sunnudagur, október 08, 2006

Bókanir bókanir...





...fólk er aldeilis byrjað að taka við sér í pöntunum á gistingu hjá okkur.
Sem er bara hið allra besta mál. Held samt að við séum orðin fullybooked fyrir haustönnina, þar sem því miður þarf að vera tími fyrir skólann.
Sigga sis kemur seinnipartinn í október, Harps, Haukur og Kristín litla María koma i lok nóvember, í byrjun des ætlum við að spranga um í tívolí með Herði og Önnu kærustu hans....Guðrún vinkona mín Ragna hefur svo pantað eina nótt um miðjan des...
Þetta eru allt góðir gestir og hlökkum við mikið til að fá þau!

Nú er bara að fara að íhuga vorönnina sem enn innheldur nokkur laus pláss;)

7 ummæli:

Unknown sagði...

bíddu, bíddu... einu sinni bjóst þú í köben og sast og beiðst eftir öllum heimsóknunum sem allir sögðust ælta að framkvæma. Nú er greinilega öldin önnur og þarft þú að fara að vísa frá. Gott? eða slæmt? hmmm...

örugglega gott!

Annars er Fönn og Inga Margrét baggalútsfrænka þín alltaf að leika saman hjá dagmömmunni. Voða sáttar :)

Nafnlaus sagði...

við erum óendanlega þakklát fyrir að hafa náð plássi hjá vinsælasta fólki kaupmannahafnarborgar;) og tilhlökkunin í hagnaðarsetrinu er mikil...það er einhvern veginn þannig að það er skemmtilegast þegar maður ákveður eitthvað með engum fyrirvara....

...farðu að boða komu mína á þessu helstu staði...reef n beef (já, trölli fær eina bloody steak í boði okkar), tívólí, h&m...og svona...

knús, knús....

.:Eyjan sagði...

Já Hildur mín nú er bara að verða uppselt hjá mér eins og á airwaves;) svakaleg ásókn! Gaman að Fönn skuli lítast á hana litlu frænku mína. Vandræðalegt en satt þá hef ég bara einu sinni hitt hana i persónu..annars bara séð myndir. Ég reikna þó með að við eigum deit í jólaboði:)

Harpa þið eruð að sjálfsögðu velkomin...þið voruð jú svo ansi heppin að ná eftirsóttri gistingu hjá okkur.
Reef n beef er farið að elta strúta og krókodíla til að servera fyrir Hörpuna. Hinir staðirnir fá mail inna skamms...rauði dregillinn verður þó eins og venjulega fyrir framan h&m þegar þú mætir:)

Drofn sagði...

tja þar fór það...þá fer maður varla til köben á þessu ári:(

Unknown sagði...

Uff, það er erfitt að bua Köben, hehe. Það er annað en að bua 3 lestatimum fra naflanum. Hlakka otrulega til að sja snilldar ibuðina ykkar með berum augum og að sjalfsögðu að hitta ykkur:)

.:Eyjan sagði...

Dröfn ef eitthvað kemur upp þá er alveg hægt að athuga með að sækja um undanþágu;)

Guðrún við vbíðum spennt eftir að geta sýnt þér herlegheitin. Hef sjálf verið að íhuga ferð til Århus og er enn að skoða hvort ég geti náð því. Læt þig vita:)

Nafnlaus sagði...

Þetta er nú bara efni í bíómynd. Rosalega er hann kræfur þessi gaur, jæja vonandi lætur hann bílinn í friði núna. Gangi ykkur :)

kv. Júlía Tan