mánudagur, september 06, 2004

The student returns....

Fyrsta skóladeginum er lokið og ég verð að segja að ég er bara sátt so far.
Dagurinn byrjaði á léttum tíma í "Talað mál og framsögn" þar sem við fengum að vita um öll þau skipti sem við ættum að standa fyrir framan bekkinn og fara með annað hvort ljóð, vísu, þjóðsögur eða smásögu með tilþrifum og tilfinningu. Kúrsinn endar svo með prófi og eigin fyrirlestri í stóra salnum fyrir framan fjölda fólks um Jónas Hallgrímsson. Skemmtilegt! Ég get látið ykkur vita að af því að mín þarfnast ansi mikillar æfingar til að geta flutt magnþrunginn drama ljóð með ekta tilfinningu!!

Eftir ágætis pásu var skundað á fund kennara sem vildi ólmur kenna okkur siðfræði frá A-Ö. Eftir heimspekilega byrjun og slappelsilegar útskíringar var helmingur nemenda í salnum dottinn út úr einbeittningarfasanum og farin að tæma mailin sín,krota á blað eða leggja sig.
Við lok þessa átakanlega tíma var svo þvílíkur troðningur á fólki við að komast út úr fyrirlestrasalnum á meðan fyrstu ársnemarnir gáfu ekki eftir því þeir ætluðu sér inn í næsta tíma....kyndug stemmning myndaðist og heyrði ég því fleygt að þetta minnti á menningarnótt þarna á ganginum.

Seinasti tími dagsins var svo Listir, menning og menntun sem er fyrsti tíminn sem ég fer í sem ég hef sjálfviljug skráð mig í. Hann hófst á því að það myndaðist stór hópur á að giska 40 manns fyrir utan stofu í skólanum. Allir biðu þar spenntir eftir að kennarinn mætti til að opna stofuna....time went by og eftir slatti langan tíma æpir einhver að við eigum að vera í öðru húsnæði....allur hópurinn skundaði þá niður í listgreinahús og þar beið kellan með 43 stóla í hring. Við sátum og hlustuðum heil lengi og svo enduðum við sem hljómsveit með allskonar græjur syngjandi "There´s a hole in the world to night...."

Anyway a good day*

fimmtudagur, september 02, 2004

þolinmæðin þrautir vinnur allar!

En hvað gerir maður þegar þolinmæðin er ekki fyrir hendi??? Ég sit hérna með alveg bráð leiðinlegt verkefni....að sauma GARDÍNUR! Þetta er alveg rosaleg þolraun fyrir mig og þar af leiðandi virðist ég ekki stefna á "myndalega húsmóður hlutverkið". Eina ástæðan fyrir því að ég legg þetta á mig er að maður getur ekki horft á sjónvarpið á kvöldin fyrir glæilegu sólarlagi sem miðar beint á augasteininn. Maður situr þarna í sófanum og lítur út eins og eskimói þegar maður reynir að píra augun á fréttir kvöldsins eða áhugavert fræðsluefni um e-ð uppbyggilegt...(*hóst*)!
Ég sem hélt að þetta yrði hið léttasta verk með gardínum frá Ikea....heyrðu þar maður þá ekki að stytta, falda OG setja einhvern renning á þetta sem heitit því óskiljanlega nafni Zbrautir.
Ég get sagt ykkur það að ég hef sjaldan blótað gardínum jafn mikið og þegar ég þarf að klippa beina línu til að gardínurnar hangi ekki allar skakkar.....en ég hef s.s. tekið að mér jobbið og verð að klára það. Ég er hálfnuð með eina gardínu af 4 stykkjum. "Hafið verk er hálf klárað" -minnir að það hljómi svona og ég held ég verði að tileinka mér það í þessu tilviki.

Ef einhver á leið um svæði 105 og er æstur gardínu áhugamaður endilega kíkið við eða skiljið eftir adressu svo ég geti sent draslið heim til þín:)

Oh well...aftur í bardagann við títiprjónanna..

B.t.w.

...ég sendi vantaliljunum mail með myndir frá Ítalíu. En ég hef ekki heyrt að neinn hafi móttekið þær...svo ég varpa spurningu dagsins fram...hefur einhver fengið myndirnar sendar?

þriðjudagur, ágúst 31, 2004

Biðtimi dauðans....

...jæja nú langar Hildina að fara í skólann! Það eru allir byrjaðir að skólast og enginn heima nema ég lengur. Þá er ekki lengur mega fjör að vera í fríi get ég sagt þér.
Annars er ég bara búin að vera mjög sátt við þetta sumarfrí...
-fékk vinnur
-gat farið í sumarfrí (og það bara frekar langt)
-ferðaðist innanlands og í útlandinu
-var túristi á íslandi með landakort,myndavél og nýtti alvöru bændagistingu m rollu fyrir utan gluggann!
-verslaði föt föt og meiri föt...very important.....skrítið að mig vanti ennþá meira...hmmm?!
-eyddi peningum mínum í vitleysu(er samt ekki skuldug...plús fyrir það!)
-borðaði fullt af óhollum og góðum mat (mínus fyrir það....æ höfum bara plús líka þá kemur þetta út á sléttu)
-náði að hitta slatta af fólki sem maður sér ekki á hverjum degi.
-fékk smá(-endurtek SMÁ) sól á kroppinn (plús fyrir ísland!)
-náði ekki að fara til Svíþjóðar...sorry Svergie kem á næsta ári!!
-keypti töffara bíl!!!
-skreið upp á tuttugasta og þriðja árið og er stolt af því
-fjárfesti í tveimur elskum sem eru í uppáhaldi í dag...Mr. Poddi MInisen og systir hans I.Bookína. (Nörd?!So what, I luv it!)
-Sá Smáfólkið á tónleikum í Handakrikanum!
-eignaðist systur með bílpróf;)
-og fleira og fleira....man ekki meira í bili.En þetta er nóg til að ég er hæst ánægð með sumarið!

Kveðja
Tilvonandi skólastelpan

sunnudagur, ágúst 29, 2004

They have a point there....

A WOMAN SHOULD HAVE
.....one old love
she can imagine
going back to...
and one who reminds
her how far she has come.

A WOMAN SHOULD HAVE
....enough money within her
control to move out and
rent a place of her own
even if she never wants
to or needs to...

A WOMAN SHOULD HAVE
.... something perfect to wear if
the employer or date of her dreams
wants to see her in an hour...

A WOMAN SHOULD HAVE
.... a youth she's content
to leave behind...

A WOMAN SHOULD HAVE
.....a past juicy enough that
she's looking forward to
retelling it in her old age....

A WOMAN SHOULD HAVE
.....a set of screwdrivers, a
cordless drill, and a black
lace bra...

A WOMAN SHOULD HAVE
....one friend who always makes
her laugh ... and one who lets
her cry...

A WOMAN SHOULD HAVE
.....a good piece of furniture
not previously owned by anyone
else in her family...

A WOMAN SHOULD HAVE
.....eight matching plates, wine
glasses with stems, and a recipe
for a meal that will make her
guests feel honored.

A WOMAN SHOULD HAVE
.....a feeling of control over
her destiny...

EVERY WOMAN SHOULD KNOW...
....how to fall in love without
losing herself...

EVERY WOMAN SHOULD KNOW...
...how to quit a job,
break up with a lover,
and confront a friend
without ruining the friendship...

EVERY WOMAN SHOULD KNOW...
....when to try harder ... and
when to walk away...

EVERY WOMAN SHOULD KNOW...
...that she can't change the
length of her calves, the width
of her hips, or the nature of her
parents...

EVERY WOMAN SHOULD KNOW...
.....that her childhood may not
have been perfect...but its
over...

EVERY WOMAN SHOULD KNOW.....
....what she would and wouldn't
do for love or more...

EVERY WOMAN SHOULD KNOW...
....how to live alone... even if
she doesn't like it...

EVERY WOMAN SHOULD KNOW...
....whom she can trust,
whom she can't,
and why she shouldn't
take it personally...

EVERY WOMAN SHOULD KNOW...
....where to go...
be it to her best friend's kitchen
table...
or a charming inn in the woods...
when her soul needs soothing...

EVERY WOMAN SHOULD KNOW...
.... what she can and can't
accomplish in a day...
a month...and a year...

"People say what we are all seeking is the meaning of life...
I think what we're really seeking is the experience of being alive..."
Rudyard Kipling

fimmtudagur, ágúst 26, 2004

Big pimpin...

...er mjög grípandi titill og ég hef því ákveðið að nota hann í þetta skiptið.
Ég var vonandi mitt síðasta kvöld í Gallup í kveld....kannski þarf maður að mæta á morgun...en það er alltaf hægt að vona að maður sé heppin;)

Ég var að gramsa í gamla dótinu mínu í dag og fann ýmislegt spennandi...og hef í leiðinni komist að því að ég er með massíva söfnunar áráttu á hluti með tilfinninglegt gildi fyrir mig. Ég á ótrúlegustu hluti sem ég myndi ALDREI hafa til sýnis eða stillla upp heima hjá mér. Sem dæmi er ýmislegt skemmtilegt frá því ég var 9-10 ára og bjó í Afríku eins og t.d. krókodílatennur, uppáhalds ensku bækurnar mínar, afmælisgjafir og hluti frá fólki sem ég þekkti en sé líklegast aldrei aftur á ævinni(sem by the way gerir mig frekar leiða) og fleira og fleira..........
Ennfremur á ég allskonar steina sem ég hef einhversstaðar náð mér í, sápur sem ég fékk á einhverju ferðalagi í útlöndum, sand frá Sahara eyðimörkinni í vatnsflösku frá Túnis, pezkall (afmælisgjöf), hálsfestar, bréf-bæði almenn og úr Kvennó;), kort, smádót og margt margt fleira s.s. e-ð drasl sem ég veit ekkert hvað á að gera við en vil fyrir alla muni EKKI henda. Ég viðurkenni það fúslega....að ég hlýt að vera einhverskonar fortíðarfíkill....sem getur bara að vera gott mál því fortíðin hefur verið einstaklega góð og ég hefði ekki viljað missa af henni fyrir neitt.

Þarna sjáiði fólk...ég á ábyggilega e-ð sem tengist ykkur öllum hvort sem það er steinn, bréf eða bara e-ð annað sem gerir það að verkum að ég gleymi engum!

Jæja ég ætla að fara að baða mig aðeins í fortíðinni....see u in the future folks!*

þriðjudagur, ágúst 24, 2004

Kultur sjokk oder was!

(hmmmm.....ég virðist ekki geta sett kommurnar yfir ú-ið í tilinum....trust me ég veit þær eiga að vera þar;)
Jæja menningarnóttin ógurlega er flogin hjá....ég varð ekki fyrir vonbrigðum þar sem ég hafði engar sérstakar vonir í gangi. En ég get heldur ekki sagt að þetta hafi verið einstök upplifun.....frekar bara kósý.
Við sáum tónleika, fólk, skemmtiatriði, grafíksýningu, föt og mannHAF í miðbænum. Þegar ég stóð í skaranum niðri á hafnarbakkanum gerði ég mér grein fyrir því að ég gerði mér ENGA grein fyrir fjöldanum í kringum mig....ég sá einungis hausa af öllum stærðum og gerðum all around me. Kíkti á Örnu á Mokkanum en hún bara mega busy og neitaði að hleypa okkur inn á staðinn þar sem hún nennti ekki afgreiða fleiri en nauðsynlegt var...hehe...skiljanlega;)
Flugeldasýningin fær 8 stig fyrir hvað húna varði lengi....maður var komin með illt í hnakkann(haha) þegar allt var búið!

Þegar næturlífsfólkið byrjaði að hópast í bæinn eftir flugeldasýninguna voru ótakmarkaðar raðir við alla skemmtilestaði og áhugi minn á raða djammi var mældur í mínus stigum þannig að ég hélt mitt eigið menningardjamm heima hjá mér...með góðri bíómynd. Ég veit að þarna kemst upp um menninganördann í mér en svona raða-menning höfðar ekki ALLTAF til mín!

Anywho....finnst mér fyndið (og auðvitað hneyklsi) að einhverjir gaurar hafi rænt Ópinu af safninu í Noregi. Svo flýðu þeir víst af hólmi í nýjum Audi A6, þannig að þeir virðast ekki vera broke!.....þeir geta aldrei selt myndina í laumi þar sem þetta er eitt af frægustu málverkum í heimi. Þannig að mín kenning er að þetta hafi annaðhvort verið veðmál milli vina...eða að þeir muni krefjast lausnagjalds fyrir lil´Scream jr. eins og í Ransom:)

Bæ í bilos

laugardagur, ágúst 21, 2004

Menningarnörd!

