Jebbs viðurkenni það fúslega...ég veit eiginelga ekkert hvað er að gerast á morgun. Hef e-ð heyrt um Botnleðju, hiphop, flugelda og írafár að ógleymdum löggukórnum sem mun syngja fyrir framan löggustöðina og vatnadansmeyjar munu dansa við ljúfan söng löggumannanna....ha!.....og það er í rauninni bara it!
Ég verð að vinna frá 10-16...en býst reyndar ekki við traffík í blómabúðina þar sem hvorki fimleikafélag né kvennakór mun skemmta í búðinni minni.Damn!!
Ég held að ég taki bara upp á því eftir vinnu að láta mig fljóta niður laugarveginn/skólavörðustíginn í átt að miðbænum og láta Reykjavíkurborg surprise me...seinasta menningarnótt sem ég man nokkurnveginn eftir er þegar ég var ca.15/16 niðri á Ingólfstorgi með einhverjum Westside krökkum. Annars hefur maður annaðhvort verið erlendis, vinnandi eða bara fjarverandi held ég....það verður skemmtilegt að sjá hversu mögnuð reynsla morgundagsins verður!
Nú er Dröfn farin aftur út til kananna...og Edda fjellrev er að tækla elgi í skógum Noregs....skrítið að það sé ég sem er heima og aðrir að fara út.....skrítið en alls ekki slæmt, þar sem ísland er da place þó það sé ekki DA place... if u know what i mean;)
Blah blah blah.....hætti núna*


Engin ummæli:
Skrifa ummæli