...íslenskan gekk ekki neitt brill...því ég fattaði of seint að ég hafði miskilið seinni ritgerðarspurninguna....bömmer því þær voru bara tvær. Ég hafði bara skrifað ritgerð um e-ð annað( svipað efni en ég svaraði ekki spurningunni skýrt).
Anyway...seinasta prófið á morgun..Menning og samfélag. Það verður varla meira óspennandi+ að maður veit ekkert hvað þeir ætla sér að prófa úr. Held að einginn á námskeiðinu skilji neitt í þessu fagi. Hefði geta verið á kínversku þessvegna.
Dröfn kanalingur er mætt á svæðið.....loksins....hver veit nema hún muni troða upp í Kringlunni um helgina;)
Ég og Troels fórum ut að borða í gær m familiunni á stað sem heiti Heitt&Kalt...rosa fínn staður. Mamma bauð í tilefni að heimför Troelsar eftir 2 daga (liggur við að hann eigi að fara heim oftar:). Þá verður maður bara einn eftir...oh well:/
Jæja fúnksjónalistar,marxismar og túlkunarsinnar bíða spenntir eftir að tjá mér sjónarmið sitt á samfélagið....woohoo!
adios að sinni*


Engin ummæli:
Skrifa ummæli