og ég var
þegar ég var yngri hefði ég aldrei getað sinnt þeim öllum þremur. Þess
vegna sagði ég já við Mel Gibson.

Mórall sögunnar: Þegar konur ljúga, er
það af heiðvirðum ástæðum og öðrum til heilla. Þetta er okkar skoðun og
við stöndum við hana!

þriðjudagur, október 05, 2004

Kannast einhver við...

....aðstæður þar sem heilinn segir manni að lesa skólabækurnar og að vera ýkt dugleg að muna allt sem í þeim stendur fyrir prófið á morgun. En restin af líkamanum er í samúðar verkfalli (í þessu tilviki kennurum)...og vill helst af öllu í ísbíltúr...ég er samt búin að lofa honum að það er ís annað kvöld

Ég heyrði orð í gær sem situr þvílíkt á sálinni á mér: "gerviþörf". Alveg merkilegt hugtak sem allir ættu að velta fyrir sér once in a while. "Æ mig langar í kók...bíddu nú við, nei það er gervi þörf og þess vegna þarf ég ekkert á því að halda". Maganður megrunarkúr....held ég útvegi mér einkarétt á þessu;)

Nú er TJ að spranga um á Hlemmi sem stadisti fyrir myndina hans Balta....oh dear, my man the moviestar....hehe!! Ásamt restinni af Rvk sem nennti að standa úti í kuldanum eftir að það var auglýst eftir fleiri stadistum í fréttunum;)

a whole new world

Ég mæli með að þeir sem eiga leið í miðbæinn taki sér krók og keyri framhjá Hlemmi. Maður ekki alveg viss um að maður sé staddur á gömlu góðu strætó stöðinni eða einhversstaðar í Bandaríkjunum in "the eighty´s". Þarna ætlar sem sagt tökulið og læti að skapa ameríska stemmningu í kvöld fyrir kvikmyndina hans Baltasar(hann er víst e-ð frændaður Hörpunni...hehe).
Við erum að tala um innflutta skólarútu, sjúkrabíl, þrjá gamla löggubíla og gulan taxa sem allir stóðu fyrir utan KB banka eða ætti ég frekar að segja "technical solutions" fyrirtækið eins og skiltið segir. Ég þurfti að bregða mér þar inn til að gera upp skuldir mínar við samfélagið en lá við að ég hætti við og brigði mér bara á Cherokee Chicken í hádegismat í staðinn, öðru nafni gamli Dominos skúrinn!
Anyways...amerísk stemmning á Hlemmi..tjekk it out!
Hilds

mánudagur, október 04, 2004

Manudagskvørtun..

..glatað veður á ísmolanum í dag. Langar að vera á Ítalíu akkurat núna..ja eða Mauritus eða jafnvel Fiji. EF einhver efnaður einstaklingur á leið um síðuna og þarf að að losna við peninga þá er þetta einstakt tækifæri. Skiljið eftir síman númerið ykkar í commentunum og ég mun hafa samband, aight!

fame magnet!

....þetta fer nú bara að verða vandræðalegt hvað maður er brushing shoulders with the famous people...en svona er þetta þegar er maður er lil old me;) T.d. í dag í vinnunni kom allskonar lið að verlsa hjá mér...og má þar nefna eins og einn af meðlimum Ice Guys...þið sjáið að þetta er greinilega e-ð sem ég get ekki gert að...these people are just drawn to me!;)

Anyways fyrir utan þetta highlight helgarinnar þá var ég að vinna every day og er mönnum fegnust að þessi helgi sé á enda....það er sko ljúft að vera skólamey.

Ég ætla ekki að gleyma að færa systur minni ómældarþakkir fyrir glæsiboð á laugardeginum og ert þú hér með krýnd Queen of the faijitas! Til lukku með titilinn systir kær.....

Anywho þá er þetta allt sem ég nenni að skrifa eftir þessa frekar rólegu vinnuhelgi en er strax byrjuð að hlakka til næstu helgar sem er fyrir mig ávísun á góða vinnulausa helgi m tilheyrandi möguleikum...ahhhhhh......luxus.

Snurf for now!

laugardagur, október 02, 2004

Ha ha ha ha....!!

Það er sko til ólánssamt fólk í heiminum...lesið þessa:

http://www.ananova.com/news/story/sm_1124829.html

hahahahaha.....

fimmtudagur, september 30, 2004

model smjodel!

...ég brá mér í heimsók í gærkveldi á gamlar heimaslóðir...aka.Aflagrandann til að kveðja elskulega forledra mína sem eru í þessum töluðu orðum að sleppa sér á Ítalíu í fríinu sínu. Lucky people!
Það er nú kannski ekkert í frásögur færandi nema að ég datt ofan í þáttinn "Americas next top model"(eða e-ð í þeim dúr) sem er bara ansi áhugaverður fyrir þær sakir að þetta er jú pjúra drama og bull. Ótrúlegt að sjá svona hóp af sætum tilvonandi topmódelum vera svona hrottalega frekar, hallærislegar, vondar við hvor aðra og óþroskaðar. Pabbi minn trúði nú ekki að við systurnar sætum og horfum á þetta rugl en það toppaði allt þegar mamma var mætt við kassann líka og sussaði á hann þegar hann byrjaði að sveia yfir vali á sjónvarpsefni.
Svona eru reality shows merkilegar. Manni er alveg sama um allt þetta frægðarþyrstalið þangað til maður horfir á einn þátt og verður hooked á því að sjá meira....eitt er víst og það er að nú verð ég að sjá næsta þátt!
By the way er einhver sammála mér að Tyra Banks er ein sú væmnasta gella ever þegar hún er að segja hverjir komist áfram og hverjir ekki...það eru bara ekkasogarnir og læti!

Könnun dagsins: Hverjir horfa á þáttinn "Americas next top model?"

B.t.w. Dröfn það er bannað að segja hver vinnur ef þú ert búin að sjá enda þáttinn þarna úti!!

þriðjudagur, september 28, 2004

Nothing beats tuesdays!

Þetta eru einfaldlega bestu dagarnir. Er í aðeins einum tíma sem er ferlega skemmtilegur: "hönnun og mótun hugmynda". Get sofið út OG gert e-ð sniðugt áður en ég mæti kl.12:50! Geri aðrir betur...

Annars er ég bara að skrifa e-ð af því að ég var orðin leið á seinustu færslunni minni....þegar maður er komin með leið á sinni eigin síðu þá er komin tími til að take sum action.
Ég sé fram á skemmtilega viku þrátt fyrir vinnu um helgina. Ætla að gerast stórtæk og stefna á þjóðminjasafnið á miðvikudaginn þar sem ég heyrði nú að það er víst gratis inn alla miðvikudaga. Auðvitað á maður að nýta sér svona gæða tilboð!! Sundlaugar Rvk eru líka á dagskránni ásamt ýmislegu öðru sniðugu. Hver veit nema að maður drífi sig í heimsókn e-ð út í buskann...allir að taka til hjá sér ´n be ready!

kveðja
Helen Happyline

laugardagur, september 25, 2004

Hið bestasta kvöld:)

Jæja það rættist aldeilis úr kveldinu í gær eftir þennan líka óskemmtilega dag.
Sinfó tónleikarnir voru svona líka góðir. Manni leið á köflum fullkomnlega eins og maður væri að horfa á eina gamla góða bíómynd...bara án myndarinnar! Þetta sannaði fyrir mér hversu miklu máli góð kvikmyndatónlist skiptir fyrir stemmninguna í myndinni. Mæli með þessu tónleikum...bara synd að þetta hafi verið þeir seinustu...af tveimur;)