Jebbs viðurkenni það fúslega...ég veit eiginelga ekkert hvað er að gerast á morgun. Hef e-ð heyrt um Botnleðju, hiphop, flugelda og írafár að ógleymdum löggukórnum sem mun syngja fyrir framan löggustöðina og vatnadansmeyjar munu dansa við ljúfan söng löggumannanna....ha!.....og það er í rauninni bara it!
Ég verð að vinna frá 10-16...en býst reyndar ekki við traffík í blómabúðina þar sem hvorki fimleikafélag né kvennakór mun skemmta í búðinni minni.Damn!!
Ég held að ég taki bara upp á því eftir vinnu að láta mig fljóta niður laugarveginn/skólavörðustíginn í átt að miðbænum og láta Reykjavíkurborg surprise me...seinasta menningarnótt sem ég man nokkurnveginn eftir er þegar ég var ca.15/16 niðri á Ingólfstorgi með einhverjum Westside krökkum. Annars hefur maður annaðhvort verið erlendis, vinnandi eða bara fjarverandi held ég....það verður skemmtilegt að sjá hversu mögnuð reynsla morgundagsins verður!

Nú er Dröfn farin aftur út til kananna...og Edda fjellrev er að tækla elgi í skógum Noregs....skrítið að það sé ég sem er heima og aðrir að fara út.....skrítið en alls ekki slæmt, þar sem ísland er da place þó það sé ekki DA place... if u know what i mean;)

Blah blah blah.....hætti núna*

fimmtudagur, ágúst 19, 2004

þriðjudagur, ágúst 17, 2004

"Mig langar að þakka...."

....svona mun óskarsræðan mín líka hefjast en þanga til ætla ég að láta mér nægja að nota tækifærið til að þakka fyrir allar afmæliskveðjurnar sem ég hef fengið í dag. Thank you verí múts alle sammen....á góðri íslensku!!
Ég er sem sagt orðin einu ári eldri og eins og ég kýs að kalla það...einu ári vitrari(ekki er óskað eftir kommentum á seinustu línu!) Kvöldinu verður eytt í faðmi fjölskyldunnar(vantar eina hendina samt þar sem pabbi er ekki heima!) en einnig mun Lea vinkona mín úr höjskólanum snæða afmælislæri ásamt okkur hinum.

Ég hef ákveðið það að ég nenni ekki að velta mér upp úr aldri og því sem fylgi honum því ég veit af eigin reynslu hversu sorglegt það er þegar fólk tönglast sífellt á því hversu gamalt það er orðið. Í dag og frameftir mun ég s.s. reyna að vera hæst ánægð með minn aldur hver sem hann er hverju sinni þar sem allt annað er rugl og hananú(fólk þarf kannski ekkert endilega að muna þetta þegar ég er orðin þó nokkrum árum eldri...en ég mun reyna!)!

Anyway þá er komin nýr fjölskyldumeðlimur í heimilishaldið og heitir hann Bravo, Fiat.....fæddur 1998 og er blár að lit! Drives like a dream i tell yer:) Þannig að nú erum við orðin 3 stykki í kotinu á hólnum....gleði gleði:)

Danirnir sem voru í heimsókn hjá okkur um daginn skemmtu sér ansi vel á klakanum og snéru sátt heim til Danaveldis. Við reyndum að vera góðir guidar og sýndum þeim smá af Þingvöllum og svo sumarbústaðinn hans afa. En einnig héldum við smá teiti með þeim og fáeinum öðrum í tilefni afmælis TJ. Það var bara vel lukkað og allir ánægðir með það:)

jæja nóg í bili...hafiði það gott gæskurnar og gæskarnir....því að ég á afmæli í dag,jeij:)!


föstudagur, ágúst 06, 2004

same old same old...

Nú er allt komið í svipað horf og áður...vinnan tekin við eftir heilan mánuð af nokkurskonar afslöppun og skemmtilegheitum!
Lea vinkona úr höjskólanum mínum býr núna á landinu og verður næstu 4 mánuði. Það verður bara "hyggeligt" að hafa gamal kunnugt andlit með sér í skólanum á ný. Sérstaklega þar sem Dröfn er á leiðinni út aftur og Edda er farin til Oslo....Birna er skroppin til London.....barsta varla neinn eftir!!

Rétt áðan leit ég út á svalir og sá að þar var mættur svartur kettlingur í svaka stuði. Mér fannst þetta heldur skrítið þar sem við búum á annari hæð. En það kom í ljós að þetta var ekki einmanna, fljúgandi köttur eins og mér fyrst datt í hug...heldur höfðu nágranarnir bara fengið sér kattargerpi:) ....Tj til mikillar mæðu...hehe

Annars held ég ég bíði með að segja meiri fréttir þanga til seinna....er illt í hendinni u see;)
Friður í bili.....

miðvikudagur, ágúst 04, 2004

föstudagur, júlí 30, 2004

Nú er ég í góðum félagsskap:)

Ég hef eignast nyjan vin sem heitir Poddi (aka.ipod mini, aka. Mr.Blue, aka.Poddster jr.:)

Have a nice day y´allir

þriðjudagur, júlí 27, 2004

Vika í heimfør!

Jæja nu sit eg heima hja Hans og Danny sem eru vinir troelsar og bua i Nyhavn....gott hangs í gangi akkurat nuna.

I dag hitti eg Karinu sem var med mér i bekk thegar i bjo herna i den(10.bekk) thad var gaman ad sjá kunnulegt andlit á ny;)
Um daginn skellti ég mer á kaffihus med Siggu Birnu, Møndu og Laufeyju. Thannig ad nu er madur næstum buin ad hitta allt lidid herna i køben...vantar bara Tinnu sem er akkurat á íslandi nuna(kemur tilbaka daginn eftir ad eg fer heim)....

Loksins kom heill dagur med sól og án rigningardropa...eg er samt vid øllu buin og er vopnud regnhlíf at all times! Pilsin min eru farin ad rykfalla i tøskunni thannig ad ef sumarid herna er loksins komid thá neydist madur kannski til ad thvo allan pakkan upp á nytt.

I dag keypti eg mer nyja Roots diskinn.....just wanted to share that with u guys:)

Jæja....eg held thetta se allt i bili...thar sem eg virdist oft verda minnislaus thegar eg sest fyrir fram tølvuna...en hey ég syni i thad minnsta lit!
Hafid thad gott skinnin mín.......
-snurf frá Køben

miðvikudagur, júlí 21, 2004

Hallo hallo

Yo folks....long time no write yes!
NUna er eg komin i almennilega tølvu sem gerir mer kleift ad skrifa heila færslu án thess ad hun sløkkvi a ser i midju kafi!
Vid Troels erum buin ad gera ymislegt...en samt finnst mér eins og vid høfum ekki gert neitt svaka. En ég ætla ad reyna ad tyna e-d saman.
Vid forum ferd til Jótlands thar sem vid vorum i Alaborg i nokkra daga. Thad var bara ferlega kósí. Fórum út ad borda med vini TJ og kærustu hans(thau ætla by the way ad heimsækja okkur á klakann stuttu eftir ad vid komum heim). Skelltum okkur i keilu sem var ferlega cool. Thad var alltaf ein raud keila med hvitu keilunum og thegar hun kom nidur fremst og thu nádir fellu fengu allir sem voru ad spila med ther ókeypis bjór! Eg myndi kalla thetta hvetjandi adferd! Svo var verslad e-d tharna i bænum ádur en vid héldum til Rørvig thar sem fjølskyldan hans TJ á sumarbustad(án vatns og rafmagns...voda náttúrulegt!) Thar vorum vid eina nott...voda nice bara! TJ skellti sér i sjóinn á strøndinni....ég nennti ekki ad svamla i iskøldu vatninu svo eg hékk á áhorfenda pøllunum i thetta skiptid;)
Vid skelltum okkur lika a einhverja skate myndar forsyningu a Ideal bar....thad var ferlega fint og gaman. Alltaf fjør hjá dønunum!
Vid heimsóttum vin TJ sem heitir Carlos. Hann hélt grillparty fyrir okkur i nyja húsinu sinu. Thar hefur hann sundlaug i bakgardinum. billiardbord i kjallaranum ásamt heilu herbergi sem hefur skjávarpa og rum medfram øllum veggjum med fullt af pudum(s.s. eigin biosal), hann var med kørfuboltathing á bilaplaninu og fotboltaspil i bilskurnum. Thetta var svona mini MTV crib hús;) Anyway thad var voda gaman bara.

