þriðjudagur, október 10, 2006

History keeps repeating it self...

...þið eigið kannski ekki eftir að trúa þessu.
Bílnum okkar var stolið AFTUR...6 dögum eftir að við höfðum fengið hann aftur!!
Bara horfinn á núna mánudaginn.
TJ lét löggarana vita og bíllinn var eftirlýstur á ný.

Tj fór út að hjóla í gær til að svipast um eftir bílnum og mætir honum á Nørrebrogötu. TJ reynir að fylgja honum eftir og tekst það þar til kauði gefur í og hann verður að gefast upp. Frekar súr yfir því.

Í dag miðvikudag hringdi löggan í Tj og lét hann vita að bíllinn hefði sést á bílastæði ekki all langt frá húsinu okkar. Löggan sagðist ekkert geta gert í málinu núna þar sem það væri svo mikið að gera hjá þeim. Tj lét ekki segja sér það tvisvar. Hann sótti bíllykilinn og hélt til bílastæðisins til að athuga með að stela bílnum til baka. Ætlunarverkið tókst og höfum við nú endurheimt gripinn AFTUR.
Þetta var sami þjófurinn þar sem að hann skildi eftir sömu verksumverki. Skeið, álpappír og 20 schillingaseðil.
Mér finnst hann ansi frakkur að taka sama bílinn tvisvar!!

Eftir að TJ hafði sótt bíliin fór hann með hann i hreinsun og svo héldum við út í búðina T.Hansen til að kaupa stýrislás.
Mér þykir það nokkuð kaldhæðnislegt að eftir að bílnum var stolið í fyrsta skiptið fórum við að kaupa stýrislás en það var bara allt uppselt. Svo planið var að reyna aðra búð við tækifæri.
í millitíðinni náði maðurinn að stela honum aftur.

Bara rugl...

Nú fer bíllinn hvergi þar sem hann er kominn með þennan líka fína skærgula stýrislás. Við bindum allar vonir okkar við hann þar sem að bíllinn þolir varla mikið meira af glannaakstri frá dópista sem kann ekki að keyra!

Annars ekkert spennó að fréttta:)

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ja nú er ég svo aldeilis hlessa, er ekki hægt að læsa bílnum. Næst keyrir hann á.....

.:Eyjan sagði...

Skemmtilegt nokk þá var bíllinn harðlæstur í bæði skiptin....við reiknum með að kauði taki ekki bíllinn aftur og þar af leiðandi höldum við að við höfum afstýrt því að hann keyri á...við tökum samt ekki ábyrgð á því sem hann gerir í næsta bíl sem hann stelur.

Sigga Gyða sagði...

hahaha!
Ótrúlegt!
Greinilegt að bílinn ykkar hefur eitthvað óútskýranlegt aðdráttarafl á bílaþjófa dópista...

Nafnlaus sagði...

Ha ha ha...þetta er magnað í meira lagi! Sjitturinn titturinn. Sá er bíræfinn...greinilega BARA fyrir eina tegund af bíl og AKKÚRAT í ÞESSUM lit;)...tja nema þið eigið einhverja óvini í DK sem vilj...bílnum ykkar eitthvað;) ha ha ha...

En gott mál með lásinn. Ég fylgist spennt með til að vita hvort bílinn verði á YKKAR vegum næstu vikurnar;)

.:Eyjan sagði...

Við höfum íhugað þá hugmynd að deila bara forræði yfir bílnum með gaurnum ef hann heldur svona áfram;)hehe

Unknown sagði...

Váts - hverskonar ofurbíl eigði??? össs...

arna sagði...

sko hildur, nú kemur þú heim í öruggar hendur mínar!!