Anywho...eftir tónleikana flýtti maður sér heim til að taka á móti þeim vatnaliljum sem sáu sér fært um að mæta. Eins og Birna sagði "það var fámennt en góðmennt"...Umræðurnar voru nokkuð klassískar, yfirnáttúrulegir atburðir og karlmenn:)!Fundum vel fyrir því að Dröfn og Ragna voru fjarverandi þar sem grófleikinn var í hóf stilltur. Arna og Harps voru edrú og fóru ekki í bæinn. En ég og Birna skelltum okkur í mekka skemmtanalífsins í Rvk. Ég skemmti mér bara hið besta og var ánægð með kvöldið....kom samt fyrr heim en ég reiknaði með...hmmm....þegar maður verður eldri hrörnar greinilega tímaskynið;)

Jæja ætla að fara að gera ekki neitt í tilefni dagsins í dag!
Stundir....

föstudagur, september 24, 2004

Ekki minn dagur!!

Alveg glatað veður, tölvan ekki að hlýða, tímaplön ekki að passa, rak hausinn í....og sitt hvað fleira óskemmtilegt!

Langar mest undir sæng en hef ákveðið að reyna að leiða þetta allt hjá mér vegna þess að það er vatnaliljudjamm í kveld...treysti á uppliftingu í m.a. formi dans á helstu stöðum bæjarins!!

miðvikudagur, september 22, 2004

undur veraldar

tjékkið á þessu...skrítin síða...sérstaklega þetta um 5 ára móðurina!

http://www.weirdlinks.com/

mánudagur, september 20, 2004

Ny færsla

...ég læt undan MIKLUM þrýstingi frá Örnu og blogga þrátt fyrir að ég sé ekki í stuði.
Dagurinn í dag hófst á fríi og endaði á óvæntu fríi. Ekki slæmt það, sérstaklega þar sem ég átti von á hvorugu fríinu. Það var frí í Listir menning og menntun vegna aukatímans sem við förum í á föstudaginn, sá aukatími gengur út á að sitja í Háskólabíói og hlusta á ljúfa tóna kvikmyndatónlistar.....nei við förum ekki í bíó...heldur á sinfó.tónleika! Maður er barasta farin að hlakka til að vera menningarlegur:)Held að þetta verði mjög skemmtilegt þar sem þeir munu taka slagara eins og gamla góða Singing in the rain, Star Wars og fleira!

Um helgin var ég bara að vinna fös, laug og sunn í blómunum. En brá mér samt í pæjuafmæli hjá Hönnu á laugardaginn...það vara bara fínt...gaman að sjá skvísurnar aftur eftir a long time! Takk fyrir boðið Hanna mín!!

Einnig skellti ég mér í sundlaug Da Westside á laugardaginn eftir vinnu, með Siggu sis....á leiðinni upp á inngangnum helltust yfir mig raunir þess að hafa verið í skólasundi þarna í fjölda ára....oj hvað þetta var mikil pína þegar maður var lítill...að þurfa að drösla sér á staðinn í öllum veðrum til að skjálfa úr kulda á leiðinni ofan í og upp úr lauginni...tala nú ekki um ofan í lauginni sjálfri með orðin"beyja,kreppa..sssjundur sssjamannn!!" í eyrunum allan tíman, alltof harða kúta og risa froskalappir!
En laugin sjálf er nákvæmlega eins og hún var nema að heita pottarnir eru e-ð aðeins öðruvísi...mér gafst nú ekki tími til þess að tjékka þá nánar út vegna pottaóþoli systur minnar. Verð bara að gera það næst;)
Þetta er víst trend laugin í dag og það er hægt að spotta nokkra selebba ef maður hefur augun hjá sér (þ.e. uppi úr vatninu). Líklegast hanga þeir þarna vegna þess hve stutt hún er frá Melabúðinni sem er alveg töffið hjá þotuliðinu þessa dagana...

Þetta var fyrirfólks hornið fyrir þess vikuna...fleiri þotuliðsstaðir verða gefnir upp í næstu viku, fylgist vel með!