Svo erum vid buin arka um margar gøtur hérna i Køben...TJ hittir folk á hverju horni og ég bara engan;) Mikid er buid ad versla...en samt ekki...thegar madur byr i tøsku veit madur ekkert hvad madur hefur keypt lengur thvi øllu er bara hent ofan i tøskuna.
Fjølskyldubod hafa verid i hávegum høfd og einmitt á laugardaginn á bródir TJ, Gufos, 30. afmæli. Thá verdur voda party i gardinum hjá theim. Jæja nú nenni ég ekki meir!Bæ

Lag dagsins: Promoe- A likkle sump sump:).......já Sigga min madur vard ad testa diskinn thinn létt ádur en heim er komid.
.....og NIna Sky-move your body

þriðjudagur, júlí 20, 2004

þriðjudagur, júlí 13, 2004

Aalborg

Nu erum vid i álaborg her a nordur jótlandi. Ferlega finn bær med fullt af budum og heilli gøtu tileinkadri kaffihusum/skemmtistødum.
Vid keyrdum til aarhus i gær og heimsottum vini okkar. Kikti m.a. á Leu i nyju ibudinni sinni. Vid stoppudum samt bara til kl.21 i aarhus og keyrdum svo til Aalborg.
Solin skin i dag og eg vona ad thetta vedur haldist...er ordin svoldid leid á thvi ad vera her i rigningu a medan allir heima sleikja solina;)

verd ad fara ad versla.....meiri news later!

miðvikudagur, júlí 07, 2004

Danmark man....ja....

hér var barasta blíða í dag...ekki samt pils-blíða að minu mati...gott að fá smá sól eftir rigninguna í byrjun frísins. Við Troels eyddum 4 klukkutimum í risa stórri nyrri verslunarmiðstöð i dag sem heitir Fields...oh my margt að sjá og kaupa. Afrakstur dagsins fyrir mig var eitt par af eyrnalokkum og 3pör sokkar á góðu verði. But hey ekki missa trúnna á mig enn, ég ætla aftur þangað og þá tekur það styttri tíma að versla þvi eg veit nokkurnveginn hvar allar buðirnar eru!! Samt náðum við alls ekki i allar buðirnar á þessum 4 tímum!!
Svo kiktum við i Tivoli i kvöld þar var rosa mikið af liði, allir inni að sjá einhverja Dee Dee Brigdewater konu sem við þekktum ekki snitts! En nóg var af aðdáðendunum. Það er copenhagen jazzfestival nuna i viku og gellan var partur af þvi. Eg vann Toffifee pakka i spilabásunum....töffarinn eg!!
A morgun er familybrunch og svo er bara hang fram að helgi en þá förum við til bróður Troelsar og konunnar hans i Slangerup(doesnt sound good i know) og þar ætlum við að hjálpa þeim með að undirbua skirnarveislu fyrir sunnudaginn...svo fáum við lika að vera i veislunni...ofcourse!

jæja more later mine kære venner....hik!

föstudagur, júlí 02, 2004

Ég fer í fríið...

...í fyrramálið á svona líka ókristilegum tíma(eins og systir mín myndi orða það). ÉG verð í háloftunum rétt eftir 7:30 í fyrramálið sem þýðir að fólk þarf að vakna um 4-5 leytið til að vera mætt á staðinn á réttum tíma...en hvað leggur maður ekki á sig til að komast til útlanda...ja og Troels, því ég veit nefnilega ekki hversu hress og skemmtileg konan verður SVONA snemma dags....vonum bara það besta..hehe;)

Jæja þannig að netnördinn ég kveð í bili og mun að öllum líkindum heilsa upp á ykkur næst í nýju fínu tölvunni minni í landi Dananna.

Svo er hérna shout out til Siggu soulsista sem lenti í léttvægum hremmingum hérna um daginn. Props fyrir góða tæklun....stay safe man;)

Hafið það gott alle sammen*