laugardagur, maí 31, 2008

ógissla gaman




man ekki einu sinni hvenær ég gerði svona síðast...en þetta er bara mega stuð!!

föstudagur, maí 30, 2008

Skjálftavaktin...

Thad er aldeilis ad thad gengur mikid á heima á klakanum. Verid ad hrista rækilega upp í íslenskuthjódinni. Vonum bara ad thad komi ekki meira svona næstu áratugina.

Skrítid ad ég sé alltaf fjarri gódu gamni thegar svona skjálftar láta finna fyrir sér. Ég missi alltaf af "fjørinu" en kannski er thad lán í ólani.


Skil á verkefnum á mánudaginn eftir helgi.
Brunch med honum TJ mínum í hádeginu á morgun. Flugdreka partýí Malmø seinnipart og kvøld. Bíltúr í sumó á sunnudag.
Upp undir 28 grádur um helgina.

Awesome!!

sunnudagur, maí 25, 2008

fimmtudagur, maí 22, 2008

Eigum við að ræða þetta e-ð...?




Why,why why?

Sumt á bara að fá að vera í friði fyrir framhalds-trendinum!!!

sunnudagur, maí 18, 2008

"Nobody puts baby in a corner"


Loksins skil ég þessa setningu til fulls...


Í gær sá ég s.s. í fyrsta skipti á ævinni myndina Dirty dancing frá 1987 með hinum fótafima Patrick Swayze og Jennifer Grey.
Þar sem að ég hef sífellt verið að rekast á eða heyra tilvitnanir í myndina í gegnum árin þá ákvað ég að láta verða af því og varð ekki fyrir vonbrigðum. Dans og aftur dans...rosalega hefur verið gaman að vera upp á sitt besta í þessu dansæði öllu saman. Dirty dancing, Fame og fleira í þeim dúr. Þá voru allir alltaf hressir og það villtasta sem fólk gerði til að skemmta sér var að dansa í laumi. Og já auðvitað....ástin sigrar alltaf að lokum....what else:)!

Þó ég sé milljón árum á eftir öllum öðrum þá mæli ég með þessari mynd fyrir aðra kvikmyndaletingja(eins og mig) sem eiga eftir að sjá hana.

föstudagur, maí 16, 2008

Vá....þetta er magnað


MUTO a wall-painted animation by BLU from blu on Vimeo.

Þetta er verk framsækna graffiti-listamanna í Buenos Aires.
Framtíðar graffiti....hreyfimyndagraffiti!

þriðjudagur, maí 13, 2008

Ábending

Er einhver búin/nn að taka eftir því hversu dugleg ég er að blogga þessa dagana!!

Bara svona ef einhver skyldi ekki hafa tekið eftir þessu þrekvirki mínu:)

Himnasending

Ég fékk yndislega sendingu að heiman fyrir nokkrum dögum síðan. Flatkökur, pítusósa, nóg af nammi og þetta helsta...
Nú er svo komið að ég er laaaaaangt komin með lakkrískonfektið og djúpurnar...og maður spyr sig..er heilbrigt að innbyrgða svona mikinn lakkrís á svona stuttum tíma?!

Anyway...sólin heldur áfram að skína hér í danaveldi..þó að hitatölurnar hafi lækkað aðeins ætla ég ekki að kvarta.
Skólinn er á loka metrunum þó svo að ég sé fyrst officially búin 25.júní. Verkefnaskil 2.júní. Ritgerðaskil 13.júní og svo munnlegt próf úr henni þarna um 25. júní.

Sigga kemur til mín um miðjan júní eftir suður ameríkuferðina sín og verður hér e-ð áfram. Það verður s.s.kátt á hjalla hér í sumar. Hróarskelda verður mögulega á dagskrá ásamt öðru fjöri sem innheldur grill og góðan félagsskap og flugnabit.
Vonandi komumst við eitthvað til Svíþjóðar eða Norges(eða bæði) og kannski maður skelli sér í smá bíltúr e-ð um restina af Danmörku. Orðið á götunni er að Danmörk sé í raun mikið meira en Strikið(og Köben)....en ég sel það alls ekki dýrara en ég keypti það!

Kærlig hilsen

HH

sunnudagur, maí 11, 2008

Læfstæl í Leðurborg

Í gær skelltum við okkur á árslega lífsstílsmessu með systkinum TJ...við förum yfirleitt þegar við erum í DK á þessum tíma. Þetta er haldið utandyra á svæði í kringum einhverskonar höll sem einhver greifi eða e-ð svoleiðins á.
Eins og öll hin árin var mikið af áhugaverðum varningi til sölu. Mér var kynnt snilldartækni til að halda sundlauginni minni hreinni. Sýnd panna sem gerir manni kleift að poppa yfir opnum eldi. Smökkuðum bestu spægipylsu Danmerkur(samkvæmt sölumanninum), mismunandi illa lyktandi osta, vín og bjór frá hinum og þessum brugghúsum. Fylgdumst með körfugerðamanni og fengum nudd í hátækni nuddstól. Svo var líka hægt að prufa og kaupa kajaka, heita potta, grill af öllum stærðum og gerðum, allskonar gourmet mat(olíur, súkkulaði, kjöt, brauð.....), jeppa, mótorcross hjól, sjálfvirkar sláttuvélar og ryksugur, föt á fullorðna og börn og fleira og fleira..... Sáum skoskt sekkjapípuband spila og marsera um svæðið(heyrðum seinna að þeir töluðu dönsku í pásunni=svindl) og borðuðum hádegismat og annað spennandi gotterí sem var í boði í steikjandi sólskini.

Á seinasta ári var rigning, Það var aldeilis ekki jafn gaman og í ár.








miðvikudagur, maí 07, 2008

Thad er komid sumar...

Hér er komid alveg snilldar vedur.
Allir komnir í sumarføtin og jafnvel í sandala á gøtum úti. Fólk bordar ís á øllum gøtuhornum og slafrar í sig bjór á útikaffihúsum.

Ég ákvad a láta freistast og rédst í thad ad finna fram sumardressin...og komst ad thví ad ég á vandrædalega lítid af theim. Thad tharf ad kippa thessu í lag hid snarasta. Bara alls ekki hægt ad vera døkkklædd og í "full-body" klædnadi thegar allir adrir spranga um á stuttbuxum og hlýró.
Øss...ég tharf ad finna fram orlofspeningana mína og rádast á mollid!

p.s. hvad er fólk ad hugsa sem rænir banka á íslandi??! Ætlar thad aldrei ad læra...getur einhver bent mér á eitt stykki íslenskan bankaræningja sem hefur framid hinn fullkomna glæp?!!

þriðjudagur, maí 06, 2008

Girlywurly

í dag er ég slöpp og hef haldið mig heima fyrir.
Í tilefni af því tók ég mig til og horfði á tvö stykki ekta stelpu-bíómyndir.

Ég er reyndar mjööög stolt af mér því að þessar seinustu vikur hef ég verið að reyna að taka mig á í bíómyndamálunum. Hef aldeilis ekki verið dugleg á því sviði hingað til.

En ég sá s.s. P.S.I love u og Juno. (og fyrir stuttu sá ég 27 dresses).
Ég hef seinustu árin haldið að svona myndir væru bara orðnar ofur-amerískar og klisjukenndar( sem þær auðvitað eru)
Þrátt fyrir það er ég yfir mig ánægð að hafa séð þær. Svona myndir eru algjör næring fyrir stelpusálina.

Mæli með þeim (þó ég geri nú ráð fyrir að ég sé sú seinasta til að sjá þær)

mánudagur, maí 05, 2008

Royalty

Ferlega held ég að það sé leiðinlegt að vera konungsborin!!

"Síðdegis taka Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands og Stefán Arnórsson stjórnarformaður Jarðvísindastofnunar HÍ á móti Friðriki krónprins og forseta Íslands í Öskju, húsi náttúruvísinda HÍ. Þar verður stutt ráðstefna um jarðvísindi, jöklafræði og loftslagsbreytingar. Á sama tíma munu Mary krónprinsessa og forsetafrúin kynna sér íslenska hönnun og heimsækja Eggert Pétursson listmálara.

Í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar tekur Birgitta Spur á móti krónprinshjónunum og forsetahjónunum. Þar mun Charlotte Bøving leikkona lesa ljóð sem íslensk skáld hafa samið á dönsku og Hlíf Sigurjónsdóttir og Martin Frewer fiðluleikarar flytja hluta úr verki eftir Hildigunni Rúnarsdóttur tónskáld."

Hvað ef Mary hefur brennandi áhuga á jarðvísindum, af hverju er hún greyið send í að skoða hönnun og list OG hvað ef Frikki vildi frekar skoða nýjustu kjólatískuna á íslandinu.

Hvað ef þau vildu bara fá sé bjór á Vegó og rölta laugarveginn?

Þetta er nú frekar klént allt saman....


p.s. hversu stutt getur ráðstefna um jarðvísindi, jöklafræði og loftslagsbreytingar eiginlega orðið?! hmmm

sunnudagur, apríl 27, 2008

Eigum við e-ð að ræð etta...?

Ég í Köben. Sigga í Ríó í Barsilíu. Ma og pa í Búdapest...

Afhverju er ég sú eina sem færist ekki úr stað?

þriðjudagur, apríl 22, 2008

Heimsóknar helgin mikla

Nú eru stelpurnar farnar aftur til íslandsins eftir mikla stud helgi.
Mikid keypt og mikid skodad.
Malmø, Laundromatinn og ýmislegt annad tekid fyrir...ad ég tali nú ekki um Strikid.

Thad var yndislegt ad hafa thær hér í heimsókn og vonandi lídur ekki á løngu thar til thær láta sjá sig hér aftur.

Thanx girls fyrir góda helgi

þriðjudagur, apríl 15, 2008

Kreist!

Blogg blogg...thetta er bara ekki jafn audvelt og thad var hér ádur fyrr.
Skrítid ad madur sé ad pína sig svodlid í ad skrifa e-d hingad inn. Og mér sem finnst svo ágætt ad lesa blogg annara.
En sumir er víst "natuaral" bloggarar á medan adrir strøggla:)

Hmmm..í thessum tøludu ordum er fjølskylda mín ansi dreifd. Pa er einn eftir á íslandinu góda. Ég í Køben. Ma í Malaví. Sigga í Argentínu. Thrjár heimsálfur í gangi..takk fyrir! Vid erum augljóslega miklir heimsborgarar í familíunni!

Ég fæ ansi skemmtilega heimsókn á næstu døgum. Skvísurnar Ragna og Harpa ætla ad taka verslanir Køben med trompi og kannski restina af borginni líka ef thær hafa tíma til. Vid munum án ef tralla e-d og skemmta okkur konunglega um helgina.
Thad er einmitt frídagur í danaveldi á føstudaginn sem kemur mér ansi vel en kannski theim skvísum adeins verr thví verslanir munu vera lokadar. Smá panikk;)

Á morgun á ég ad skila skólaverkefni sem er auglýsingarherferd fyrir CPH:DOX sem er international heimildamynda-bíóhátíd sem haldin er árlega hér í borg. Spennandi ad sjá hvernig lidid tekur í thad sem ég sýni theim. Ein tillaga af 20e-d tilløgum. Vid erum ansi mørg í bekknum.


Jæja nú get ég ekki kreist fleiri"fréttir" fram í augnablikinu en sjáum nú hvort ad ég geti ekki haldid mér í æfingu og skrifad aftur fljótlega.

Lifid heil!

Kvedja
Ritstjórn Eyjunnar

fimmtudagur, apríl 10, 2008

Vorið er að koma í Köben!



í skólanum í dag sátum við úti að borða hádegismat með sólinni.
Ekkert smá upplífgandi þegar birtan og hitinn mætir á ný...eins og góð vítamínssprauta!

Vonandi verður aaaaaallt sumarið svona!

mánudagur, mars 31, 2008

Langar í hita og sól!!!




Nú væri ekki slæmt að vera með henni Siggu minni í Buenos Aires....heitt og gott!

sunnudagur, mars 30, 2008

Pamplemousse!






París var snilld!
Við erum annars komin heim fyrir löngu....gleymdi bara að setja inn myndir!

mánudagur, mars 17, 2008

Hanging with the frenchfries



Þarna verðum við á morgun og næstu 4 daga eftir það!!!

p.s. það snjóar villt og galið hér í Köben...það er bara alls ekki nógu sniðugt!

laugardagur, mars 08, 2008

Eðal tónleikar!!





Fröken A. Lyklar skúffaði aldeilis ekki aðdáðendur sína í þetta skiptið.
Langt síðan ég hef verið svona star-struck:)

Brjálað show og góð tónlist og stemmning allan tíman. Daman hefur þol á við fíl...dansandi um sviðið í risa hælum, syngjandi og spilandi á píanó....og hélt kúlinu allan tímann - 2 tímar nonstop.