Hildur alsjáandi

fimmtudagur, september 16, 2004

Heimsmalin...

Jæja fólk....það er bara ýmislegt að gerast þessa dagana..
-Joakim og Alexandra Dana-royalty bara að skilja. Mér finnst það bara ágætismál ef þau vilja ekki búa saman lengur. Hef líka heyrt að prinsinn sé bara plain boring ásamt því að unna sér best úti í sveit á meðan Alexandra er þessi business týpa frá Japan sem vill vera í aksjoninu. Leiðinlegt fyrir litlu prinsana...ekki nóg með að þeir fæðast inn í einhverja voða royalty fjölskyldu með ekkert privacy heldur eru þeir þá líka skilnaðar börn. Greyin litlu!

Iceland express sendir mér bréf í dag (ásamt öllum öðrum) þar sem þeir þvinga mig til að fara erlendis fyrir 15.des eða þeir taki aftur af mér gjöfina sem þeir voru að gefa mér. Fyrr má nú aldeilis fyrr vera....það er bara pressa á manni að spara nóg saman til að eiga fyrir hóteli,verslunarferðum,uppihaldi og öllu hinu fyrir 5000 afslátt frá þeim. Ekki misskilja mig...þetta er VOÐA rausnalegt hjá liðinu en lets face it...þetta er jú bara enn ein auglýsingabrellan frá fyrirtækinu.
Kannski ekki ástæða til að rjúka upp til handa og fóta þrátt fyrir að þetta hafi verið hin El grandissimo Þjóðargjöf!!

Anywho þá vil ég enn og aftur óska honum pabba mínum til hamingju með daginn í gær...ég gleymdi því ekki...er bara ennþá í afmælisstuði í dag;)

Will og Grace kalla...farvel!

þriðjudagur, september 14, 2004

Klippi klipp

Enn einum *hektískum* skóladeginum lokið. Fór í einn tíma og þar innihélt verkefnið notkun hinna skemmtilegu tóla: skæri, lím(helst UHU), pappírsarkir og reglustrikur. Þriðjudagar rokka!!

mánudagur, september 13, 2004

Og allt hefst a ny enn einu sinni...

Skólinn er bara gera það gott þessa dagana og allt í sínum föstu skorðum á ný.
Skellti mér í miðbæinn á laugardaginn og ég verð að segja að þessi raða-trend er ekki að gera sig fyrir mig. Hvað er málið að þurfa að gera sig fína fyrri part kvöldsisn til að taka þátt í undercover slagsmálum og troðningi við innganna á flesta skemmtistaði borgarinnar seinna um kvöldið. Sumir staðir eru verri en aðrir og ætla ég að nefna Prikið sem dæmi...ertu að grínast, maður gæti haldið að áfengi væri ókeypis inni á staðnum. Það er allt notað, í þessari þvögu sem á víst að heita röð, til að koma sér inn fyrir dyrnar. Við erum að tala um ferlega uppstrílaðar og fínar stelpur í mínipilsum sem nota olboga og hné við að komast inn á þröngasta skemmtistaðinn í bænum. Ég neita því ekki að maður getur skemmt sér hið besta þegar inn er komið en vá...það er ekki eins og þetta sé þess virði að koma heim með ónýtan sköflung og glóðurauga! Þá verður Grand Rokk að duga....það er aldrei röð þar....wonder why?!
Annars áttum við Arna fínt kvöld í þrítugsafmæli með ókunnugu liði þar sem við sungum með kassagítari allt kvöldið og vorum viðstaddar snoðun á vel hærðum karlmanni.

Nóg í bili...Smásálin veður framvegis á hverjum Mánudegi!

laugardagur, september 11, 2004

billinn


billinn
Originally uploaded by eyjan.
Akvad ad senda mynd af fina bilnum minum...(og troelsar)...tha getur folk thekkt mig a gotum Reykjavikur:)