sunnudagur, janúar 04, 2004

Nýtt ár með nýjum ævintýrum!

Júhú...nýja árið 2004 er mætt og það virðist lofa góðu. Stemmningin fyrir komandi mánuði er vægast sagt góð hjá þjóðinni(ja eða þessum nokkrum sem ég hef talað við). Svo maður er líka bara bjartsýnn...þýðir ekkert annað!!
Bjartsýnin byrjar með fjárfestingu minni í mánaðarkorti í Baðhúsinu. Þar sem ég trúi blint á getu mína til að drösla mér í "Spikhrististöðina" á hverjum morgni.

Svona by the way...hvað er málið með ljóta lógóið hjá KB bankanum...a.k.a. Búnaðarbankinn minn fyrrverandi. Ljótt logo og ljótt nafn. Svo hika þeir ekki við að stela titlinum frá Kaupfélagi Borgfirðinga!! Hvað var að því gamla??!
Varð að koma þessari skoðun minni að. Einnig tel ég að nafnaskiptin hafi áhrif á gæði og virkni hraðbankanna. Reyndi að ná mér í seðla í dag en bankinn neitaði þó ég ætti þá inni. Þetta er nafnið...ég er viss um það...

Skólinn byrjar eftir ca. viku, svo fríið er extra langt. Stundum er sko ljúft að vera námsmaður. Útsölurnar eru í gangi og ég hef einsett mér að kaupa amk. eina góða flík á þeim(helst buxur) því mér hefur ekki tekist að gera það seinustu 2 árin. Kannski er það bara nýja nýársheitið mitt...

Var annars einhver þarna úti með nýársheit? Lát heyra!!



Engin ummæli: