mánudagur, desember 01, 2003

Oh my...!

Ég sit hér nartandi í jólaköku með angist í maganum. Stærðfræðiprófið er á miðvikudaginn og efnið sem ég þarf að ná yfir er óendanlegt. Við fengum einn auka stærðfræði tíma í dag sem gerði lítið annað en að auka á stress. Ég var bara svo afslöppuð í morgun en það fór fyrir lítið með útskýringum stærðfræði kennarans á dæmum sem voru að vefjast fyrir fólki. Hverjum er ekki sama um gerðir grúpa?! Annars er þetta eflaust voða skemmtilegt að glíma við ef maður ekki að frumreikna sum dæmin svona rétt fyrir prófin.
Oh my...varð bara að létta á mínu litla hjarta...
ætla að fara að kíkja á kvantarana, leiðingarnar og jú grúpurnar....ásamt rest.
það er bara að berjast....:/

Engin ummæli: