laugardagur, desember 27, 2003

Jæja...

...jólin bara búin!Reyndar bjargar gamlárskvöld málunum...því vegna þeirra er maður ekki alveg hættur að hlakka til(ef maður telur ekki janúar útsölurnar með).
Ég er búin að eyða mestum hluta þessarar jólahátíðar innan fjögra veggja blómabúðar og frítímanum þaðan á þönum í verslunarkjörnum Reykjavíkur. Að mínu mati flugu þessi jól framhjá fyrir löngu og maður náði rétt í rassinn á þeim(þ.e. aðfangadagskvöld). Á morgun tek ég mér kærkomið frí til að fara í fjölskyldu"át"boð því ég missti af seinasta boðinu, á annan í jólum, útaf blómaóðum Reykvíkingum.
Gamlárskvöld verður ekkert smá nice. Ég er EKKI að vinna heldur að sækja TJ út á flugvöll svo er það bara family, át, flugeldar og svo....óráðin dagskrá!?! Er einhver með par-tei, með fyrirfram ákveðinni góðri stemmningu???

Annars vil ég bara minna vatnaliljurnar á átveislu númer 33. á mánudaginn næstkomandi.......

friður veri með ykkur og ykkar á þessum jóla(áts)tímum;)*

Engin ummæli: