mánudagur, janúar 12, 2004

í skólanum er gaman...lalalala....

Jú jú fyrsti skóladagurinn í dag med 4 kennslustundum i sama fagi. Sem er "Námsskrárfræði og námsmat". Ég hafdi heyrt ad fagid væri ekki skemmtilegt og var thess vegna ekki ad búast vid neinu sérstöku. Thad reyndist heldur ekki vera neitt sérstakt en þó ekki jafn leidinlegt og madur hafdi heyrt. Héðan í frá mun ég alltaf gefa nýjum fögum 2 vikur áður en ég gef því loka dóminn...Kennarinn virðist sniðugur og hóf kennslu með umræðu í hópum. Góð byrjun...eitt stig fyrir það!
Annars hóf maður skólagönguna glæsilega með því að hálf dotta í fyrsta fyrirlestri veturins....hóst hóst;)

Fag morgun dagsins er "stærðfræðin og kennarinn" (fyrir jól var thad stærðfræðin og nemandinn), ég hef hug á að standa mig vel í þessu fagi(sama hve leiðinlegt það getur orðið) og vona að draumurinn gangi eftir...fer allt eftir því hvað maður nennir að vera duglegur þessa önnina...hehe;)

Allar einkunnir jólaprófanna eru komnar í hús og ég er svona nánast alveg sátt. Hefði viljað fá örlítið hærra í 2 fögum þar sem maður var nú búinn að lesa sig hálf geðveika fyrir þau. En ég er jú sátt og það þýðir hvort sem ekki að velta sér upp úr orðnum hlut....right!

Ég er búin að redda námslánunum und stílabókunum og er bara tilbúin í slaginn við námsbækurnar á ný.....skóli 4eva my homie*:)


Engin ummæli: