mánudagur, október 30, 2006

Það er fatt betra i heimnum en...

.....jóga. Það er amk á topp 10 listanum mínum!!
Það er bara ótrúlegt hvaða áhrif nokkrar spes æfingar geta haft á mann.

Annars allt gott að frétta héðan. Við fáum gesti í einnar nætur gistingu á miðvikudaginn(mega auðvitað vera lengur) það er hið stórskemmtilega par frá Århus sem ætlar að skella sér með okkur á FCK-MAN.UNITED leikinn.

Svo er allt að verða vitlaust í MTV european music awards hér. Það fer allt fram á fimmtudaginn, voða stemmning fyrir því.
Var að labba yfir Rådhuspladsen áðan og þar eru þeir komnir langt með að setja upp risa svið sem á að vera vettvangur tónlistaratriðina og skemmtiatriðana. Þó er allt fræga fólkið og svo verðlaunaafhendingin sjálf í ráðstefnuhöllinni "Bellacenter" sem er svona korters keyrslu í burtu. Lógískt?...nei ekki finnst mér það
Auðvitað verður maður að skella sér í after partýið hjá P.Diddy á Nasa klúbbnum þar sem sérinnflutt Don pergion kampavín verður serverað. Og jafnvel partýið hans Snoop á einhverjum stað þar sem hann hefur látið fólkið mála staðinn allan bláan að innan fyrir þetta eina kvöld í tilefni að útgáfu plötu sinnar sem heitir e-ð með "blue" í titlinum.
Já mín er með allt það helsta á hreinu í sambandi við þennan atburð;)

Svo kemur jólabjórinn á föstudaginn. Það er voða stemmning. Kl. nákvæmlega 20:59 (að mig minnir) mega barirnir byrja að selja jólaølinn! Sama kvöld er bekkurinn minn í skólanum að standa fyrir fredagsbar fyrir nemendur og þemaið verður s.s. MTV after-after party...verður án ef stuð.

Nóg að gera hjá minni!
Lovs*

3 ummæli:

Unknown sagði...

Get ekki beðið. Ég hringi í þig í dag ...

Nafnlaus sagði...

góða skemmtun á leiknum á morgun,bið að heilsa öllum celeb-unum og hey! haukur biður ykkar trölla um að vera ekki búin með allan bjórinn fyrir komu okkar;)

.:Eyjan sagði...

úff, get engu lofað Harpa mín...jólabjórinn verður jú fljót drukkinn!
En kannski geymum við einn fyrir Hauk:)