þriðjudagur, maí 13, 2008

Himnasending

Ég fékk yndislega sendingu að heiman fyrir nokkrum dögum síðan. Flatkökur, pítusósa, nóg af nammi og þetta helsta...
Nú er svo komið að ég er laaaaaangt komin með lakkrískonfektið og djúpurnar...og maður spyr sig..er heilbrigt að innbyrgða svona mikinn lakkrís á svona stuttum tíma?!

Anyway...sólin heldur áfram að skína hér í danaveldi..þó að hitatölurnar hafi lækkað aðeins ætla ég ekki að kvarta.
Skólinn er á loka metrunum þó svo að ég sé fyrst officially búin 25.júní. Verkefnaskil 2.júní. Ritgerðaskil 13.júní og svo munnlegt próf úr henni þarna um 25. júní.

Sigga kemur til mín um miðjan júní eftir suður ameríkuferðina sín og verður hér e-ð áfram. Það verður s.s.kátt á hjalla hér í sumar. Hróarskelda verður mögulega á dagskrá ásamt öðru fjöri sem innheldur grill og góðan félagsskap og flugnabit.
Vonandi komumst við eitthvað til Svíþjóðar eða Norges(eða bæði) og kannski maður skelli sér í smá bíltúr e-ð um restina af Danmörku. Orðið á götunni er að Danmörk sé í raun mikið meira en Strikið(og Köben)....en ég sel það alls ekki dýrara en ég keypti það!

Kærlig hilsen

HH

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vei vuhu... og vertu tilbuin fyrir brjalad fitness sumar! Tan og training...
Psmig langar lika til Noregs!!

Nafnlaus sagði...

ég er mega ánægð með þetta bloggframtak!
slærð mér sko alveg við. ég vil samt auglýsa partei-ið aðeins lengur á síðunni. er sko að vona að mercedes club kíki við!

Nafnlaus sagði...

Dk meira en Strikið? Neihei....ég trúi því ekki fyrr en ég sé það.

Var reyndar massaánægð með göngutúr um Norrebro síðast, mér finnst ég GEÐVEIKT veraldarvön;)

Ánægð með bloggdugnaðinn elskan!!!

Kv. Harpa